Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Skógarnir sem við veljum að rækta
Á faglegum nótum 8. júlí 2026

Skógarnir sem við veljum að rækta

Höfundur: Aaron Zachary Shearer
Aaron Zachary Shearer.

Sjálfbærni, loftslagsbreytingar og náttúrutengdar lausnir: hugtök sem þessi eru orðin mjög algeng og jafnvel notuð svo mikið að þau missa merkingu sína. Þó táknar hvert og eitt þeirra eitthvað raunverulegt og skógar eru góður vettvangur til að skoða þau.

Skógur er ekki bara samansafn af trjám. Jafnvel ungur, meðalstór skógur verkar á marga vegu í einu. Hann heldur jarðvegi í skorðum, skýlir landinu í kringum hann, geymir kolefni, skapar heimili fyrir dýralíf og býður fólki upp á útivist.

Þessir kostir eru kallaðir vistkerfisþjónusta og hugmyndin er einföld, skógar veita okkur miklu meira en timbrið sem þeir gefa. Það er auðvelt að horfa fram hjá þeirri staðreynd að skógur veitir þessa kosti ekki sjálfkrafa, eða í jöfnum mæli. Ávinningurinn sem hann veitir fer eftir því hverju er plantað og hvar.

Á Íslandi er munurinn mikill. Þær tegundir sem ekki eru innlendar og ræktaðar eru til framleiðslu eru byggingarlega mjög ólíkar innlendum birkitrjám, sem er lágvaxið, veitir einstakt innlent búsvæði og býður upp á verðmæta vistkerfisþjónustu, en hentar ekki til timburræktar.

Þetta eru ekki betri eða verri útgáfur af einum skógi heldur einfaldlega ólíkar. Framleiðslutegundir skapa nýtt búsvæði, en birkið er ómissandi innlend tegund. Þetta eru mismunandi þjónustupakkar, valdir eftir því hvernig við stjórnum þeim.

Hér er sá hluti sem væri barnalegt að hunsa, þessir þjónustupakkar passa ekki allir vel saman. Að skipuleggja ein gæði er oft, óbeint, að sætta sig við minna af öðrum gæðum.

Gildi vistkerfisþjónustu er einmitt að slíkar ákvarðanir verða sýnilegar í stað þess að þær séu tilviljunarkenndar. Skógar einir og sér skila ekki þessum ávinningi. Margir eru háðir því sem umlykur þá: timbur verður aðeins gagnlegt með sögun og aðfangakeðju til að flytja það; gildi skóga fyrir fólk hvílir á stígum og gönguleiðum til að laða það að.

Skógur getur verið fullur af möguleikum sem verða aldrei að veruleika ef nauðsynlega innviði vantar. Að skipuleggja ávinning er líka að undirbúa það sem þarf til að ná honum.

Þess vegna er spurningin sem ætti að spyrja áður en fyrsta plantan fer í jörðina ekki einfaldlega hvort eigi að planta, heldur hvað við vonumst til að skógurinn geri. 

Margir kostir styrkja hver annan og vel skipulagður skógur getur borið nokkra í einu; Málið er ekki að allt sé keppni, heldur er það okkar að velja blönduna og skipuleggja hvert þrep eftir því sem trén þroskast. Þetta er það sem liggur að baki hugtakinu sem nú heyrist svo oft: náttúrumiðaðar lausnir. Að virkja vistkerfisþjónustu skógarins gagnvart breytingum á loftslagi, jarðvegseyðingu og álagi frá landnotkun er það sem þessi orð lýsa. Þegar við byrjum að sjá skóg sem þjónustuveitanda sem veitir ýmsar þjónustur, sumar sem verka saman og aðrar sem verka hver gegn annarri, getum við meðvitað stjórnað skóginum til að ná jafnvægi sem þjónar fólki og landi best.

Þessi þekking er grundvöllurinn fyrir betri skógum.

Höfundur er sérfræðingur hjá Landi og skógi.

Skylt efni: Land og skógur

Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017
Fréttir 20. nóvember 2026

Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017

Sauðfjárslátrun er nú lokið í öllum stærri sláturhúsum landsins og er nú ljóst a...

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki
Fréttir 19. nóvember 2026

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki

Sjóklæðagerðin sem er framleiðandi og sölulaðili 66°Norður hefur stofnað til sam...

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir
Fréttir 19. nóvember 2026

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir

Unnið er að því að innleiða íslenska losunarstuðla fyrir framræst votlendi inn í...

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps
Fréttir 19. nóvember 2026

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps

Til stóð að skýrslu yrði skilað til umhverfis-, orku- og lofts- lagsráðherra 15....

Engin alvarleg frávik á svínabúinu
Fréttir 19. nóvember 2026

Engin alvarleg frávik á svínabúinu

Engin alvarleg frávik frá reglum um velferð svína komu fram í eftirlitsheimsókn ...

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna
Fréttir 18. nóvember 2026

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna

Svokölluð Yerevan áætlun var samþykkt á þingi aðildarríkja um samning Sameinuðu ...

Nýtt fræhús á Vöglum
Fréttir 18. nóvember 2026

Nýtt fræhús á Vöglum

Nýtt fræhús á Vöglum í Fnjóskadal var formlega afhent Land og skógi af Jóhanni P...

Þjónusta Microsoft liggur niðri
Fréttir 13. nóvember 2026

Þjónusta Microsoft liggur niðri

Vegna vandræða í kerfum Microsoft liggur tölvupóstur Bændablaðsins tímabundið ni...