Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Ný stjórn skógarbænda. Hrönn, sem er nýr formaður, fyrir miðju ásamt Sólrúnu Þórðardóttur, starfsmanni skógarbænda hjá Bændasamtökunum.
Ný stjórn skógarbænda. Hrönn, sem er nýr formaður, fyrir miðju ásamt Sólrúnu Þórðardóttur, starfsmanni skógarbænda hjá Bændasamtökunum.
Mynd / Valur Þorsteinsson
Fréttir 9. apríl 2026

Hrönn nýr formaður skógarbænda

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Stjórnar og formannsskipti voru gerð í deild skógarbænda.

Hrönn Guðmundsdóttir er nýr formaður búgreinadeildarinnar. Greinin stendur á tímamótum.

Stjórnarmenn úr öllum landshlutum

Stjórn búgreinadeildar skógarbænda samanstendur af fimm aðalmönnum, einum frá hverjum landshluta, Austur, Vestur , Norður og Suðurlandi og Vestfjörðum auk fimm varamanna þeirra. Hrönn Guðmundsdóttir úr suðri er nýr formaður deildarinnar og henni á vinstri hönd og réttsælis kringum landið sitja Sigurkarl Stefánsson í vestri, Sæmundur Þorvaldsson á Vestfjörðum, Embla Björnsdóttir í norðri og Lilja Sigurðardóttir í austri. Varamenn þeirra í sömu röð eru Kári Steinn Karlsson, Bergþóra Jónsdóttir (ný), Sighvatur Þórarinsson, Birgir Steingrímsson og Helgi Bragason (nýr).

Fjörugar umræður einkenndu fundinn sem var vel sóttur enda búgreinin orðin býsna stór.

Skógrækt á Íslandi stendur á tímamótum því skógar eru víða orðnir hæfir til nytja sem krefst nýrrar þekkingar og nálgunar í greininni auk mögulegra breytinga á regluverkinu. Hrönn sagðist spennt fyrir starfinu fram undan. Hjörtur Bergmann, fráfarandi formaður og eiginmaður nýs formanns, sló á létta strengi og sagði umræðuna munu halda áfram við eldhúsborðið.

Skylt efni: Skógrækt | Búnaðarþing

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...