Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Frábært verður var á fyrsta degi Landsmóts hestamanna 2026, á Hólum í Hjaltadal.
Frábært verður var á fyrsta degi Landsmóts hestamanna 2026, á Hólum í Hjaltadal.
Mynd / kró
Fréttir 9. júlí 2026

Mótið 2026 fer vel af stað!

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Margt var í brekkunni á fyrsta degi Landsmóts hestamanna og sólin skein á Hólum í Hjaltadal. Dagskráin hófst á sérstakri forkeppni í barnaflokki og þóttu sýningar þessara yngstu knapa stórglæsilegar. „Við erum mjög ánægðir með það sem við erum búnir að sjá, hér er fullt af góðum hestum,“ segir Erlendur Árnason gæðingadómari, sem er nú að dæma tíunda Landsmótið í röð. „Dagurinn byrjaði á barnaflokki, þetta voru 120 krakkar og margar frábærar sýningar. Það gekk á heildina litið mjög vel,“ segir Erlendur.

Glæsilegir knapar í unglingaflokki.
Unnur og Emma Lind eru spenntar fyrir fjölbreyttum verk- efnum sjálfboðaliða, en þetta er þeirra fyrsta Landsmót.

Fá að skoða bestu hross landsins

Sigríður Björnsdóttir og Helga Gunnarsdóttir dýralæknar sjá um læknisskoðanir mótsins. „Þetta eru yfir 400 skoðanir og stærstu dagarnir eru þriðjudagur, miðvikudagur og fimmtudagur. Við skoðum næstum öll hrossin,“ segir Helga. Mikið annríki er í læknisskoðununum alla vikuna. „Við vinnum eftir hugmyndafræðinni „Klár í keppni“ sem búið er að hanna og þróa og hefur sannað sig ágætlega,“ segir Helga. „Klár í keppni“ er velferðarskoðun á keppnishestum sem snýr að því að greina álagseinkenni með því að skoða munn, fætur og hreyfingar hestsins auk almenns ástands. Tíðni ákveðinna áverka getur verið hentugur velferðarvísir fyrir keppnishesta.

Helga segir að það sé bæði spenna og tilhlökkun í loftinu. „Ég er alltaf spennt að vera komin á Landsmót, maður fær náttúrlega að skoða bestu hross landsins. Við sjáum ákveðna línu í því hvað kynbótahrossin og keppnishrossin eru að stríða við og það er gott fyrir vísindin, maður hefur samanburð milli móta og getur unnið úr gögnum sem er jákvætt. Við Sigríður erum ansi samhæft teymi, við erum komnar með ágætis skipulag. Knaparnir eru líka farnir að þekkja þetta form þannig að þetta gengur vel fyrir sig,“ segir Helga og bætir við að fólk sé jákvætt og allir af vilja gerðir til að hjálpa til. 

Það var þétt setið í brekkunni, fólk kom sér vel fyrir með það að markmiði að sitja límt við völlinn allan daginn.
Þessir kátu járningamenn sjá um fótaskoðun á Landsmóti, þeir eru í stjórn Járningamannafélags Íslands. Sigurgeir fyrir miðju.

Margar hendur á bak við tjöldin

Löng hefð er fyrir sjálfboðaliðum á Landsmóti hestamanna. Unnur Kjartansdóttir og Emma Lind Einarsdóttir eru sjálfboðaliðar á Landsmótinu í ár og báðar nýútskrifaðar úr viðburðastjórnun frá Háskólanum á Hólum. „Við erum í dag að gera könnun og tala við gesti en hoppum líka í hvaða störf sem er,“ segir Emma Lind. „Það getur verið að tína rusl, þrífa klósett eða hlaupa með kaffi inn á völl fyrir dómara, þeir geta verið kaffiþyrstir.“ Unnur segir að það sé gaman að fá að prófa fjölbreytt störf á mótinu, að fá innsýn inn í skipulag og uppsetningu viðburðar af þessari stærðargráðu og eru þær stöllur spenntar fyrir vikunni.

„Það sem við skoðum er fótabúnaður, auðvitað skeifurnar og hverslags járn er undir hestunum, hver þykktin er á skeifum, við skoðum hlífarnar og mælum lengd á hófum,“ segir Sigurgeir.

Flottir hófar og glaðir knapar

„Við sjáum um fótaskoðunina hér á mótinu,“ segir Sigurgeir Jóhannsson, járningamaður og formaður Járningamannafélags Íslands. „Við sjáum langflesta hestana á mótinu og það gengur alveg stórkostlega vel. Við erum hér á degi tvö og það er allt í topp standi. Það er stóra stundin að koma á Landsmót svo fólk er búið að sjá til þess að það sé allt í topp málum. Einnig hefur orðið mikil vitundarvakning hvað varðar járningar og hófhirðu á hestum síðastliðin ár og hún er almennt að batna svo okkur fer ofboðslega fram varðandi járningar. Það er mjög lítið sem við þurfum að setja út á og það er afskaplega ánægjulegt,“ segir Sigurgeir. „Við erum að sjá flotta hófa, glæsilegustu hestana og glaða keppendur sem er frábært. Þetta er náttúrlega okkar þjóðhátíð.“  

Skylt efni: Landsmót hestamanna

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna
Fréttir 1. október 2026

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna

Magnús Kristjánsson hefur verið skipaður í embætti forstjóra Stofnunar atvinnuve...

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum
Fréttir 30. september 2026

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum

First Water og Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar byggingarframkvæmd...

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir
Fréttir 30. september 2026

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hrys...

Reglugerð gefin út
Fréttir 30. september 2026

Reglugerð gefin út

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur gefið út reglugerð um kortlagningu ...

Játar innbrot í eldisbú
Fréttir 30. september 2026

Játar innbrot í eldisbú

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og hefur hann játað á sig innbrot og eig...

Minni kornstuðningur  en áætlað var
Fréttir 30. september 2026

Minni kornstuðningur en áætlað var

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár verður framlag stjórnvalda til stuðnin...

Vilja stytta bilið frá býli að borði
Fréttir 29. september 2026

Vilja stytta bilið frá býli að borði

Nýundirritaður þriggja ára samstarfssamningur á milli Landbúnaðarháskóla Íslands...

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun
Fréttir 29. september 2026

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun

Uppskera er verkefni á vegum GETA-samtakanna þar sem fjölskyldur fá ræktunarreit...

Horfinn er séra Oddur
6. október 2026

Horfinn er séra Oddur

Margrét Þóra
7. október 2026

Margrét Þóra

Hugrekki persónulegrar tjáningar
6. október 2026

Hugrekki persónulegrar tjáningar

Vönduð óþekkt
6. október 2026

Vönduð óþekkt

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.
6. október 2026

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.