Þeir Guðmundur Páll og Þórarinn stóðu sig best í silfurstigamóti Sumarbridge.
Þeir Guðmundur Páll og Þórarinn stóðu sig best í silfurstigamóti Sumarbridge.
Líf og starf 7. október 2026

Ásaspurning – en hvað er tromp?

Höfundur: Björn Þorláksson

Þegar ég lærði bridds fyrir hálfri öld voru ásarnir í spilinu bara fjórir. Og oftast var spurt um fjölda þeirra með fjórum laufum. Fjögur lauf voru ásaspurning. Og fjögur grönd spurðu um kónga. Maður sumsé hóf ferðalagið mikla á vínarkerfinu góða. Síðan hefur mikið vatn til sjávar runnið og mörg sögnin og margt afkastið orðið manni að skaða! En miklu oftar til gleði.

Langt er síðan fimmti ásinn bættist við hjá nútímabriddspilurum. Nú er fimmti ásinn talinn trompkóngur. Svo er hægt að spyrja um trompdrottningu og ég veit ekki hvað og hvað. En samt kemur enn fyrir að enginn veit neitt í sinn haus er kemur að þessum spurningum öllum. Þrátt fyrir allar umbæturnar, þrátt fyrir nýju sagntæknina, fimmta ásinn, trompdömuna og kerfin öll.

16. þessa mánaðar fór fram lokamót Sumarbridge í Síðumúlanum. Keppt var um silfurstig og þátttaka var góð. Gömlu brýnin, Guðmundur Páll Arnarson, heimsmeistari frá 1991, og tannlæknirinn og laxveiðimaðurinn Þórarinn Sigþórsson hirtu gullið.

Strax í fyrsta spili þessa móts reyndi á sagntækni para. Eins og lesendur sjá á stöðumynd dagsins eru 14 slagir í gröndum en aðeins tvö pör komust þó í alslemmu. Á einu borðinu opnaði norður á sterku laufi, 16 plús. Makker hans sagði hjarta sem lofaði átta plús punktum og fimmlit. Norður tók þá undir hjartað með tveimur hjörtum. Suður meldaði þrjú lauf og þá sagði norður fjögur lauf, enda 7 lauf albesta alslemman þótt ekki séu nú miklar líkur á að hjartað liggi 5-0.

En nú var komið upp sagnvandamál. Þegar suður meldaði 4 grönd og fékk svar við ásaspurningunni, lék vafi á því við borðið hvort norður væri með svari sínu við lykilspilaspurningu að samþykkja hjarta sem tromp eða lauf? Lokasögnin varð því svolítið af ætt Salomons, 6 grönd sem var nálægt meðalskori.

Spilið er kannski ágætt tilefni til að þú og þinn makker ræðið hvort þið hafið alltaf á hreinu hvort ásaspurning eða lykilspilaspurning gildir um fyrstu samþykktu trompsamlegu eða aðra sem síðar kann að koma í ljós – og í einhverjum tilvikum getur verið vænlegri?

Umsjón: Björn Þorláksson,

bjornthorlaksson[hjá]gmail.com

Skylt efni: bridds | Hugaríþrottir

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...