Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Starfsfólk Lands og skógar stendur vaktina og fylgist með ástandi vistkerfa landsins. Vöktunarverkefnin hafa hvert fengið sitt einkennismerki sem sjá má neðst á myndinni: Engjarós, hrafnafífu, skarifífil, holtasóley og birkilauf. Merkin voru hönnuð af Fífu Jónsdóttur.
Starfsfólk Lands og skógar stendur vaktina og fylgist með ástandi vistkerfa landsins. Vöktunarverkefnin hafa hvert fengið sitt einkennismerki sem sjá má neðst á myndinni: Engjarós, hrafnafífu, skarifífil, holtasóley og birkilauf. Merkin voru hönnuð af Fífu Jónsdóttur.
Mynd / Aðsend
Á faglegum nótum 19. ágúst 2026

Þróun vöktunarverkefna hjá Landi og skógi

Höfundur: Rán Finnsdóttir
Rán Finnsdóttir.

Hjá Landi og skógi starfa fjölmargir sérfræðingar við vöktun af ýmsu tagi. En hvað er vöktun og vöktunarverkefni? Og hvernig eru þau öðruvísi en almennar rannsóknir?

Vöktun felur í sér langtíma skuldbindingu, þar sem í okkar tilfelli er fylgst með íslenskum vistkerfum til langs tíma til að greina breytingar og setja í samhengi við veðurfar, landnýtingu, tíma og fleira. Landið er vaktað til að byggja upp þekkingargrunn sem síðan er hægt að nýta við ákvarðanatöku og rannsóknir. Við vöktun er ekki lögð áhersla á eina hnitmiðaða spurningu heldur á heildarástand vistkerfanna sem við vöktum, hvort sem það eru skógarnir, votlendið eða mólendið. Sömuleiðis geta verið ólíkar áherslur, á gróðursamsetningu, kolefni í jarðvegi, rofgerðir eða hvaðeina.

Staðsetning er mikilvægur þáttur í vinnunni, en svo hægt sé að vakta breytingar á milli ára gerum við allar mælingar í afmörkuðum reitum eða sniðum, en gerð þeirra fer eftir áherslum hvers verkefnis. Síðustu ár höfum við lagt okkur fram við að samhæfa aðferðafræði á milli vöktunarverkefna Lands og skógar, að framkvæma mælingar á sama hátt svo hægt sé að samnýta þær.

Til dæmis metum við vistgerð, jarðvegsrof og gróðurþekju, gróðurhæð og plöntutegundir á sama hátt. Land og skógur er ekki eina stofnunin sem sinnir vöktun, en við sækjumst einmitt eftir samstarfi t.d. við náttúrustofur og Náttúrufræðistofnun þegar völ er á.

Náttúrufræðistofnun sér um kortlagningu vistgerða, og því deilum við öllum okkar gögnum með þeim svo hægt sé að nýta þau í uppfærslu vistgerðarkortlagningar. Náttúrustofurnar sinna ýmissi vöktun fyrir okkur á sínum umráðasvæðum, m.a. mælingum á bindingu og losun kolefnis úr jarðvegi og endurmælingum í vöktunarreitum Grólindar.

En við höfum ekki bara áhuga á jarðvegi og gróðri, þó það sé vissulega okkar ær og kýr, heldur fylgjumst við líka með fuglum í vöktunarreitunum okkar. Sú vöktun hófst með samstarfi íslenskrar skógarúttektar (Ísú) og Náttúrufræðistofnunar vegna fugla í og við skóga, en síðan bættust mólendis- og votlendisverkefnin einnig við.

Vöktunarverkefnin eru í grófum dráttum: Moli og Moli gas, sem safnar gögnum fyrir loftslagsbókhald Íslands í mólendi og graslendi, Mýrland og Mýrgas sem safnar sömuleiðis gögnum fyrir loftslagsbókhaldið en í votlendi, Íslensk skógarúttekt sem safnar líka gögnum fyrir loftslagsbókhaldið, og Grólind, sem safnar ekki gögnum fyrir loftslagsbókhaldið en sinnir heildarmati á ástandi jarðvegs og gróðurs landsins á stórum skala.

Höfundur er teymisstjóri vöktunar á sviði rannsókna, vöktunar og árangurs hjá Landi og skógi.

Skylt efni: Land og skógur

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna
Fréttir 1. október 2026

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna

Magnús Kristjánsson hefur verið skipaður í embætti forstjóra Stofnunar atvinnuve...

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum
Fréttir 30. september 2026

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum

First Water og Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar byggingarframkvæmd...

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir
Fréttir 30. september 2026

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hrys...

Reglugerð gefin út
Fréttir 30. september 2026

Reglugerð gefin út

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur gefið út reglugerð um kortlagningu ...

Játar innbrot í eldisbú
Fréttir 30. september 2026

Játar innbrot í eldisbú

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og hefur hann játað á sig innbrot og eig...

Minni kornstuðningur  en áætlað var
Fréttir 30. september 2026

Minni kornstuðningur en áætlað var

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár verður framlag stjórnvalda til stuðnin...

Vilja stytta bilið frá býli að borði
Fréttir 29. september 2026

Vilja stytta bilið frá býli að borði

Nýundirritaður þriggja ára samstarfssamningur á milli Landbúnaðarháskóla Íslands...

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun
Fréttir 29. september 2026

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun

Uppskera er verkefni á vegum GETA-samtakanna þar sem fjölskyldur fá ræktunarreit...