Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Óttast kostnað af tilflutningi eftirlits
Mynd / Úr safni
Fréttir 9. apríl 2026

Óttast kostnað af tilflutningi eftirlits

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Deild alifuglabænda í Bændasamtökum Íslands sendi frá sér ályktun þar sem því var beint til stjórnar að kanna hvaða kostnaður muni hlotnast af því að flytja verkefni frá heilbrigðisteftirliti sveitarfélaga til Matvælastofnunnar (MAST).

Í rökstuðningi segir að stjórnvöld hafi boðað breytingar á fyrirkomulagi eftirlits og útgáfu starfsleyfa þar sem verkefni sem nú eru að hluta til á höndum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga verða færð til MAST og Umhverfis og orkustofnunnar (UOS). Slíkar breytingar geta haft veruleg áhrif á framkvæmd eftirlits, stjórnsýslu og þann kostnað sem fellur á bændur í mismunandi búgreinum.

Í dag annast heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga útgáfu starfsleyfa og eftirlit með umhverfisþáttum í starfsemi margra búrekstra, sérstaklega smærri rekstrareininga. Stærri starfsemi fellur hins vegar undir UOS. Af fyrirliggjandi gögnum má þó ætla að fyrirhugaðar breytingar geti haft í för með sér að fleiri bú, óháð búgrein eða stærð, falli undir gjaldskrár og verklag UOS.

Samanburður á gjaldskrám bendir til þess að slíkar breytingar geti haft veruleg áhrif á kostnað við útgáfu starfsleyfa og eftirlit. Til dæmis má nefna alifuglarækt þar sem kostnaður við útgáfu starfsleyfis hjá heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga er nú fast gjald fyrir tvo tíma, eða um 44.000 kr., auk árlegs eftirlitsgjalds um 82.000 kr. Samkvæmt gjaldskrá UOS er hins vegar innheimt tímagjald fyrir vinnu við útgáfu starfsleyfis, að lágmarki 40 klukkustundir á 22.400 kr. á klukkustund. Lágmarkskostnaður vegna starfsleyfis gæti því numið um 896.000 kr., auk 165.000 kr. fyrir vettvangsheimsókn, eða samtals að minnsta kosti um 1.060.000 kr.

Þar sem ekki virðist vera sérstök gjaldskrá fyrir minni rekstrareiningar gæti kostnaður minni búa margfaldast ef sama gjaldskrá gildir fyrir alla aðila. Ef slíkt fyrirkomulag yrði yfirfært á fleiri búgreinar gæti það haft víðtæk áhrif á rekstur bænda, sérstaklega minni og meðalstórra búrekstra.

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...