Átta eggja salat þarf slatta af mæjónesi en rétt um 10 grömm per egg er ágætis lokastaður. Þau sem vilja minna gera það á eigin ábyrgð. Þurrt eggjasalat er ekki páskaeggjasalat.
Átta eggja salat þarf slatta af mæjónesi en rétt um 10 grömm per egg er ágætis lokastaður. Þau sem vilja minna gera það á eigin ábyrgð. Þurrt eggjasalat er ekki páskaeggjasalat.
Mynd / Aðsend
Matarkrókurinn 7. apríl 2026

Páskaeggjasalat

Höfundur: Haraldur Jónasson

Páskarnir eru oft síðasta tækifæri ársins fyrir vetrarhasar. Skíðaferðir milli landshluta, vélsleðabras, ísdorg eða bara skautar á frosinni tjörn. Það sem sameinar þetta allt er nesti og heimagert nesti er alltaf betra en þurr samloka á bensínstöð. Þar kemur eggjasalatið inn. Heldur öllu mjúku í marga daga. Stjarnan í nestisboxinu.

Eggjasalati er svo hægt að breyta í rækjusalat, túnfisksalat og eggjað hangikjötsalat. Það er hægt að troða gúrku út í eða toppa með því besta, reyktum silungi. Passa bara að huga að saltmagninu, ef það sem við bætum út í er salt. En nóg um það við erum að gera eggjasalat sem er svo gott að það þarf varla brauð, bara skeið.

Meðalstórt egg er um 60 grömm sem þýðir að þetta er sirka hálft kíló. Gott að eiga vont að vanta og allt það en fyrst þarf að harðsjóða eggin. Það eru alls konar leiðir til að sjóða egg. Einfaldasta leiðin er að sjóða í hraðsuðukatli. Setja egg í botninn og fylla ketilinn af köldu vatni. Suðan látin koma upp, ketillinn slekkur á sér sjálfur og við bíðum í korter. Útkoman er fullkomlega harðsoðin egg. Kæla með köldu vatni og skræla. Hraðsuðupottur er líka stórkostleg eggjasuðugræja. Sjóða í 4 mínútur undir þrýstingi og bíða svo í fimm mínútur. Hleypa gufunni út og kæla. Skurnin fer af egginu eins og verið sé að hátta ungabarn.

Eitt stærsta vandamál okkar Íslendinga síðustu hundrað árin eða svo er hve vel við tókum þýska eggjaskeranum. Hann er auðvitað merkilegt tæki og virkar nákvæmlega eins og á að gera en þar liggur líka vandinn. Skerinn sker eggin of vel. Endarnir verða sléttir og sleipir svo mæjónesan festist ekki. Lausnin er að rífa sirka 1/3 af eggjunum með stóru boxrifjárni. Skera restina með þeim klassíkska. Gaman að taka eitt, tvö egg bara þversum. Til að fá enn meiri áferðarmismun.

Mæjó, krydd og annað jukk

Það þarf svo meira en bara egg til að gera eggjasalat. Mæjónes er lykilatriði. Vanda vel valið og auðvitað þarf ekkert að huga að veganmæjónesi. Eggjasalat getur aldrei orðið vegan. Ekki heldur fikta með léttmæjó. Við viljum alvöru mæjónes, heimatilbúið ef á því er minnsti kostur.

Næsta sem þarf er laukur. Hægt að nota hvaða lauk sem hugurinn girninst; gras, vor, púrru eða rauðan. En gamli góði laukurinn er þægilegastur. Sá er þó hættulegur alveg hrár. Við skolum hann til með ediki. Áður en eggin fara í pottinn eru 20 grömm eða kúfuð matskeið af venjulegum lauk saxaður örsmátt. Líka hægt að nota rifjárnið góða. Þrjár–fjórar teskeiðar af ediki, sirka 10 grömm, eru svo hrærðar saman við laukinn ásamt smá salti. Þetta jukk fær svo að bíða þangað til eggin hafa verið hanteruð.

Eggin, bæði rifin og skorin, fara ofan í sæmilega stóra skál. Þá laukblandan og mæjónesið. Næst þarf að taka ákvörðun því það eru tveir skólar í eggjasalatframleiðslu. Sinnep eða ekki sinnep? Gott dijonsinnep á gjarnan heima í salatinu en fransk/danska pölsesinnepið ekki. En best er þó að skutla nokkrum dropum af eldpiparsósu í staðinn. Örlítið hlutlausara val og verður ekki mjög sterkt því mæjónesið verndar okkur frá capsísísinu.

Þá er að velja krydd. Við þurfum ekki laukduft en örlítið af hvítlauksdufti er ákjósanlegt. Hér er þó hægt að velja allt milli himins og jarðar. Allt eftir smekk. En einfalt er alltaf best. Arómat var klassískt í gamla daga og þar sem það er af stórum hluta MSG er það ákjósanlegt í snefilmagni. Hreint MSG líka. Fæst í „útlensku“ búðunum. Líka í fagbúðum en þá þarf oft að kaupa nokkur kíló.

Hræra allt saman, smakka til með salti, smyrja samlokur, setja ofan í makkíngtossdollu og fara í vetrarhasar hið snarasta.

Skylt efni: matarkrókur | eggjasalat

Framandi tegundir í sjónmáli
Fréttir 7. apríl 2026

Framandi tegundir í sjónmáli

Ekki allar framandi tegundir eru ágengar en mikilvægt er að vakta vel hvaða ágen...

„Við náum ekki að uppfylla markaðsþörf í neinni tegund í dag“
Fréttir 7. apríl 2026

„Við náum ekki að uppfylla markaðsþörf í neinni tegund í dag“

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskinsgrænmetis, ...

Þróun sérmerkinga fyrir íslenskt nautakjöt
Fréttir 7. apríl 2026

Þróun sérmerkinga fyrir íslenskt nautakjöt

MATÍS heldur utan um verkefni sem felur í sér að þróa tillögu að aðgreiningu og ...

Stefnumót matvælaframleiðenda og ferðaþjónstuaðila
Fréttir 7. apríl 2026

Stefnumót matvælaframleiðenda og ferðaþjónstuaðila

Slow Food samtökin á Íslandi og sveitarfélögin í uppsveitum Árnessýslu, með stuð...

Stríðið hefur áhrif á áburðarverð
Fréttir 7. apríl 2026

Stríðið hefur áhrif á áburðarverð

Ófriðurinn í Mið-Austurlöndum hefur haft í för með sér truflanir á flutningi mik...

Hitastig sjávar að vetri aldrei hærra
Fréttir 26. mars 2026

Hitastig sjávar að vetri aldrei hærra

Niðurstöður mælinga sýna að hitastig sjávar og selta hafa aldrei verið hærri að ...

Góður samhljómur fyrir búvörusamningana
Fréttir 26. mars 2026

Góður samhljómur fyrir búvörusamningana

Á deildarfundi sauðfjárbænda var Eyjólfur Ingvi Bjarnason endurkjörinn formaður ...

Sátt ríkir um núverandi stuðningsfyrirkomulag
Fréttir 26. mars 2026

Sátt ríkir um núverandi stuðningsfyrirkomulag

Alls voru 18 tillögur til afgreiðslu hjá sauðfjárbændum á deildarfundi þeirra se...