Jósef Omarsson, 15 ára, vann A-flokkinn.
Jósef Omarsson, 15 ára, vann A-flokkinn.
Líf og starf 7. október 2026

Ungir vinna Haustmótið

Höfundur: Gauti Páll Jónsson

Haustmót Taflfélags Reykjavíkur kláraðist í síðustu viku með öruggum sigri Jósefs Omarssonar. Jósef, sem er 15 ára, vann A-flokk mótsins mjög örugglega með 8½ vinning eftir skákirnar 9. Eini punkturinn sem hann missti niður var jafntefli gegn greinarhöfundi! Sú skák var í járnum mestallan tímann. Jósef tefldi gríðarlega vel í mótinu og gerði fá mistök. Reyndar hélt ég að nú væri tækifærið mitt til að verða skákmeistari TR, en ekki í ár, Jósef var óstöðvandi! Eftir mótið rýfur hann 2200 stiga múrinn, en hann hækkar um 132 stig eftir árangurinn. Jósef er í hópi þeirra yngstu sem hafa orðið skákmeistarar TR, og þá sérstaklega þeirra sem hafa unnið A-flokkinn, það þarf reyndar að skoða hvort hann hafi slegið það met. Bárður Örn Birkisson var vinningi á eftir Jósef í öðru sæti, greinarhöfundur þriðji með sex vinninga. Í A-flokki tefldu tíu skákmenn allir við alla.

Helgi Fannar Óðinsson, 8 ára, vann opna flokkinn.

Aðeins einn lokaður flokkur var í mótinu í ár, en opni flokkurinn var vel skipaður ungum skákmönnum í bland við eldri og reynslumeiri. Sigurvegari flokksins hefur þó varla verið á bingóspjaldi margra. Það var hinn átta ára gamli (!) Helgi Fannar Óðinsson sem vann ofan á það ótrúlega öruggan sigur. Helgi var búinn að vinna flokkinn fyrir síðustu umferð, slíkir voru yfirburðir hans! Í opna flokknum voru tefldar níu umferðir eftir svissneska kerfinu og var Helgi nr. 16 í byrjunarröð (starting rank) af 27 keppendum. Það voru því ungir sigrar á Haustmóti TR 2026!

Ólympíuskákmótið er hafið og er árangur íslensku liðanna nokkurn veginn á pari. Fjallað er um mótið á skák.is. Reyndar hafa líka Facebook-færslur Illuga Jökulssonar um mótið vakið nokkra lukku. Þegar greinin er skrifuð er mótið nýbyrjað, en því verður gert betri skil í næsta pistli. Landslið Íslands í opnum flokki er númer 48 í byrjunarröð af 206 landsliðum. Í kvennaflokki er lið Íslands númer 58 af 189. Auðvitað er það markmið beggja liða, í það minnsta, að enda fyrir ofan byrjunarröðina!

Ef lesendur Bændablaðsins luma á áhugaverðum skákum geta þeir haft samband.

Umsjón: Gauti Páll Jónsson

gauti.pj[hjá]hotmail.com

Skylt efni: Skák | Hugaríþrottir

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...