Dorothea, Amber og Herdís skála í kaffi frá skagfirsku kaffibrennslunni Korg í rýminu.
Dorothea, Amber og Herdís skála í kaffi frá skagfirsku kaffibrennslunni Korg í rýminu.
Mynd / kró
Viðtal 23. ágúst 2026

Gamla frystihúsið fær nýtt líf

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Undanfarin ár hefur fyrirtækið Ísponica byggt um matvælaframleiðslu í gamla frystihúsinu á Hofsósi. Næst á dagskrá er verkefnið Gró sem snýr að því að skapa fjölnota kaffi- og samfélagsrými sem verður opið íbúum og gestum á ferð um landið.

Dorothea Olsen Hannesdóttir og Herdís Arna Hallgrímsdóttir, hönnuðir og verkefnastjórar, hafa staðið að verkefninu í samstarfi við Amber Monroe, eiganda Ísponica, og Völu Stefánsdóttur hjá Korg kaffibrennslu í Skagafirði. Um áratugaskeið gegndi frystihúsið mikilvægu hlutverki í atvinnu- og félagslífi bæjarins og er markmiðið að endurvekja húsið sem samkomustað.

Sprettur og spírur sem Amber ræktar í Ísponica.

Áhersla á nærsamfélagið

Gestir sem heimsækja Gró fá innsýn í starfsemi Ísponica og markmiðið er að stytta bilið milli framleiðanda og neytanda því ýmis fersk matvæli verða til í húsinu.

„Áherslan er á nærsamfélagið,“ segir Dorothea. „Gró á að verða rými sem fólk getur tekið þátt í að móta, hvort sem það er með sögu úr húsinu, gamalli ljósmynd, með því að koma við, fylgjast með og segja okkur hvað því finnst.“ Einstaklingar og fyrirtæki á Hofsósi og í Skagafirði hafa tekið virkan þátt í uppbyggingunni með fjölbreyttum hætti.

Tóm rými fá nýtt líf

Gró er í grunninn rannsóknarverkefni til að greina og búa til aðferðafræði hvernig hægt sé að nálgast tóm rými og gefa þeim nýtt líf. „Okkur langaði að skoða hvernig hægt sé að fá samfélagið til að upplifa að það eigi hlut í verkefninu og búa til ákveðna uppskrift að því hvernig hægt sé efniviði, hugmynd að viðburði, aðstoð við smíði eða einfaldlega að koma svona verkefnum af stað,“ segir Dorothea. 

„Að fólk vilji taka þátt er mun mikilvægara en að sérfræðingur að sunnan komi, hanni eitthvað og fari. Þá er oft ekki verið að skapa eitthvað fyrir samfélagið heldur fyrir gróða eða túrisma.“ Í verkefninu hefur það verið skýrt í ferlinu að bæði heimamenn og ferðamenn leitast eftir upplifunum tengdum því sem er að gerast á svæðinu.

Mun þjóna mörgum hlutverkum

Frystihúsið hafði staðið autt í 30 ár áður en Ísponica hóf starfsemi þar. „Það er merkilegt hvað það er mikið af auðum rýmum á landsbyggðinni, sérstaklega í ljósi þess hvað það er erfitt að finna rými á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Dorothea og þykir það sorglegt því að í svona stórum tómum húsum felast alls konar möguleikar.

„Oft eru kaffihús rekin að sumri til því þá er nógu mikið flæði af fólki, en svo kemur veturinn og þá sitja heimamenn uppi með að það sé ekki jafn mikið líf í bænum. Okkur finnst því mikilvægt að skoða hvernig rýmið geti verið fjölbreytt og fjölnota svo það reynist gagnlegt fyrir íbúa allt árið,“ segir Dorothea.

Góðir hlutir gerast hægt

„Yfirleitt gerast góðir hlutir hægt og ef maður ætlar að vinna með heimamönnum þá skiptir traust máli. Það tekur tíma að byggja upp traust,“ segir Dorothea og leggur áherslu á að það sé mikilvægt að hlusta á fjölbreyttar þarfir hverju sinni og þróa verkefnið í takt við samfélagið.

„Við verðum með ýmsa viðburði í ágúst, það verður opin vinnustofa, opið hús og þá er auðvitað alltaf kaffi.“ Dorothea segir að það sé ekki komin dagsetning hvenær kaffihúsið verði opnað en allt sé í góðum farvegi. „Ungir hönnuðir á Blönduósi eru að hanna kaffibarinn og við erum að smíða borð og bekki, þetta er allt að koma, en við mælum með að fylgjast með verkefninu. Ferlið er síbreytilegt og alltaf spennandi og fólk er velkomið að kíkja við og sjá hvað er um að vera.“ 

Skylt efni: Hofsós

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...