Staðreyndir um dýraveferð
Mynd / ál
Skoðun 20. nóvember 2026

Staðreyndir um dýraveferð

Höfundur: Trausti Hjálmarsson

Enn og aftur urðu innbrot í bú íslenskra bænda tilefni til almennrar umræðu og fréttaflutnings um dýravelferð og geri ég ráð fyrir að óþarfi sé að rekja þá sögu hér. Eins ætla ég ekki að eyða miklu plássi í að benda á hversu bjagað það er að maður, sem hefur játað á sig brot sem leiddu til þess að fjöldi gripa meiddist og drapst, sé að lesa bændum pistilinn um dýravelferð.

Staðreyndin er sú að bændur taka dýravelferð alvarlega, bæði af siðferðilegum ástæðum og efnahagslegum. Við stjórnum því hvenær dýrin okkar koma í heiminn og hvenær þau yfirgefa hann og þess á milli berum við ábyrgð á þeim. Ábyrgð sem við tökum alvarlega. En slæm meðferð dýra skilar líka verri afurðum og kemur því niður á afkomu okkar og er það líka hvati til að fara vel með dýrin.

Umræðan sýnir, að mínu mati, að við getum enn gert betur í að styrkja tengslin milli bænda og neytenda og fræða hina síðarnefndu um íslenska landbúnaðarframleiðslu og starfsumhverfi bænda.

Landbúnaður sætir hér ríku opinberu eftirliti og ólíkt þeirri mynd sem dregin hefur verið upp er það eftirlit víðtækt og það hefur tennur. Það kemur fyrir að bændur séu ávíttir eða sviptir búfénaði sínum vegna alvarlegra frávika, en blessunarlega er það ekki oft.

Það er jafnframt sjálfstætt áhyggjuefni að traust almennings á Matvælastofnun virðist ekki vera meira en svo að sumir telja eftirlitsskýrslur MAST lítils virði í umræðunni. Grundvöllur eftirlits í samfélagi eins og okkar er að gagnkvæmt traust ríki milli þriggja aðila; eftirlitsstofnunarinnar, þess sem eftirlitið beinist að og almennings, sem verður að geta treyst því að rétt sé að málum staðið. Ljóst er að hér er verk að vinna.

Íslenskir bændur eru réttilega stoltir af þeirri staðreynd að óvíða er notkun sýklalyfja í landbúnaði minni en hér, en ég hugsa að við mættum vera duglegri við að benda á hvað þessi staðreynd segir um aðbúnað dýra hérlendis. Það er vissulega eftirsóknarvert í sjálfu sér að hafa sýklalyfjanotkun sem minnsta, því það gerir landbúnaðarafurðirnar heilsusamlegri til neyslu. Við skulum ekki gera lítið úr því.

Í fyrsta lagi tíðkast ekki hér svokölluð fyrirbyggjandi notkun sýklalyfja, en það er þegar sýklalyf eru gefin dýrum burtséð frá því hvort dýrin séu sýkt eða ekki. Almennt er það gert þegar sýkingar eru svo algengar að það borgar sig einfaldlega að halda öllum dýrunum á sýklalyfjum. Það gera íslenskir bændur ekki.

Í öðru lagi er það þannig að því sjaldnar sem dýr meiðast og sýkjast því minna er notað af sýklalyfjum. Það segir sig nokkuð sjálft. Lítil sýklalyfjanotkun er því sjálfstæður vitnisburður um góðan aðbúnað dýra og hreinlæti í íslenskum landbúnaði.

Ef aðbúnaður sláturdýra á Íslandi væri nálægt því jafnslæmur og haldið hefur verið fram á samfélagsmiðlum væri sýklalyfjanotkun miklu meiri og almennari í íslenskum landbúnaði en raun ber vitni. Svo einfalt er það.

Vissulega kemur það fyrir hjá sumum að tíma- eða staðbundin frávik verða í búrekstrinum. Bændur og starfsfólk í landbúnaði eiga erfið tímabil og gera mistök, rétt eins og í öllum öðrum geirum atvinnulífs og samfélags. Markmiðið er að þessi frávik séu sem fæst og afleiðingar þeirra sem minnstar.

Það er hins vegar óheiðarlegt að nota þessi frávik sem keyri til að berja á landbúnaði sem atvinnugrein. Dýravelferð er hjartað í stærstum hluta íslensks landbúnaðar og umræðan um hana verður að byggjast á staðreyndum.

Höfundur er formaður Bændasamtaka Íslands.

Skylt efni: pistill formanns

Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017
Fréttir 20. nóvember 2026

Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017

Sauðfjárslátrun er nú lokið í öllum stærri sláturhúsum landsins og er nú ljóst a...

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki
Fréttir 19. nóvember 2026

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki

Sjóklæðagerðin sem er framleiðandi og sölulaðili 66°Norður hefur stofnað til sam...

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir
Fréttir 19. nóvember 2026

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir

Unnið er að því að innleiða íslenska losunarstuðla fyrir framræst votlendi inn í...

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps
Fréttir 19. nóvember 2026

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps

Til stóð að skýrslu yrði skilað til umhverfis-, orku- og lofts- lagsráðherra 15....

Engin alvarleg frávik á svínabúinu
Fréttir 19. nóvember 2026

Engin alvarleg frávik á svínabúinu

Engin alvarleg frávik frá reglum um velferð svína komu fram í eftirlitsheimsókn ...

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna
Fréttir 18. nóvember 2026

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna

Svokölluð Yerevan áætlun var samþykkt á þingi aðildarríkja um samning Sameinuðu ...

Nýtt fræhús á Vöglum
Fréttir 18. nóvember 2026

Nýtt fræhús á Vöglum

Nýtt fræhús á Vöglum í Fnjóskadal var formlega afhent Land og skógi af Jóhanni P...

Þjónusta Microsoft liggur niðri
Fréttir 13. nóvember 2026

Þjónusta Microsoft liggur niðri

Vegna vandræða í kerfum Microsoft liggur tölvupóstur Bændablaðsins tímabundið ni...