Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 mánaða.
Villt líf í vörn
Mynd / Pixabay
Utan úr heimi 6. febrúar 2026

Villt líf í vörn

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Vísindatilraun á ítalskri eyju sýndi að ræktaðar býflugur veiktu villtar ættkvíslir býflugna.

Á lítilli og vindasamri eyju undan ströndum Toskana á Ítalíu, Giannutri, hafa vísindamenn varpað nýju ljósi á umdeilt mál: hvaða áhrif ræktaðar býflugur hafi á villta ættingja sína. Grein, sem upprunalega birtist í The Guardian, lýsir fjögurra ára tilraun sem leiddi til þess að stjórnvöld ákváðu að leggja algert bann við býflugnarækt á eyjunni.

Breytt sjónarhorn

Eftir að 18 býflugnabú voru sett upp árið 2018 fylgdist rannsóknarteymi frá háskólanum í Flórens náið með þróun frævunar og líffræðilegs jafnvægis á eyjunni. Var búunum m.a. lokað á ákveðnum dögum, í ellefu klukkustundir í senn, og fylgdist vísindafólkið með áhrifum þess á villtar býflugnategundir. Niðurstöðurnar vöktu æ meiri undrun.

Í ljós kom að fjöldi staðbundinna humla og býflugna hafði minnkað um allt að 80% á fjórum árum. Þegar ræktuðu býflugurnar voru tímabundið lokaðar inni jókst magnið af frjókornum á blómum um 30%, villtu býflugurnar sáust oftar og þær unnu á hægari og markvissari hátt en þegar þær voru í samkeppni.

Býflugnarækt bönnuð

Á eyjunni búa fáir að staðaldri, íbúar eru aðeins um tíu talsins yfir vetrarmánuðina. Þeir eru mestan partinn fólk sem kýs ró og einfaldleika: sjómenn, einsetumenn og þeir sem hafa sest í helgan stein. Í grein Guardian kemur fram að ýmsir hafi vægast sagt verið tortryggnir gagnvart tilrauninni. „Fyrir þeim vorum við að gera kjánalega og tilgangslausa hluti,“ segir Leonardo Dapporto, prófessor við háskólann í Flórens. Tilraunin var því ekki aðeins vísindaleg áskorun, heldur einnig samfélagsleg.

Í kjölfar þess að rannsóknarteymið kynnti niðurstöðurnar fyrir yfirvöldum var skjótt gripið til aðgerða. Býflugnarækt var bönnuð á Giannutri, en eyjan er hluti þjóðgarðs sem teygir sig upp í Toskana. Íbúar tóku breytingunum hikandi. Virtust sumir fegnir að villt lífríki fengi að dafna enn frekar, á meðan aðrir höfðu áhyggjur af áhrifum á hefðir og hugsanlega framtíðarnýtingu.

Nú, meira en ári eftir að búunum var eytt, hafa vísindamenn séð merki um bata. Ein af villtu tegundunum virðist til dæmis hafa náð sér nokkuð á strik.

Vangaveltur víða um heim

Víða um heim má sjá svipaðar vísbendingar um að býflugnarækt geti haft veruleg áhrif á villt frævunardýr. Á suðurhluta Spánar, þar sem ræktuðum býflugum hefur fjölgað þrefalt frá árinu 1960, sýna rannsóknir að ræktaðar býflugur leita í blómauðug skóglendi eftir að sítrusræktun lýkur, sem eykur samkeppni við villtar tegundir.

Í Kaliforníu eru hundruð þúsunda býflugnabúa flutt um set árlega til að sinna m.a. möndlulundum, og á þeim tíma eru innlendar býflugur undir miklu álagi þar sem þær þurfa að keppa við milljónir ræktunarflugna um fæðu. Nýleg rannsókn sem gerð var í San Diego leiddi í ljós að allt að 98% af heildarlífmassa býflugna voru flugur úr býflugnarækt sem tóku um 80% frjókorna fyrsta dag blómgunar – með afgerandi áhrifum á yfir 700 tegundir innfæddra býflugna.

Áhrifin ná jafnframt út fyrir frævunardýr; vísbendingar eru um að plöntur kunni að verða rýrari og afkastaminni en ella þegar þær eru háðar aðfluttum býflugum til frævunar.

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...

Málþing í tilefni af degi landbúnaðarins
Fréttir 8. október 2026

Málþing í tilefni af degi landbúnaðarins

Dagur landbúnaðarins verður haldinn í dag, 8. október, í Sjálfstæðissalnum á Par...

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna
Fréttir 1. október 2026

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna

Magnús Kristjánsson hefur verið skipaður í embætti forstjóra Stofnunar atvinnuve...

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum
Fréttir 30. september 2026

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum

First Water og Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar byggingarframkvæmd...

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir
Fréttir 30. september 2026

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hrys...