Hluti íslensku sendinefndarinnar ásamt fyrrum nemendum GRÓ LRT í Hustai Nuruu-vistgarðinum.
Hluti íslensku sendinefndarinnar ásamt fyrrum nemendum GRÓ LRT í Hustai Nuruu-vistgarðinum.
Skoðun 7. október 2026

Landgræðsluskóli GRÓ á þingi Eyðimerkursamningsins

Höfundur: Guðrún Guðjónsdóttir

Ísland tók þátt í 17. þingi aðildarríkja Samnings Sameinuðu þjóðanna um varnir gegn eyðimerkurmyndun (UNCCD COP17), sem haldið var í Ulaanbaatar í Mongólíu á dögunum undir yfirskriftinni Restoring Land, Restoring Hope. Yfirskriftin fangar vel eina af megináherslum þingsins: að endurheimt lands snýst ekki aðeins um vistkerfi heldur einnig um lífsviðurværi, samfélög og framtíðarmögu- Fjöldi aukahluta í boði. leika fólks.

Guðrún Guðjónsdóttir, starfandi forstöðumaður Landgræðsluskóla GRÓ, var hluti af íslensku sendinefndinni á þinginu. Þátttaka skólans endurspeglar sterk tengsl starfs hans við markmið Eyðimerkursamningsins, en Landgræðsluskólinn vinnur að uppbyggingu fagþekkingar og getu á sviði endurheimtar vistkerfa og sjálfbærrar landnýtingar í löndum sem glíma við landeyðingu og margvíslegar áskoranir tengdar landnýtingu.

Fulltrúar Íslands og aðrir íslenskir þátttakendur á COP17.

Áherslur COP17 á endurheimt lands, sjálfbæra landnýtingu og uppbyggingu fagþekkingar tengjast því starfi Landgræðsluskólans með beinum hætti. Á þinginu var sjónum meðal annars beint að beitilöndum (e. rangelands) og sjálfbærri nýtingu þeirra, en árið 2026 er Alþjóðlegt ár beitilanda og hirðingjasamfélaga.

Eitt af framlögum Íslands til alþjóðlegs samstarfs á þessu sviði er þekkingaruppbygging í þróunarlöndum í gegnum skóla GRÓ þekkingarmiðstöðvar. Undir merkjum GRÓ starfa, auk Landgræðsluskólans, Jarðhitaskólinn, Sjávarútvegsskólinn og Jafnréttisskólinn í samstarfi við UNESCO. Starf Landgræðsluskólans byggir jafnframt á langri reynslu Íslands af landgræðslu og endurheimt vistkerfa. Sú reynsla hefur þróast í meira en heila öld, fyrst í gegnum starf Landgræðslunnar og nú Lands og skóga, og er mikilvægur grunnur að framlagi Íslands til alþjóðlegs samstarfs á þessu sviði.

Þátttakendur í ráðstefnunni ásamt fyrrverandi nemendum.

Langt samstarf Íslands og Mongólíu

Mongólía hefur verið samstarfsland Landgræðsluskólans frá stofnun hans árið 2007. Nú þegar hafa 44 sérfræðingar frá Mongólíu útskrifast úr skólanum og margir þeirra gegna mikilvægum störfum í heimalandinu á sviði landnýtingar, vöktunar, rannsókna og endurheimtar vistkerfa. Fjöldi fyrrum nemenda skólans tók virkan þátt í þinginu, meðal annars á hliðarviðburði sem Landgræðsluskólinn hélt ásamt samstarfsstofnuninni Green Gold–Mongolian Rangeland Research Centre. Viðburðurinn var haldinn með stuðningi utanríkisráðuneytisins og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins og bar yfirskriftina Partners in Restoration: Iceland and Mongolia for Resilient Social-Ecological Landscapes. Þar var fjallað um hvernig samstarf, þekking, fagleg þjálfun og tengslanet geta stuðlað að varanlegri endurheimt og auknu viðnámsþoli vistkerfa og samfélaga.

Hliðarviðburðurinn dró þannig fram langt og farsælt samstarf Íslands og Mongólíu sem hefur staðið yfir í nær tvo áratugi. Samstarfið er gott dæmi um hvernig nám og þekkingarmiðlun geta orðið grunnur að langtímasamstarfi milli einstaklinga, stofnana og landa og stuðlað að uppbyggingu öflugs faglegs tengslanets.

Í tengslum við ferðina til Mongólíu heimsótti starfandi forstöðumaður Landgræðsluskólans jafnframt ýmsar samstarfsstofnanir, meðal annars háskóla, ríkisstofnanir og frjáls félagasamtök. Slíkar heimsóknir eru mikilvægur liður í að viðhalda og efla samstarf við lykilstofnanir, skapa vettvang fyrir áframhaldandi þekkingarmiðlun og styðja faglega þróun og samstarf.

Þessi tengsl eru jafnframt mikilvægur þáttur í að styrkja það öfluga samfélag fyrrum nemenda Landgræðsluskólans sem byggst hefur upp í Mongólíu. Markmiðið er að þekkingin, færnin og faglegu tengslin sem verða til í gegnum námið haldi áfram að þróast og nýtast í störfum, rannsóknum og nýjum verkefnum. Þannig verður námið ekki endapunktur heldur upphaf að langtímasamstarfi þar sem þekkingu er miðlað áfram, hún aðlöguð að nýjum aðstæðum og ný tengsl og verkefni verða til.

Endurheimt snýst ekki aðeins um að planta trjám

Eitt af því sem kom skýrt fram í erindum og umræðum á hliðarviðburðinum var mikilvægi þess að horfa á endurheimt vistkerfa í víðu samhengi. Endurheimt snýst ekki aðeins um að planta trjám eða ráðast í einstakar landgræðsluaðgerðir, heldur um að skapa þær vistfræðilegu og félagslegu aðstæður sem gera vistkerfum kleift að ná sér á strik, viðhalda virkni sinni og þróast til lengri tíma.

Þar skiptir meðal annars máli að horfa til þeirra samfélaga sem hafa sterk tengsl við landið, nýta það og byggja afkomu sína á því. Langtímarannsóknir og vöktun gegna jafnframt lykilhlutverki við að meta ástand og árangur, styðja við upplýsta ákvarðanatöku og efla viðnámsþrótt vistkerfa og samfélaga gagnvart vaxandi áskorunum, meðal annars vegna loftslagsbreytinga og hnignunar líffræðilegrar fjölbreytni.

Þótt Ísland og Mongólía séu um margt ólík lönd standa þau frammi fyrir ýmsum sambærilegum áskorunum, svo sem landeyðingu, beitarálagi, viðkvæmum vistkerfum og þörf fyrir sjálfbæra landnýtingu, langtímavöktun og góða stjórnun. Í báðum löndum skiptir máli að finna jafnvægi milli nýtingar lands og þess að viðhalda eða endurheimta getu vistkerfa til að standast álag, endurnýja sig og halda áfram að veita samfélögum mikilvægan ávinning.

Reynsla Íslands af landgræðslu og endurheimt vistkerfa getur verið mikilvægt framlag til alþjóðlegs samstarfs. Jafnframt getur Ísland lært mikið af reynslu annarra landa, meðal annars Mongólíu, af samspili landnýtingar, vistkerfa og samfélaga. Slíkt langtímasamstarf byggir því ekki aðeins á miðlun þekkingar í eina átt heldur á gagnkvæmu námi, faglegum tengslum og sameiginlegri þekkingaruppbyggingu sem getur stuðlað að betri og varanlegri árangri við endurheimt vistkerfa.

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna
Fréttir 1. október 2026

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna

Magnús Kristjánsson hefur verið skipaður í embætti forstjóra Stofnunar atvinnuve...

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum
Fréttir 30. september 2026

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum

First Water og Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar byggingarframkvæmd...

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir
Fréttir 30. september 2026

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hrys...

Reglugerð gefin út
Fréttir 30. september 2026

Reglugerð gefin út

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur gefið út reglugerð um kortlagningu ...

Játar innbrot í eldisbú
Fréttir 30. september 2026

Játar innbrot í eldisbú

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og hefur hann játað á sig innbrot og eig...

Minni kornstuðningur  en áætlað var
Fréttir 30. september 2026

Minni kornstuðningur en áætlað var

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár verður framlag stjórnvalda til stuðnin...

Vilja stytta bilið frá býli að borði
Fréttir 29. september 2026

Vilja stytta bilið frá býli að borði

Nýundirritaður þriggja ára samstarfssamningur á milli Landbúnaðarháskóla Íslands...

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun
Fréttir 29. september 2026

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun

Uppskera er verkefni á vegum GETA-samtakanna þar sem fjölskyldur fá ræktunarreit...