Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Réttaröryggi bænda er ekki aukaatriði
Leiðari 12. febrúar 2026

Réttaröryggi bænda er ekki aukaatriði

Höfundur: Þröstur Helgason, ritstjóri

Frumvarp til breytinga á búvörulögum, sem nú liggur fyrir atvinnuveganefnd, er ekki bara tæknilegt plagg um samkeppnisheimildir. Það vekur grundvallarspurningar um stöðu og framtíð íslensks landbúnaðar, um rekstraröryggi bænda og um það hvort afurðastöðvar – og þar með neytendur – búi við fyrirsjáanlegt og sanngjarnt regluverk. Og enn á ný blasir við sú óþægilega niðurstaða að frumvarpið, eins og það er nú, þjónar þeim hagsmunum illa sem ættu að vera í forgangi.

Það er ekki eins og umsagnir hagsmunaaðila séu tvíræðar. Samtök fyrirtækja í landbúnaði hafna frumvarpinu algerlega í núverandi mynd og benda á að lagabreytingarnar séu illa útskýrðar, matskenndar og skapi réttarfarslega óvissu. Bændasamtök Íslands og tveir fyrrverandi hæstaréttardómarar taka í sama streng: frumvarpið er óskýrt, misvísandi og opnar dyr fyrir afturvirkni sem gæti grafið undan grundvallarréttindum bænda og afurðastöðva.

Í landbúnaði er rekstraröryggi ekki munaðarvara. Það er forsenda þess að bændur geti fjárfest, skipulagt framleiðslu og sinnt þeirri samfélagslegu skyldu að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar. Þegar löggjöf er óljós um hvar mörkin liggja, hvaða reglur gilda og hvenær þær gilda – þá fölna allar framtíðaráætlanir.

Eitt það alvarlegasta sem bent er á í umsögnum er að undanþágur afurðastöðva frá samkeppnislögum verði afnumdar án greinargóðrar röksemdafærslu. Núverandi undanþága hefur skilað verulegri hagræðingu í mjólkuriðnaði og sambærilegar þarfir liggja fyrir í sláturiðnaði. Að ráðast í kerfisbreytingu án þess að svara einföldum spurningum um „hvers vegna nú?“ og „hvaða áhrif mun þetta hafa?“ er óábyrgt gagnvart bændum og neytendum.

Sérstaklega er gagnrýnt að mismunandi reglur eigi að gilda eftir tegund sláturdýra: að undanþágur gildi áfram í sauðfjár-, nautgripa- og hrossasláturhúsum, en ekki í alifugla- og svínaslátrun. Slík mismunun, án rökstuðnings, er ekki aðeins óskiljanleg heldur óboðleg. Það er eðlileg krafa að sama lagaumgjörð gildi um alla þá sem búa við sambærilegar aðstæður.

Ítrekað er varað við því að Samkeppniseftirlitinu séu færðar víðtækar valdheimildir án þess að sett séu skýr mörk. Ef eftirlitsaðili getur tekið ákvarðanir sem brjóta upp rekstrarfyrirkomulag í mjólkuriðnaði – jafnvel án þess að brot hafi átt sér stað – þá er verið að opna dyr fyrir óafturkræfu tjóni. Slíkt er ekki einkamál afurðastöðva; það bitnar á bændum sem missa traust á kerfinu og á neytendum sem eiga á hættu að sitja eftir með dýrari og óstöðugri matvælakeðju.

Þegar tveir fyrrverandi hæstaréttardómarar vara við lagalegum þversögnum og mögulegri bótaskyldu ríkisins vegna skerðingar á réttindum afurðastöðva, þá er ástæða til að staldra við. Þetta eru ekki jaðarsjónarmið heldur alvarleg stjórnskipuleg álitaefni. Ef löggjafinn ætlar að breyta grunnstoðum atvinnugreinar sem byggir á leyfisskyldu og fjárfestingum til áratuga verður það að vera gert með skýrleika, fyrirsjáanleika og vönduðum rökum – ekki með pólitískum handabendingum.

Hagræðing í afurðavinnslu hefur skilað íslenskum neytendum stöðugu framboði og hóflegu verði á innlendri framleiðslu. Hún byggir á því að bændur og afurðastöðvar geti starfað í samhentu og skilvirku kerfi. Að grafa undan þeirri hagræðingu án mótraka er skref í ranga átt.

Ef löggjafinn vill efla samkeppni verður að gera það á upplýstan hátt, með skýrum markmiðum og raunsærri greiningu á áhrifum. Sú greining hefur ekki farið fram.

Heimildabrunnur um lífið  í Þingeyjarsýslum
Fréttir 21. maí 2026

Heimildabrunnur um lífið í Þingeyjarsýslum

Árbók Þingeyinga hefur verið gefin út samfellt í nær sjötíu ár og er eitt elsta ...

Frjálsi lífeyrissjóðurinn og Lífeyrissjóður bænda sameinast
Fréttir 21. maí 2026

Frjálsi lífeyrissjóðurinn og Lífeyrissjóður bænda sameinast

Stjórnir Frjálsa lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs bænda hafa undirritað samning...

Sjóklæðagerðin 66°N fagnar aldarafmæli
Fréttir 20. maí 2026

Sjóklæðagerðin 66°N fagnar aldarafmæli

Ein helsta borgarhátíð Reykjavíkur, HönnunarMars, fór fram dagana 6.–10. maí sl....

Landnámssetrið 20 ára
Fréttir 20. maí 2026

Landnámssetrið 20 ára

Miðvikudaginn 13. maí eru 20 ár liðin frá opnun Landnámssetursins í Borgarnesi o...

Afréttamálafélags Flóa og Skeiða – fyrstu heiðursfélagarnir heiðraðir
Fréttir 20. maí 2026

Afréttamálafélags Flóa og Skeiða – fyrstu heiðursfélagarnir heiðraðir

Afréttamálafélag Flóa og Skeiða, sem er 73 ára gamalt félag, gerði á aðalfundi s...

Norðurslóðir hitna hraðast
Fréttir 19. maí 2026

Norðurslóðir hitna hraðast

Evrópa er sú heimsálfa sem hitnar hraðast og hitabylgjur teygja sig úr Miðjarðar...

Norðmenn geti ekki reitt  sig eingöngu á fisk
Fréttir 19. maí 2026

Norðmenn geti ekki reitt sig eingöngu á fisk

Þrátt fyrir að Noregur sé ein stærsta fiskveiðiþjóð heims er þjóðin ekki í þeirr...

Sláturfélagið byggir nýtt stórgripasláturhús
Fréttir 19. maí 2026

Sláturfélagið byggir nýtt stórgripasláturhús

Sláturfélag Suðurlands (SS) hefur ákveðið að byggja nýtt stórgripasláturhús við ...