Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Forgangsröðun við meðhöndlun úrgangs (úrgangsþríhyrningurinn).
Forgangsröðun við meðhöndlun úrgangs (úrgangsþríhyrningurinn).
Mynd / Stefnan Saman gegn sóun
Fréttir 6. febrúar 2026

Sérstakt markmið að draga úr myndun úrgangs

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur kynnt nýja stefnu um úrgangsforvarnir, Saman gegn sóun, og samsvarandi aðgerðaáætlun til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

Í gildi hefur verið stefna með sama heiti frá 2016 og var það fyrsta stefna sinnar tegundar sem hefur það að sérstöku markmiði að draga úr myndun úrgangs. Hún gildir til ársins 2027 en ráðherra ber að endurmeta gildandi stefnu í þessum málum að lágmarki á sex ára fresti, hvort þörf sé á að endurskoða hana. Hefur það verið gert og vinna við nýja stefnu staðið yfir frá 2023 og mun hún gilda á tímabilinu 2026 til 2037.

Margvíslegur ávinningur úrgangsforvarna

Í inngangi að stefnunni segir að úrgangsforvarnir gegni lykilhlutverki í sjálfbærri nýtingu auðlinda og hafi jafnframt margvíslegan ávinning í för með sér. Þær dragi úr fjárhagslegum og umhverfislegum kostnaði, séu undirstaða virks hringrásarhagkerfis og órjúfanlegur hluti af vegferð Íslands í umhverfisog loftslagsmálum.

Með því að leggja áherslu á nýtni, nægjusemi, endingu, gæði, deilihagkerfi, viðgerðir og aðra þætti úrgangsforvarna megi fyrirbyggja að úrgangur verði til og dregið úr þörfinni fyrir sífellt meiri nýtingu á auðlindum til framleiðslu. Markvissar úrgangsforvarnir hafi þannig víðtæk og jákvæð áhrif í gegnum alla virðiskeðjuna, frá hráefnisvinnslu til neyslu og úrgangsmeðhöndlunar.

Forgangsröðun úrgangsþríhyrnings

Samkvæmt stefnunni geta úrgangsforvarnir dregið úr þörfinni fyrir kostnaðarsamar meðhöndlunarlausnir, eins og brennslu og urðun – og hjálpað til við að færa Ísland nær markmiðum sínum í loftslagsmálum.

Unnið sé eftir skýrri forgangsröðun sem bundin sé í lög um meðhöndlun úrgangs, sem kennd er við „úrgangsþríhyrninginn“. Úrgangsþríhyrningurinn er grundvöllur að allri stefnumótun í úrgangsmálum. Þannig tróna úrgangsforvarnir efst í þeim þríhyrningi og flokkast ekki sem úrgangur. Þegar úrgangur hefur myndast eru ýmsar leiðir til að meðhöndla hann.

Í stefnunni segir að því ofar sem aðgerð er í úrgangsþríhyrningnum því fýsilegri er sá valkostur. Samkvæmt úrgangsþríhyrningnum eru úrgangsforvarnir því mikilvægastar allra úrgangsaðgerða, því næst undirbúningur fyrir endurnotkun, endurvinnsla, önnur endurnýting og lakasti kosturinn er förgun.

Tekur til sex efnisflokka

Í stefnunni segir að úrgangsforvarnir eigi við um allan úrgang sem myndast á Íslandi. Í stefnunni er hins vegar lögð áhersla á sex efnisflokka, sem talin er vera ástæða til að leggja sérstaka áherslu á; matvæli, textíl, byggingar, raftæki, umbúðir, þýðingarmikið hráefni.

Um matvæli segir í stefnunni, að þar undir falli meðal annars matarsóun, sem sé áskorun sem hafi ekki einungis í för með sér óþarfa auðlindanýtingu heldur sé hún stórt loftslagsmál sem tengist beint efnahag fólks í landinu. Nauðsynlegt sé að vinna markvisst að minni matarsóun.

Ótímasettar 24 aðgerðir

Í aðgerðaáætluninni eru settar fram 24 ótímasettar aðgerðir undir fimm flokkum; aðgerðir sem felast í fjárhagslegum hvötum, aðgerðir tengdar vitundarvakningu og fræðslu, aðgerðir tengdar regluverki og opinberum innkaupum, aðgerðir tengdar leiðbeiningum til fyrirtækja og aðgerðir sem miða að bættum gögnum.

Aðgerðir eiga að vinna að framgangi stefnunnar fyrstu þrjú ár gildistíma hennar.

Drögin að stefnunni verða til umsagnar í samráðsgátt til 2. mars.

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...