Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Axel Sæland, formaður garðyrkjudeildar Bændasamtaka Íslands og blómabóndi, þarf ekki að hækka vöruverð.
Axel Sæland, formaður garðyrkjudeildar Bændasamtaka Íslands og blómabóndi, þarf ekki að hækka vöruverð.
Mynd / smh
Fréttir 12. febrúar 2026

Raforkukostnaður lækkar hjá garðyrkjubændum

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Garðyrkjubændum með vaxtarlýsingu hefur nýlega boðist að lækka raforkukostnað sinn talsvert.

Axel Sæland, formaður garðyrkjudeildar Bændasamtaka Íslands, segir að tímabundið ástand á raforkumarkaði hafi leitt til þess að raforkusalar buðu betra verð. Vísar Axel þar til þess að vegna bilunar í álveri Norðuráls og rekstrarstöðvunar PCC við Húsavík á síðasta ári varð talsvert af umfram raforku til staðar í landinu.

Bændum boðin 25% lækkun

Óli Finnsson, sem á og rekur garðyrkjustöðina Heiðmörk í Laugarási, segir að hann fylgi sama verði og HS Orka hafi boðið öðrum garðyrkjubændum, sem þýðir 25% lækkun.

Hann telur að langflestir bændur í ylrækt á Íslandi séu hjá HS Orku.

Hækkuðu ekki vöruverð

„Ég vona að þetta hafi orðið til þess að allir garðyrkjubændur sem eru með vaxtarlýsingu hafi fengið betra verð,“ segir Axel. „Þar sem hver og einn garðyrkjubóndi gerir sína samninga get ég ekki talað hér fyrir alla. Við á Espiflöt, sem erum í blómarækt, vonumst til að þetta verði til þess að ná allt að 5% rekstrarhagræðingu á árinu 2026 ef allt gengur upp.

Því tókum við þá ákvörðun að hækka ekki vöruverð um áramótin, þrátt fyrir verbólgu síðasta árs og þær launahækkanir sem tóku gildi núna um áramótin.

Þannig viljum við að neytendur njóti þess með okkur að raforkuverð hafi lækkað núna um áramótin.“

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...