Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Dömurnar sem veittu kaffi hjá Sniglum 1. maí voru alsælar með hitann rá ofninum í kaffitjaldinu.
Dömurnar sem veittu kaffi hjá Sniglum 1. maí voru alsælar með hitann rá ofninum í kaffitjaldinu.
Mynd / HLJ
Á faglegum nótum 23. maí 2016

AIRREX-hitara á pallinn, upplagðir í stór rými og eru fljótir að hitna

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson
Þann 1. maí síðastliðin fór ég í árlega hópkeyrslu Snigla til að minna á að það séu mótorhjól í umferðinni. Eins og svo oft áður var hitastigið ekkert til að hrópa húrra fyrir og því gott að koma við í kaffisölutjaldinu hjá Sniglunum.
 
Á meðan ég beið í röðinni fann ég að mér hitnaði ótrúlega hratt eftir því sem nær kaffikönnunni var komið, það var eins og að sólargeislar væru að skína á andlitið á mér þarna í rigningunni. Ástæðan var lítill ofn í horni sölutjaldsins sem sendi frá sér hitageisla, það var ekkert of heitt fyrir afgreiðslu­dömurnar sem stóðu alveg við ofninn. Eftir helgina heimsótti ég Jón Hafstein, innflytjanda og söluaðila ofnsins í verslunina JHM Sport, og spurði út í galdur ofnsins og möguleika.
 
Jón sagðist hafa lánað Sniglunum ofninn sem heitir Arrex AH 300 og er 15Kw, en hefur nokkrum sinnum lánað þennan ofn í samkomu­tjöld. Ofninn gengur fyrir rafmagni og dísil, eyðir svipað af rafmagni og 80w ljósa­pera á klukkutíma og brennir 1,2 lítrum af dísil á klukkutíma.
 
Margar stærðir og gerðir af Airrex-hiturum
 
Aðspurður um sölu og notkun ofnanna sagði Jón að fyrsti 15 Kw Arirex-ofninn hafi farið í vélaskemmu rétt hjá Raufarhöfn og þann ofn sá fiskverkandi á Raufarhöfn sem nú hitar upp fiskverkunarskemmu með 22Kw ofni og lætur vel af ofninum. 
 
Í boði eru margar mismunandi gerðir af Airrex-hiturum, allt frá 1100 w sem henta vel á sólpalla og lítil rými upp í 22 Kw raf- og dísilknúna sem hita upp stórar skemmur og vöruhús. Kosturinn við ofnana er að ekki þarf að hita upp rýmið löngu áður en maður byrjar að vinna, það er nóg að setja Airrox-ofninn í gang þegar vinna byrjar. 
 
Þegar ofnarnir eru í gangi virka þeir svipað og að sólin sé að skína á mann þar sem að ofnarnir gefa frá sér innfrarauðan geisla sem líkir eftir sólargeisla. 
 
Verðið er mismunandi, en sá litli, 1100 w, kostar 26.900 krónur og dýrasti, 22 Kw, kostar 759.000 krónur. 
Íslenskt handverk í hávegum
Fréttir 22. ágúst 2026

Íslenskt handverk í hávegum

Safnasafnið, ein af perlum Eyjafjarðar, var stofnað þann 17. febrúar 1995 af hjó...

Svigrúm til breytinga á stuðningskerfi landbúnaðar
Fréttir 21. ágúst 2026

Svigrúm til breytinga á stuðningskerfi landbúnaðar

Atvinnuvegaráðuneytið hefur birt áfangaskýrsluna Greining vegna endurskoðunar st...

Beint frá býli dagurinn um helgina
Fréttir 20. ágúst 2026

Beint frá býli dagurinn um helgina

Beint frá býli dagurinn verður haldinn sunnudaginn 23. ágúst. Þetta er fjórða ár...

Halla Sif ein af 100 kvenhetjum FAO
Fréttir 20. ágúst 2026

Halla Sif ein af 100 kvenhetjum FAO

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis h...

Ný útgáfa af Brennu-Njálssögu væntanleg
Fréttir 20. ágúst 2026

Ný útgáfa af Brennu-Njálssögu væntanleg

Njálufélagið undirbýr nýja og glæsilega útgáfu Njálu með haustinu en fyrirhugaðu...

Dagskrá Ullarvikunnar gleður
Fréttir 18. ágúst 2026

Dagskrá Ullarvikunnar gleður

Ullarvika verður haldin á Suðurlandi dagana 27. september til 3. október í haust...

Rannsókn á jarðhitakerfi Fáskrúðsfjarðar
Fréttir 17. ágúst 2026

Rannsókn á jarðhitakerfi Fáskrúðsfjarðar

Fjarðabyggð undirbýr nú næsta áfanga jarðhita- leitar á Fáskrúðsfirði, en áforma...

Rannsóknasetur íslenska hestsins
Fréttir 17. ágúst 2026

Rannsóknasetur íslenska hestsins

Nú er unnið að því að koma upp rannsóknasetri íslenska hestsins á Hólum í Hjalta...