Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 7. apríl 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn finnur að ýmislegt sem hefur lengi kraumað innra með honum er eitthvað sem hann verður að deila. Það ætti hann endilega að láta eftir sér, enda mun það vekja mikla athygli. Í hjartans málum er vinátta og hlýtt spjall sterkur grunnur að einhverju sem gæti vaxið. Happatölur 3, 13, 42.

Fiskarnir ættu að nýta innsæi sitt til hins ýtrasta þegar kemur að því að lesa aðstæður, bæði í vinnu og einkalífi. Það sem virðist lítið mál í fyrstu gæti reynst mikilvægt eða stærra síðar. Í ástinni er nærvera og hlýja líklegust til að opna hjörtu – og þar má einnig nýta innsæið! Happatölur 5, 67, 88.

Hrúturinn finnur bæði og veit innra með sér að nú er ekki tíminn til að sitja lengi yfir sömu spurningunni. Hann hefur undanfarið velt ýmsu fyrir sér í samböndum sínum, en nú bendir margt til að skref fram á við skili meiru en frekari vangaveltur. Hann verður að vera hreinskilinn, bæði við sig og sína nánustu. Happatölur 1, 87, 18.

Nautið veit betur en flestir að stundum þarf einfaldlega að halda ró sinni meðan hlutirnir raðast. Næstu dagar minna það á að þolinmæði getur skilað óvæntum árangri. Nautið hefur staðið sig ágætlega við að setja sjálft sig í fyrsta sæti sl. viku – loksins, og skal halda þeirri stefnu. Happatölur 44, 12, 28.

Tvíburinn finnur að samtöl og tilviljanakennd spjöll geta leitt hann á nýjar brautir. Það sem byrjar sem létt spjall á vinnustað gæti þróast í hugmynd sem vert er að fylgja eftir. Í hjartans málum er hreinskilni einfaldlega besta leiðin áfram og tvíburinn má vera viss um að hans kærasta fólk elskar hann alveg jafnmikið og djúpt. Happatölur 3, 1, 7.

Krabbinn skynjar, loksins ... sér að óvörum að smáatriðin segja stærri sögu en fólkið í kringum hann vill vera láta. Með það í huga gæti hann áttað sig á því hvað skiptir í raun mestu máli. Í ástinni skapast falleg stund ef hann leyfir sér að taka annan vinkil en vanalega. Sjá málin út frá fleiri hliðum. Happatölur 11, 54, 22.

Ljónið finnur að athyglin leitar til þess, jafnvel þegar það reynir að leyfa öðrum að skína. Þetta gæti komið sér vel á vinnustað þar sem ljónið gæti nýtt þá stöðu öðrum til uppgangs, en einnig hlotið verðskuldað hrós fyrir. Í ástarmálum þarf smá húmor að vera í fyrirrúmi en ekki velta málunum of mikið fyrir sér. Happatölur 48, 22, 25.

Meyjan veit manna best að skipulag getur bjargað heilmiklu þegar dagarnir verða þéttir. Þessa dagana gæti hún þó uppgötvað að smá sveigjanleiki skilar jafnvel betri árangri, án þess þó að aðalatriðin fari framhjá henni. Í tilfinningamálunum nægir stundum lítið merki um umhyggju til að breyta heilmiklu. Happatölur 44, 14, 2.

Vogin finnur að jafnvægið sem hún sækist eftir er smám saman að færast nær og hún hefur staðið sig vel í því að þiggja aðstoð. Hún má ekki gleyma að hún veitir sjálf öðrum heilmikla aðstoð en nú er komin röðin að henni. Í ástinni er gott að segja hlutina eins og þeir eru, sérstaklega ef leysa þarf erfið mál. Happatölur 15, 66, 86.

Sporðdrekinn veit manna best að þessar vikurnar ætti hann að taka af skarið í málum hjartans. Hann hefur lengi fundið að einhver spenna liggur í loftinu. Ef hann treystir innsæinu og talar skýrt, gæti margt skýrst, ekki síst í ljósi þess hvernig tunglstaðan er á himni. Skýrleiki leysir meira en hann grunar. Happatölur 22, 42, 11.

Bogmaðurinn finnur að hugurinn leitar víðar en venjulega og nýjar hugmyndir kvikna þar sem hann átti síst von á. Í vinnu gæti þessi forvitni reynst dýrmæt. Í ástarmálum skilar einlægni og smá ævintýraþrá sér betur en of mikil alvara. Happatölur 57, 5, 41.

Steingeitin veit að árangur kemur sjaldan án þolinmæði og þessa dagana sér hún merki þess að sú vinna sé að skila sér. Verkefni í vinnu gæti tekið skýrari stefnu. Í ástinni skiptir rólegt traust meira máli en dramatískar yfirlýsingar. Hún má treysta því að hún er mörgum kær. Happatölur 12, 24, 1.

Skylt efni: stjörnuspá

Svigrúm til breytinga á stuðningskerfi landbúnaðar
Fréttir 21. ágúst 2026

Svigrúm til breytinga á stuðningskerfi landbúnaðar

Atvinnuvegaráðuneytið hefur birt áfangaskýrsluna Greining vegna endurskoðunar st...

Beint frá býli dagurinn um helgina
Fréttir 20. ágúst 2026

Beint frá býli dagurinn um helgina

Beint frá býli dagurinn verður haldinn sunnudaginn 23. ágúst. Þetta er fjórða ár...

Halla Sif ein af 100 kvenhetjum FAO
Fréttir 20. ágúst 2026

Halla Sif ein af 100 kvenhetjum FAO

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis h...

Ný útgáfa af Brennu-Njálssögu væntanleg
Fréttir 20. ágúst 2026

Ný útgáfa af Brennu-Njálssögu væntanleg

Njálufélagið undirbýr nýja og glæsilega útgáfu Njálu með haustinu en fyrirhugaðu...

Dagskrá Ullarvikunnar gleður
Fréttir 18. ágúst 2026

Dagskrá Ullarvikunnar gleður

Ullarvika verður haldin á Suðurlandi dagana 27. september til 3. október í haust...

Rannsókn á jarðhitakerfi Fáskrúðsfjarðar
Fréttir 17. ágúst 2026

Rannsókn á jarðhitakerfi Fáskrúðsfjarðar

Fjarðabyggð undirbýr nú næsta áfanga jarðhita- leitar á Fáskrúðsfirði, en áforma...

Rannsóknasetur íslenska hestsins
Fréttir 17. ágúst 2026

Rannsóknasetur íslenska hestsins

Nú er unnið að því að koma upp rannsóknasetri íslenska hestsins á Hólum í Hjalta...

Rekstrargrundvöllur Fjallalambs tryggður
Fréttir 17. ágúst 2026

Rekstrargrundvöllur Fjallalambs tryggður

Guðmundur Kristjánsson, kenndur við Brim, og breski fjárfestirinn Jim Ratcliffe ...