Kýrin Plóma frá Gunnbjarnarholti sló Íslandsmet í framleiðslu mjólkur á síðasta ári. Aftan við hana standa Haukur Arnarsson, Berglind Bjarnadóttir og Arnar Bjarni Eiríksson, ábúendur í Gunnbjarnarholti.
Kýrin Plóma frá Gunnbjarnarholti sló Íslandsmet í framleiðslu mjólkur á síðasta ári. Aftan við hana standa Haukur Arnarsson, Berglind Bjarnadóttir og Arnar Bjarni Eiríksson, ábúendur í Gunnbjarnarholti.
Mynd / Aðsend
Fréttir 12. febrúar 2026

Nýr Íslandsmetshafi í ársafurðum

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Kýrin Plóma frá Gunnbjarnarholti mjólkaði 16.779 kílógrömmum af mjólk á síðasta ári, sem er nýtt Íslandsmet. Mest mjólkaði hún 53,3 kílógrömmum á dag.

Í samtali segir Arnar Bjarni Eiríksson, bóndi í Gunnbjarnarholti, Plómu vera vandræðalausan grip sem lítið fari fyrir í fjósinu. „Hún sér um sig sjálf, og þannig virkar það alltaf best. Hún drífur sig í mjaltaþjóninn þegar hún þarf á honum að halda, en hún er að mjólkast upp undir fjórum sinnum á dag þegar mest er í henni,“ segir hann.

Plóma er fædd í nóvember 2020 og bar sínum fyrsta kálfi 26 mánaða. Sínum öðrum kálfi bar Plóma 8. september og mánuði síðar var hún komin í 52,7 kílógramma dagsnyt. Hæst fór dagsnytin í 53,3 kílógrömm í janúar 2025 og hélst dagsnytin yfir 50 kílógrömmum fram í mars. Hún var enn í 16 kílógramma dagsnyt um áramótin en er komin niður í 14 kílóa framleiðslu um þessar mundir. „Hún ætti að fara í geldstöðu um mánaðamótin maí og júní og þá fær hún sína tveggja mánaða hvíld,“ segir Arnar Bjarni.

Sex nytháar systur

„Hún er komin fram yfir tíma núna, en vegna þess hve mikið hún mjólkaði festi hún ekki fang fyrr en núna rétt undir jól við sjöttu sæðingu. Næsti væntanlegi burður er 7. ágúst ef Guð lofar.“ Aðspurður hvort ekki hafi komið til greina að senda kúna í sláturhús þar sem illa gekk að sæða hana segir Arnar Bjarni hana hafa mjólkað svo gífurlega mikið að því hafi verið sýndur fullur skilningur að hún glímdi við ófrjósemi á meðan. „Við höfum það oft fyrir reglu að þegar kýr mjólka svona mikið reynum við ekki að sæða þær fyrr en þær eru komnar niður í 35 lítra dagsnyt, en Plóma mjólkaði að meðaltali 46 lítra á dag í 365 daga,“ segir hann. Nytin féll hjá henni skömmu áður en hún festi fang og um leið og hún var með kálfi minnkaði mjólkurframleiðslan enn meira.

Arnar Bjarni segir að Plóma sé undan heimanauti og eigi fimm samfeðra systur í fjósinu sem mjólkuðu yfir tíu þúsund lítra á síðasta ári. Í bæði skiptin hefur Plóma borið nauti og segir Arnar Bjarni að þau hafi verið send í sláturhús.

Einsleitt fóður og gott pláss

Meðalnyt kúna í Gunnbjarnarholti var með besta móti á síðasta ári. Aðspurður hver lykillinn sé að þeirri velgengni segir Arnar Bjarni: „Fyrst og síðast er það stabilitet í allri umhirðu og fóðrun – að það sé einsleitt fóður alltaf allt árið. Lykillinn á bak við mikla mjólkurframleiðslu er að kýrnar fái endalaust að éta og hafi gott aðgengi að fersku vatni og svo snýst þetta um að þær eiga að liggja mikið og jórtra.

Eins þarf aðbúnaðurinn að vera upp á það besta og nógu mikið pláss í fjósinu, opin göngusvæði og ekki troðningur við mjaltaþjóna. Sérstaklega svo að minni máttar kvígur eigi auðvelt með að komast að. Ef það er mjög þröngt halda þessar gömlu frekjuhlussur kvígunum frá.

Þetta snýst líka að miklu leyti um að nýta vaxtartíma kálfanna eins og kostur er og láta kvígurnar ekki vera of gamlar þegar þær bera. Plóma var reyndar 26 mánaða við fyrsta burð og maður vill ekki að kvígurnar séu mikið eldri.“

Ávaxtaþema þegar Plóma fékk nafn

Arnar segir Plómu vera fallega kú og vel skapaða að flestu leyti. „Blessunin mætti hins vegar vera svolítið leggjalengri upp á endingu að gera. Það sem verður þessum elskum flestum að aldurtila er að þær verða of síðjúgra til þess að mjaltaþjónninn ráði við þær. Ef allt er í standi ætti hún að geta mjólkað tvö til þrjú mjaltaskeið í viðbót.“

Aðspurður út í ástæðu þess af hverju kýrin fékk nafnið Plóma svarar Arnar Bjarni: „Það var ávaxtaþema þennan mánuðinn hjá betri helmingnum, Berglindi, sem nefnir alla gripi. Þegar það þarf að finna til mörg nöfn er ágætt að leita í eitthvað svona þema.“ Í fjósinu í Gunnbjarnarholti eru samtals um 240 mjólkandi kýr í tveimur aðskildum hjörðum.

Samkvæmt upplýsingum frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) var fyrra Íslandsmet í 12 mánaða nyt íslenskrar kýr frá því 2022 þegar Snúra frá Dalbæ 1 í Hrunamannahreppi mjólkaði 15.971 kílógrammi. Tvær kýr skákuðu henni þó í fyrra og var önnur nythæsta kýr landsins 2025 Húma frá Dalbæ 1 sem mjólkaði 16.517 kílógrömmum og því afar skammt á hæla Plómu. Fyrsta íslenska kýrin sem náði skráðri 12 mánaða nyt yfir 15.000 kílógrömmum var Gola frá Egilsstaðakoti í Flóa sem mjólkaði 15.675 kílógrömmum frá júní 2018 fram í maí 2019. Á síðasta ári voru sjö kýr á Íslandi sem mjólkuðu meira en 15.000 kílógrömmum.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Líf&Starf 10. maí 2022

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!

Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...

Lesning fyrir heilabilaða
Líf&Starf 4. maí 2022

Lesning fyrir heilabilaða

Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflað...