Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Félagsheimilið Vonaland á Ingjaldssandi í ágúst 2025.
Félagsheimilið Vonaland á Ingjaldssandi í ágúst 2025.
Mynd / ál
Lesendarýni 24. febrúar 2026

Opið bréf til atvinnuvegaráðherra

Höfundur: Pétur Kristinsson, 24 ára vélfræðingur og starfar til sjós

Í grunnstefnu Viðreisnar um atvinnumál segir: „Viðreisn vill styðja við fjölbreytni, nýsköpun og kynslóðaskipti í landbúnaði.“

Á þeim 14 mánuðum sem Viðreisn hefur verið í ríkisstjórn hef ég ekki orðið var við aðgerðir til að styðja við nýsköpun og kynslóðaskipti í landbúnaði.

Bújarðir eru nú, og hafa lengi verið, verðsettar langt umfram greiðslugetu þess sem hefðbundinn landbúnaður til matvælaframleiðslu býður upp á. Verðmiðinn miðast ekki við rekstur fjölskyldubúa, heldur ferðaþjónustu.

Innlendir sem erlendir auðmenn kaupa jarðir í síauknum mæli til að byggja hótel, baðlón og annars konar ferðaþjónustu, mannaða með ódýru innfluttu vinnuafli. Ferðaþjónusta er mikilvæg atvinnugrein, en hún má ekki ganga þannig fram að hún ryðji bændum burtu og geri búskap að forréttindum fjársterkra aðila en ekki að lifibrauði þeirra sem vilja framleiða matvæli. Því jú öll þurfum við að borða og flest viljum við velja íslenska framleiðslu.

Staðreyndirnar tala sínu máli. Samkvæmt rekstraryfirliti RML fyrir árið 2024 var tap á hvern framleiddan mjólkurlítra 12 krónur og tap á hvert kíló af nautakjöti 19 krónur.Við slíkar aðstæður gefur augaleið að ekki er hægt að byggja upp sjálfbæran búrekstur, hvað þá að bjóða ungu fólki raunhæfan möguleika á að hefja búskap.

Afleiðingarnar blasa við. Margar jarðir enda í eigu auðmanna, standa auðar stóran hluta ársins eða eru leigðar út. Leiguliðarnir bera áhættuna, standa undir taprekstri og neyðast til að vinna utan bús til að lifa af. Er þetta sú framtíð sem atvinnuvegaráðherra telur samræmast yfirlýstri stefnu Viðreisnar um nýliðun? Er verið að byggja upp öfluga og sjálfstæða bændastétt eða er verið að endurvekja samfélag húsbænda og vinnuhjúa?

Ríkissjóður Íslands á um 450 jarðir. Árið 2019 voru aðeins 111 þeirra í ábúð og 114 eyðijarðir í einhvers konar nýtingu. Að mínu mati er ríkið stærsti búskussi landsins. Á sama tíma og stjórnvöld tala linnulaust um fæðuöryggi og nýliðun í grein þar sem meðalaldur bænda nálgast eftirlaunaaldur, liggja ríkisjarðir í eyði eða grotna niður.

Ríkisjarðir hafa verið seint og illa auglýstar árum saman, með fyrirsjáanlegum afleiðingum: bústofni er slátrað, jarðir fara í eyði, húsakostur grotnar niður, tún fara í órækt og blómlegt mannlíf sveitanna lognast út af. Þetta er ekki náttúruleg þróun, þetta er afleiðing stefnu og aðgerðarleysis.

Ungt fólk vill stunda landbúnað. Vandinn er ekki skortur á vilja ungs fólks, stærsti vandinn er kerfi sem útilokar nýliðun og stjórnvöld sem horfa aðgerðalaus á.

Ef stjórnvöldum er alvara með fæðuöryggi, nýliðun og fjölbreytta byggð á landsbyggðinni, er kominn tími til að sanna það í verki.

Skrifað á Austfjarðamiðum í janúar 2026.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.