Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Í Kaliforníu hefur mikill vatnsskortur þvingað bændur til að leita annarra leiða til landnýtingar.
Í Kaliforníu hefur mikill vatnsskortur þvingað bændur til að leita annarra leiða til landnýtingar.
Mynd / Levi Meir Clancy – Unsplash
Utan úr heimi 8. apríl 2026

Sólarorkubúskapur í Kaliforníu

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Geysistór sólarorkugarður er í þróun í hjarta Kaliforníu. Ef hann verður byggður, mun hann þekja 51 þúsund hektara af landi og framleiða 21.000 megavött af rafmagni, sem er nóg til að knýja heilar borgir. Risastórar raf- hlöður munu geyma hluta af þeirri orku þar til hennar er mest þörf.

Greint er frá þessum áformum á vefmiðlinum NPR. Þar segir að bændur séu meðal stuðningsmanna verkefnisins, enda hafi þróunin orðið sú á stórum svæðum Kaliforníu að þeir hafa ekki nægt vatn til að rækta sitt land og leita því að öðrum valkostum til landnýtingar.

Ný vatnskreppa

Haft er eftir bóndanum Ross Franson, sem hefur verið stórtækur í margvíslegri akuryrkju, að bændur myndu helst vilja yrkja jörðina og ef þeir hefðu nægt vatn myndu þeir frekar gera það. „Raunveruleikinn er sá að það er ekki til staðar. Maður verður að spila úr þeim spilum sem manni eru gefin,“ segir Ross sem einnig er í stjórn Westlands Water district, samtaka sem rekin eru af bændum og eru lykilaðili í þessu sólarorkuverkefni. Þau semja við sólarorkufyrirtæki og eftirlitsstofnanir stjórnvalda fyrir hönd félagsmanna sinna. Westlands hefur lengi gætt hagsmuna bænda á stóru landsvæði vestan megin við San Joaquin-dalinn, milli bæjanna Firebaugh og Huron. Fyrir áratugum síðan áttu samtökin þátt í að sannfæra alríkisstjórnina um að byggja risavaxinn skurð til að veita áveituvatni á þetta svæði úr ám alla leið frá Norður-Kaliforníu. Þrátt fyrir áveituvatnið standa bændur á þessu svæði frammi fyrir nýrri vatnskreppu. Skurðurinn hefur skilað minna vatni á undanförnum árum vegna þurrka og samkeppni um vatnið. Þar til nýlega höfðu bændurnir varavatnsból og gátu dælt vatni úr grunnvatnsæðum hundruð metra neðanjarðar. Nú eru hins vegar ný ríkislög að taka gildi sem banna ofdælingu úr grunnvatnsæðinni.

Sólarorkan ný tegund búskapar

Því hafa stór svæði í Westlands ekki verið í ræktun og hefur sólarorku- framleiðandinn Golden State Clean Energy gripið tækifærið og kynnt Westlands Water District nýtt aðal- skipulag sem gerir ráð fyrir klösum af gríðarstórum sólarorkuverkefnum. Eftir nokkurra ára skipulagsferli kaus svo stjórn samtakanna í desember síðastliðnum að taka þátt í verkefninu að fullu og hafa um 150 bændur ákveðið að láta setja upp sólarsellur á hluta af landi sínu.

Líta þeir á sólarorkuna sem nýja tegund búskapar og tekjur af honum munu auðvelda þeim að halda hefð- bundnum búskap áfram á hluta landa þeirra, sem muni halda bændasam- félaginu á lífi.

Í litlu bæjunum í nágrenninu, þar sem margt starfsfólk búanna eiga heima, eru hins vegar áhyggjur af því að íbúar á svæðinu muni ekki sjá mikinn ávinning af verkefninu. Samdráttur í landbúnaður þýði að færri störf verði í boði fyrir það landbúnaðarverkafólk sem vann á búunum.

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST
Fréttir 3. júlí 2026

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST

Matvælastofnun vekur athygli á að aðili villti á sér heimildir sem eftirlitsmaðu...

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum
Fréttir 2. júlí 2026

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í lan...

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar
Fréttir 1. júlí 2026

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar

Orkusalar leggja sífellt meiri metnað við að gera „hleðslustopp“ rafbílaeigenda ...

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn
Fréttir 30. júní 2026

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn

Fleiri bakarar landsins velja lífræna heilhveitið frá Vallanesi í bakaríin sín. ...

67,5 milljónum úthlutað
Fréttir 29. júní 2026

67,5 milljónum úthlutað

Alls hlutu 25 verkefni styrki úr Þróunarfé búgreina upp á 67,5 milljónir króna. ...

Fuglum og fiðrildum fækkar
Fréttir 29. júní 2026

Fuglum og fiðrildum fækkar

Stofnar fugla og fiðrilda hafa farið hnignandi frá árinu 2000. Þetta kemur fram ...

Efla samstarf um fæðuöryggi
Fréttir 29. júní 2026

Efla samstarf um fæðuöryggi

Norðurlöndin hafa ákveðið að styrkja sameiginlegt fæðuöryggi á tímum aukinnar óv...

Kalla eftir skjalasöfnum bóndakvenna
Fréttir 29. júní 2026

Kalla eftir skjalasöfnum bóndakvenna

Kvennasögusafn Íslands varðveitir um 400 einkaskjalasöfn og var stofnað sem gras...