Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Stríðið hefur áhrif á áburðarverð
Mynd / Ástvaldur Lárusson
Fréttir 7. apríl 2026

Stríðið hefur áhrif á áburðarverð

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Áburðarsalar sem svöruðu fyrirspurn um málið staðfestu að hækkanir á áburðarverði séu fyrirsjáanlegar, en bændur sem þegar hafi samið um kaup á áburði muni ekki verða fyrir áhrifum. Eins má áætla að verð á rúlluplasti geti hækkað.

„Það er alveg ljóst að átökin hafa haft mikil áhrif á áburðarverð en einnig gríðarlega á rúlluplast,“ segir Einar Guðmundsson framkvæmdastjóri Búvís í skriflegu svari. „Varðandi áburð fyrir vorið þá vorum við búnir að tryggja okkur um 90% af seldu magni á frekar hagstæðum kjörum en erum að sjá um 20-25% hækkun þeirri vöru sem við þurftum að bæta við.

Engin hækkun verður til bænda á þeim áburði sem þeir voru búnir að panta og munum við taka á okkur þær hækkanir sem hafa orðið til vegna hækkana á innlendum flutningi sem og flutningskostnaði til landsins. Varðandi rúlluplast er staðan sú að við höfðum tryggt okkur stóran hluta af seldu magni í fyrra á sæmilegum kjörum.

Staðan er samt þannig að okkar birgjar hafa einfaldlega hætt að taka við frekari pöntunum vegna gríðarlegrar hækkana á hráplasti, flutningum og gasi. En eins og allir vita er verð á plasti beintengt við verð á olíu. Ómögulegt er að spá til um hvað gerist í verðum á komandi misserum en ljóst er að öll áhætta í aðfangakeðjum er kemur niður á verði til okkar,“ segir Einar.

Í skriflegu svari Jóhannesar Baldvins Jónssonar, deildarstjóra ráðgjafar og vöruþróunar hjá Líflandi segir: „Áhrif á Lífland verða lítil sem engin á yfirstandandi sölutímabili, sem er langt komið, utan þess að líklega verður minna pantað af umframáburði til að eiga inn í vorið. Lífland gerði seint á liðnu ári magnsamninga um áburð sem standa og verja fyrirliggjandi pantanir fyrir breytingum vegna ástandsins sem nú blasir við. Dragist óvissuástandið á langinn er hins vegar ljóst að áburðarverð mun koma til með að hækka næsta vetur, enda hefur það þegar hækkað erlendis, einkum köfnunarefnisáburður, þar sem verðmyndun hans er nátengd gasverði,“ segir Jóhannes.

Lúðvík Bergmann, sölustjóri Landbúnaðarsviðs Skeljungs skrifar í svari við fyrirspurn að hækkun á olíu og gasi hafi þegar haft mikil áhrif á heimsmarkaðsverð á áburði og leitt af sér hærri flutningskostnað. „Skeljungur hefur nú þegar þurft að gefa út nýjan verðlista með hærri verðum þannig að þeir sem ekki voru búnir að panta snemma horfa fram á hærra verð en ella,“ segir Lúðvík.

Úlfur Blandon, framkvæmdastjóri Fóðurblöndunnar, segir í skriflegu svari að fyrirtæki hafi tryggt sér sinn áburð fyrir áramót, „svo þetta hefur ekki áhrif fyrir þetta áburðartímabil nema eitthvað stórvægilegt gerist sem ég á ekki von á. Hinsvegar er ljóst að þetta mun hafa áhrif á áburðarkaup næsta ár þar sem gríðarlegar hækkanir eru búnar að eiga sér stað. Vonandi ganga þær til baka en það er algjörlega óvíst eins og staðan er núna,“ segir Úlfur.

„Við höfum fengið hækkun á hluta af áburðinum sem við erum að flytja inn,“ segir Steinþór Skúlason forstjóri Sláturfélags Suðurlands í samtali. „Núverandi verðskrá er hins vegar enn í gildi og ég á ekki von á því að hún breytist. Það er eftir sem áður skynsamlegt fyrir bændur að klára áburðarviðskiptin sem fyrst,“ segir hann. 

Skylt efni: áburður | stríðsátök

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST
Fréttir 3. júlí 2026

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST

Matvælastofnun vekur athygli á að aðili villti á sér heimildir sem eftirlitsmaðu...

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum
Fréttir 2. júlí 2026

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í lan...

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar
Fréttir 1. júlí 2026

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar

Orkusalar leggja sífellt meiri metnað við að gera „hleðslustopp“ rafbílaeigenda ...

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn
Fréttir 30. júní 2026

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn

Fleiri bakarar landsins velja lífræna heilhveitið frá Vallanesi í bakaríin sín. ...

67,5 milljónum úthlutað
Fréttir 29. júní 2026

67,5 milljónum úthlutað

Alls hlutu 25 verkefni styrki úr Þróunarfé búgreina upp á 67,5 milljónir króna. ...

Fuglum og fiðrildum fækkar
Fréttir 29. júní 2026

Fuglum og fiðrildum fækkar

Stofnar fugla og fiðrilda hafa farið hnignandi frá árinu 2000. Þetta kemur fram ...

Efla samstarf um fæðuöryggi
Fréttir 29. júní 2026

Efla samstarf um fæðuöryggi

Norðurlöndin hafa ákveðið að styrkja sameiginlegt fæðuöryggi á tímum aukinnar óv...

Kalla eftir skjalasöfnum bóndakvenna
Fréttir 29. júní 2026

Kalla eftir skjalasöfnum bóndakvenna

Kvennasögusafn Íslands varðveitir um 400 einkaskjalasöfn og var stofnað sem gras...