Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
111 bæir sérhæfa sig í eldi holdanauta
Mynd / ál
Fréttir 23. febrúar 2026

111 bæir sérhæfa sig í eldi holdanauta

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Kýr á holdanautabúum eru 3.333 og fæddust 2.466 kálfar á þessum búum á síðasta ári. Nautakjötsframleiðsla á holdanautabúum árið 2025 dróst saman um 54 tonn í fyrra samanborið við 2024.

Meðalfjöldi kúa á hverju holdanautabúi var 30. Af þeim 111 búum sem sérhæfa sig í nautakjötsframleiðslu eru 90 með kýr af erlendu kyni. Heildarfjöldi slátraðra gripa frá þessum búum á síðasta ári var 2.909, sem er 265 gripum færra en árið áður. 9.307 ungneytum var slátrað á landinu öllu ef tekin eru með naut frá hefðbundnum kúabúum.

Meðalfallþungi ungneyta á landinu öllu var 261 kílógramm við 737 daga aldur. Sé horft til þeirra 111 búa sem sérhæfa sig í nautakjötsframleiðslu var fallþungi ungneyta að meðaltali 277 kílógrömm og þeim fargað að jafnaði 706 daga gömlum. Þessi 111 bú framleiða nálægt 17 prósent nautakjöts á landinu.

Frá þessu er greint í samantekt Guðmundar Jóhannessonar og Sigurðar Kristjánssonar hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins um skýrsluhaldsárið í nautakjötsframleiðslunni 2025 á síðum 40–41 í þessu blaði. Þeir segja þau bú sem sérhæfa sig í nautakjötsframleiðslu ná betri árangri en önnur kúabú og að bilið milli þessara gerða búa fari vaxandi. Eins var meðalflokkun ungneyta frá þessum búum 6,4, samanborið við 5,1 yfir landið allt. Sé horft til afkomutalna eru mestar framfarir á þeim búum sem notast við angus-erfðaefnið.

Sæddar kýr á holdanautabúunum voru 478, af þeim voru 396 af erlendu kyni. Að jafnaði voru kýrnar sæddar 1,3 sinnum og að meðaltali liðu 92,3 dagar frá burði til fyrstu sæðingar. Þær kýr sem voru sæddar voru því nálægt því að bera á 12 mánaða millibili, sem Sigurður og Guðmundur segja gott að stefna að. Til samanburðar eru að jafnaði 15 mánuðir milli burða sé horft til allra kúa á holdanautabúum.

Íslenskt handverk í hávegum
Fréttir 22. ágúst 2026

Íslenskt handverk í hávegum

Safnasafnið, ein af perlum Eyjafjarðar, var stofnað þann 17. febrúar 1995 af hjó...

Svigrúm til breytinga á stuðningskerfi landbúnaðar
Fréttir 21. ágúst 2026

Svigrúm til breytinga á stuðningskerfi landbúnaðar

Atvinnuvegaráðuneytið hefur birt áfangaskýrsluna Greining vegna endurskoðunar st...

Beint frá býli dagurinn um helgina
Fréttir 20. ágúst 2026

Beint frá býli dagurinn um helgina

Beint frá býli dagurinn verður haldinn sunnudaginn 23. ágúst. Þetta er fjórða ár...

Halla Sif ein af 100 kvenhetjum FAO
Fréttir 20. ágúst 2026

Halla Sif ein af 100 kvenhetjum FAO

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis h...

Ný útgáfa af Brennu-Njálssögu væntanleg
Fréttir 20. ágúst 2026

Ný útgáfa af Brennu-Njálssögu væntanleg

Njálufélagið undirbýr nýja og glæsilega útgáfu Njálu með haustinu en fyrirhugaðu...

Dagskrá Ullarvikunnar gleður
Fréttir 18. ágúst 2026

Dagskrá Ullarvikunnar gleður

Ullarvika verður haldin á Suðurlandi dagana 27. september til 3. október í haust...

Rannsókn á jarðhitakerfi Fáskrúðsfjarðar
Fréttir 17. ágúst 2026

Rannsókn á jarðhitakerfi Fáskrúðsfjarðar

Fjarðabyggð undirbýr nú næsta áfanga jarðhita- leitar á Fáskrúðsfirði, en áforma...

Rannsóknasetur íslenska hestsins
Fréttir 17. ágúst 2026

Rannsóknasetur íslenska hestsins

Nú er unnið að því að koma upp rannsóknasetri íslenska hestsins á Hólum í Hjalta...