Fjölmargir arnarungar komnir á legg
58 arnarungar komust á legg í sumar. Varp fannst auk þess á þremur áður óþekktum stöðum og í einu hreiðri fundust stórir og hraustlegir þríburar sem þykir nokkuð sérstakt. Arnarvarpið í ár er talið í meðallagi samkvæmt upplýsingum á vef Náttúrufræðistofnunar.
Árlega eru um 100 óðöl heimsótt til að fylgjast með varpi og talið er að 78 þeirra hafi verið setin í ár. Af 61 pari kom 41 þeirra upp 58 ungum. Þessi fjöldi unga þykir með betra móti þó þetta merki einnig að fjöldi para sem varpið misfórst hjá hafi verið nokkur, eða um 20 pör. Aðeins var orpið á 61 af þeim 78 óðulum sem talin voru setin en fjöldi para sem urpu var svipaður og í fyrra. Einhver pör eiga óðal á hálendinu en flest, eða 90 óðöl, eru í ábúð á vestanverðu landinu frá Faxaflóa upp að Húnaflóa.
Arnarungar eru merktir til þess að fylgjast með stofninum. Í sumar náðist aðeins að merkja 52 unga í 37 hreiðrum. Bæði er það vegna þess að aðgengi var erfitt og vegna óhagstæðs tíðarfars sem leiddi til þess að merkingar drógust fram í ágúst en þá voru ungarnir orðnir fleygir þegar komið var að hreiðrinu. Ungarnir voru orðnir svo stórir og háfleygir að aðeins tókst að setja leiðarrita á tvo unga í sumar.
Leiðariti er sendir sem notaður er til að fylgjast með og skrá ferðir dýra. Á vef Náttúrufræðistofnunar kemur fram að gera megi ráð fyrir því að ernirnir beri leiðarritana alla ævi sé þeim komið fyrir. „Með tímanum verður því hægt að kortleggja ferðir þeirra og sjá hvaða leiðir þeir velja, hvar þeir dvelja og hve lengi þeir halda til á hverjum stað. Gögnin munu nýtast við mat á þýðingu einstakra svæða fyrir erni og við ákvarðanir um hvar beri að forðast framkvæmdir, til dæmis að reisa vindmyllur, enda eru þær örnum skeinuhættari en flestum öðrum fuglum.“ Örninn, sem háfleygur yfir fjöllin svífur, er mikið til umræðu í kringum vindorkuver þar sem þekkt er erlendis að stórir fuglar, líkt og hafernir, fljúgi í vindmyllur og farist.
Frá árinu 2019 upp til 2025 hefur 80 sendum verið komið fyrir á arnarungum. Af þeim eru 29 enn á lífi með virkan leiðarrita og að öllum líkindum við góða heilsu. Í dag er því 31 fugl á lífi með virkan leiðarrita. Á sama tíma í fyrra voru þeir 44 talsins en við lokun 3G farsímakerfisins fyrr á þessu ári var slökkt á átta sendum sem notuðu það kerfi. Haförninn er friðaður fugl og á válista yfir tegundir í hættu.
