Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Kýrnar í Holtseli hafa aðgang að grænfóðri skammt frá fjósinu. Þar er rafgirðing færð tvisvar til þrisvar á dag.
Kýrnar í Holtseli hafa aðgang að grænfóðri skammt frá fjósinu. Þar er rafgirðing færð tvisvar til þrisvar á dag.
Mynd / GJG
Líf&Starf 17. ágúst 2016

Frjáls útivera kúnna í Holtseli

Höfundur: Kristján Gunnarsson, ráðgjafi
Á bænum Holtseli í Eyja­fjarðar­sveit hefur til langs tíma verið rekið myndarlegt kúabú og hefur löngum þótt glæsilegt heim að líta, enda ábúendur þar engir nýgræðingar í búskap. Búið hefur síðustu áratugi verið eitt af stærri mjólkurframleiðslubúum á Eyjafjarðarsvæðinu og alla tíð þótt afar glæsilegt, byggingum vel við haldið og umhverfið snyrtilegt. 
 
Þarna búa hjónin Guðrún Egilsdóttir og maður hennar, Guðmundur Jón Guðmundsson. Þau voru á sínum tíma brautryðjendur í framleiðslu á heimagerðum ís, og reka enn ísgerð og fallegt ísréttaveitingahús á fjósloftinu. 
 
Ísframleiðslan hófst 23. apríl 2006 og eru ábúendur í Holtseli fyrstir íslenskra bænda til að framleiða mjólkur- og rjómaís úr eigin mjólk. 
 
Í Holtseli er rekin Beint frá býliverslun sem býður upp á ýmsar vörur „Beint frá býli“-framleiðenda úti um land allt. 
 
Mjaltaþjónn bætist í búskapinn
 
Fyrir tæpu ári síðan var breytt um mjaltatækni og keyptur Delaval mjaltaþjónn af Bústólpa ehf. og var kosið að hafa sk. stýrða umferð eins og algengast er með þessa tegund mjaltaþjóna. 
Kýrnar í Holtseli eru greinilega hrifnar af tækninýjungum því það var eins og þær hefðu verið mjólkaðar í mjaltaþjóni í tugi ára og voru engin vandamál sem dúkkuðu upp þegar þær fóru að mjólkast með nýrri og annarri tækni. 
 
Aðspurður um það hvernig til hefði tekist þegar mjaltaþjónn var tekinn í notkun að leyfa kúnum áfram að ganga við opið, segir Guðmundur að það hefði gengið vel. 
 
„Við höfum í nokkur ár leyft kúnum að hafa opinn aðgang að fjósinu allan sólarhringinn þar sem þær hafa bæði haft hey og fóðurbæti og eru þær vanar að nýta sér það. Þær rölta út og inn nokkrar ferðir á dag. Ef veður er ekki gott kjósa þær að liggja inni, einnig á nóttunni. 
 
Kýrnar ganga frjálsar út og inn
 
Þegar við tókum í notkun nýjan mjaltaþjón síðastliðið haust höfðum við dálitlar áhyggjur af því að erfitt yrði að leyfa kúnum að fara út á sömu forsendum og áður, en þær áhyggjur voru með öllu ástæðulausar. Núna lokum við aldrei fjósinu og kýrnar ganga frjálsar út og inn. 
Fyrstu 1–2 vikurnar sóttum við þær einu sinni til tvisvar á dag og rákum þær inn, en flokkunarhliðið við mjaltaþjóninn hleypti þeim út sem ekki voru komnar með mjaltaheimild. Það að hafa flokkunarhlið gerir þetta allt saman mikið þægilegra og auðveldara á allan átt. Og forsenda þess að hægt sé að leyfa kúnum að ganga frjálsar,“ segir Guðmundur og bætir við að þau hafi jafnvel séð kýr sem ekki vildu fara út fara inn beint aftur, þær hafi valið. 
 
„Nú erum við nánast alveg hætt að þurfa að skipta okkur af kúnum til að reka þær í mjaltir. Þær kjósa að koma inn að kvöldinu og liggja inni yfir nóttina, en byrja að tínast út snemma á morgnana að mjöltun loknum. Það fer svo eftir veðri hvað þær eru fljótar að koma sér á beit. Ef kalt er í veðri eða rigning kjósa þær oft flestar að liggja inni mestan part dagsins, skjótast kannski stutta stund á beitina. Þar sem þær hafa aðgang að grænfóðri skammt frá fjósinu. Þar færum við rafgirðingu tvisvar til þrisvar á dag,“ segir Guðmundur. 
 
Hver er helsti ávinningur frjálsrar útiveru? 
 
„Við teljum útivist og hreyfingu ekki síður nauðsynlega fyrir kýrnar en mannfólkið og okkar reynsla er sú að mörg vandamál séu úr sögunni þegar kýrnar komast út á vorin. Auðvitað er æskilegt að bithaginn sé ekki langt frá fjósinu svo kýrnar eigi auðvelt með að rölta á milli að vild,“ segir Guðmundur. 
 
Hann telur ávinninginn við útiveru kúnna vera hraustari kýr og hærri nyt auk vinnusparnaðar við þrif og fóðrun. „Það er okkar skoðun og byggð á reynslu,“ segir Guðmundur Jón Guðmundsson í Holtseli.

4 myndir:

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...

Málþing í tilefni af degi landbúnaðarins
Fréttir 8. október 2026

Málþing í tilefni af degi landbúnaðarins

Dagur landbúnaðarins verður haldinn í dag, 8. október, í Sjálfstæðissalnum á Par...

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna
Fréttir 1. október 2026

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna

Magnús Kristjánsson hefur verið skipaður í embætti forstjóra Stofnunar atvinnuve...

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum
Fréttir 30. september 2026

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum

First Water og Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar byggingarframkvæmd...

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir
Fréttir 30. september 2026

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hrys...