Skjóllundir – fyrir hvað?
Á faglegum nótum 7. október 2026

Skjóllundir – fyrir hvað?

Höfundur: Árni H. Arnórsson
Árni H. Arnórsson.

Skjóllundir eru litlir skógarreitir sem hafa þann helsta tilgang að veita skjól. Skjóllundarækt getur verið ágætis kostur við jaðra tún- og kornræktar. Þeir geta orkað svipað og skjólbelti, brotið vind og aukið uppskeru nálægra túna. Hægt er að planta í melkolla milli túna eða jafnvel í mjóa og/eða óreglulega túnbleðla sem erfitt er að nýta með sífellt stærri traktorum nútímans. Slíkir sneplar í og við tún og beitilönd geta einnig veitt skepnum skjól. Skjóllundir henta vel í landi sem þykir erfitt að nýta með beit og akuryrkju.

Þótt aðalmarkmið skjóllunda sé að veita skjól, má líka skipuleggja þá sem litla timburauðlind, hagaskóga, eða landgræðslusvæði. T.d. reynist vel að planta lerki í melkolla; þar sem skjólið og nálarnar af lerkinu styðja við jarðvegsmyndun. Til eru dæmi um 20 ára lerkireiti sem hafa, án áburðar, breytt melnum undir sér í graslendi sem má beita. Hægt er að skipuleggja marga litla birkireiti sem munu sá út frá sér með tíð og tíma, fái nærsvæðið friðun frá beit. Nokkur reynitré geta verið viðkomustaður þrasta sem gleypa berin og dreifa fræjunum á leið til næsta reitar. 

Dæmigert svæði fyrir skjóllund. Hér er vannýttum melkolli breytt í vænan lund sem veitir túnunum skjól. Mynd / Fífa Jónsdóttir (2026)

Land og skógur býður upp á ráðgjöf og styrk í formi plantna á allt að 10 hektara svæði á óskiptri jörð. Skjóllundirnir geta verið hvernig sem er að lögun og þurfa ekki að vera samtengdir. Oftast er miðað við að fella reitina að landinu eða innan núverandi girðinga. Í vissum sveitarfélögum þarf að óska framkvæmdaleyfis frá sveitarstjórn áður en farið er af stað að planta. 

Skjóllundasamkomulag sem gert er við Land og skóg dugar til 5 ára og verða að lokum þess tíma allir þeir skjóllundir sem urðu til í gegnum samkomulagið að fullu í eigu landeiganda. Þetta samkomulag má endurnýja ef ekki næst að planta í öll fyrirhuguð svæði innan setts tíma. Samkvæmt nýrri reglugerð (nr. 50/2026) þarf jörðin ekki lengur að vera lögbýli og geta því fleiri landeigendur átt þennan kost í dag.

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við skógræktarráðgjafa Lands og skógar í sínum landshluta og/eða sækja um á island.is undir skógrækt og svo skjólbeltarækt.

Fyrir stórhuga skógarbændur (>10ha) vil ég benda á verkefnið Skógrækt á lögbýlum. Þar eru fríðindin meiri en í skjóllundarækt, en kvaðirnar fleiri á móti og samningar sem gilda í 40 ár. Fleiri upplýsingar má finna á land.is undir skógrækt.

Höfundur er skógræktarráðgjafi hjá Landi og skógi.

Skylt efni: Land og skógur

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...