Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Lagt er til að landsbyggðarmat verði gert að lögbundinni og skyldubundinni aðferð í allri stefnumótun og lagasetningu ríkisins.
Lagt er til að landsbyggðarmat verði gert að lögbundinni og skyldubundinni aðferð í allri stefnumótun og lagasetningu ríkisins.
Mynd / Teikning / Hlynur Gauti
Fréttir 17. febrúar 2026

Landsbyggðarmat verði lögfest

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Fyrir Alþingi liggur tillaga til þingsályktunar um innleiðingu landsbyggðarmats í stefnumótun og lagasetningu stjórnvalda.

Lagt er til að landsbyggðarmat verði gert að lögbundinni og skyldubundinni aðferð í allri stefnumótun og lagasetningu ríkisins, með skýru ferli, samhæfingu milli ráðuneyta og reglulegri eftirfylgni. Sveitarfélög fagna skrefinu og telja að það bæti gæði ákvarðanatöku og styrki fjárhagslegt jafnræði.

Í upphafi tilraunaverkefni

Tillagan gerir ráð fyrir að landsbyggðarmat verði innleitt sem formlegt ferli við undirbúning lagafrumvarpa, reglugerða og umfangsmikilla áætlana ríkisins. Ferlið byggir á fjórum skrefum: skimun til að greina áhrif á dreifbýli, ítarlegu mati á umfangi og eðli áhrifa, mótvægisaðgerðum eða aðlögun þegar þörf krefur, og reglubundinni eftirfylgni með gagnasöfnun.

Forsætisráðuneytið á að leiða samhæfingu, hvert ráðuneyti að tilnefna sérstakan dreifbýlistengil og Hagstofan og Byggðastofnun að móta mælikvarða auk þess sem sett verður upp opið mælaborð. Þá á samráð við sveitarfélög og hagsmunaaðila að verða skylda í upphafi vinnu. Ársskýrsla um framkvæmd matsins verði lögð fyrir Alþingi og þriggja ára óháð úttekt tryggi stöðugar umbætur. Mælt er með að tilraunaverkefni í þessa veru hefjist nú í ár og full innleiðing verði árið 2027.

Styrki jafnræði íbúa

Nái þingsályktunin fram að ganga yrðu áhrif á sveitarfélög einkum að þau fengju skýrari stöðu í lagasetningarferlinu, aukið samráð og tryggara aðhald gagnvart ákvörðunum ríkisins sem kunna að hafa fjárhagsleg eða þjónustuleg áhrif. Með formlegu landsbyggðarmati er talið líklegra að kostnaður, þjónusta og aðgengi verði metið af meiri nákvæmni, sem styrki jafnræði íbúa óháð búsetu.

Fyrri umræðu um þingsályktunina er lokið og bíður hún nefndarálits umhverfis- og samgöngunefndar. Flutningsmenn eru þau Ingibjörg Isaksen, Sigurður Ingi Jóhannsson, Stefán Vagn Stefánsson, Halla Hrund Logadóttir og Þórarinn Ingi Pétursson.

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...