Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Trjákvoða úr myrru líkist helst litlum gylltum steinum.
Trjákvoða úr myrru líkist helst litlum gylltum steinum.
Mynd / Freepik
Fréttir 9. apríl 2026

Gull, reykelsi og myrra

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

- Myrra sem lækningajurt

Gyllt trjákvoða er unnin úr myrru og nýtt við margvíslegum kvillum.

Myrra hefur verið nýtt sem lækningajurt frá örófi alda. Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir notar tinktúru gerða úr myrru í meðhöndlun á meltingarvanda.

Myrra er lítið tré

Myrra er heiti á litlu tré eða runna sem hefur þyrnóttar greinar og vex villt á Arabíuskaga og í Austur Afríku. Á latnesku heitir það Commiphora myrrha og nafnið því dregið beint úr því. Frá aldaöðli hefur tréð verið nýtt til lækninga og þekktust er myrran vafalaust úr sögunni um vitringana þrjá sem færðu Jesú nýfæddum gull, reykelsi og myrru. Reykelsið var að öllum líkindum frankincense. Sögur af myrru koma víðar fyrir í Biblíunni, til dæmis þegar Jesú er fært vín blandað myrru fyrir krossfestinguna. Hann þáði víst ekki sopann. Einnig eru sögur af konum sem báru á sig myrruolíu til fegrunar. 

Notkun í grasalækningum

Fjölbreytt og góð örveru- og bakteríuflóra er lykillinn að góðri meltingu sem aftur hefur mikil áhrif á aðra starfsemi líkamans. Sé meltingin í ólestri á líkaminn erfitt með að taka upp þau næringarefni sem hann þarf úr matnum og önnur líkamskerfi fá þá ekki þá næringu sem þau þurfa til að halda úti eðlilegri starfsemi. Slíkt getur til að mynda valdið bólgum og óþægindum og leitt af sér sjúkdóma.

Grasalæknar dagsins í dag nota myrru sem lækningajurt. Hún er ýmist notuð sem fínmalað duft eða tinktúra en þá hefur þurrkuð kvoðan, sem minnir helst á óreglulega litla gyllta steina, verið látin liggja í etanóli í dálítinn tíma og hún svo þynnt út með vatni til inntöku. Frábendingar eru um að nota myrru á meðgöngu.

Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir hefur um áratugaskeið notað myrru til að meðhöndla ákveðin meltingarvandamál þeirra er til hennar leita í Jurtaapótekinu sem nú er orðið hluti af Lyfju. „Ég nota hana mest til að eyða óæskilegum bakteríum úr meltingunni, fyrir fólk sem er með öfuga bakteríuflóru sem kallast, þá er hún mjög öflug í að drepa lífseigar bakteríur neðar í meltingarveginum, í smáþörmunum og ristlinum.“ Fjölmargir á Íslandi nýta sér kosti myrrunnar.

Ilmkjarnaolía úr myrru

Hægt er að eima trjákvoðuna til að vinna ilmkjarnaolíu úr myrrunni sem þá er handhæg í notkun. Ilmkjarnaolíur eru aðeins notaðar í örlitlu magni, töldu í dropum, út í burðarolíur, til dæmis möndlu- eða arganolíu. Helstu kostir myrrunnar eru að hún er góð á bólgur í húð, exem og kláða og er græðandi á sár.  Hún er notuð gegn berkjubólgu og hæsi, í tannlæknavörur og sem ilmefni í snyrtivörur og ilmvötn. Myrruolían er einnig sögð hafa róandi og sefandi eiginleika og því virka vel við kvíða og streitu. Hún er einnig sögð koma reglu á tíðir kvenna. Engan skal því undra að myrruolían hafi verið notuð af konum til forna og að Jesú hafi verið boðinn dreitill á erfiðum tíma.

Skylt efni: grasalækningar

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...