Ný stoð í íslensku atvinnulífi
Leiðari 19. nóvember 2026

Ný stoð í íslensku atvinnulífi

Höfundur: Þröstur Helgason

Á Íslandi er að verða til fiskeldi á landi sem innan fárra ára gæti skapað útflutningsverðmæti á við stórar og rótgrónar undirstöðugreinar þjóðarbúsins. Uppbyggingin er þegar hafin, fjárfestingar nema háum fjárhæðum, tæknin þróast hratt og lax frá íslenskum landeldisstöðvum er kominn á erlenda markaði.

Bændablaðið hefur að undanförnu fjallað ítarlega um uppbyggingu stærstu landeldisfyrirtækjanna. Áform þeirra vekja athygli. First Water stefnir á 60 þúsund tonna ársframleiðslu, Thor Salmon á allt að 40 þúsund tonn og Samherji áformar eldisgarð á Reykjanesi sem gæti náð 36 þúsund tonna framleiðslugetu. Laxey byggir svo upp eina af stærri landeldisstöðvum sinnar tegundar í Vestmannaeyjum.

Samkeppnisstaða Íslands í þessari atvinnugrtein byggist á samspili margra þátta. Hér er aðgangur að hreinum sjó og vatni, endurnýjanlegri orku, góðum höfnum og alþjóðaflugvelli. Landið liggur vel við mörkuðum beggja vegna Atlantshafsins og Íslendingar búa yfir mikilli reynslu af sjávarútvegi, fiskvinnslu, flutningum og útflutningi ferskra sjávarafurða.

Varan sjálf þarf enga kynningu. Lax er ein vinsælasta fiskafurð heims og markaðurinn gríðarlega stór. Þar hefur landeldið jafnframt sérstaka kosti. Aðstæður eru stýrðar, framleiðslan fyrirsjáanleg og hægt að tryggja kaupendum fisk með jöfnum gæðum. Vandamál vegna laxalúsar eru ekki þau sömu og í sjókvíaeldi og strokshætta er hverfandi.

Tækifærin liggja líka víðar. Í landeldinu falla til næringarefni sem nýta má, meðal annars til áburðarframleiðslu og lífgasgerðar. Þar geta skapast áhugaverð tengsl við íslenskan landbúnað og möguleikar á að draga úr þörf fyrir innflutt aðföng.

En svo umfangsmikil uppbygging krefst gríðarlegs fjármagns. Fjárfestar og lánveitendur þurfa að vita eftir hvaða reglum verður leikið til framtíðar. Þar stendur hnífurinn í kúnni.

Landeldisfyrirtækin hafa kallað eftir skýrri lagaumgjörð sem taki mið af sérstöðu starfseminnar. Það er sanngjörn krafa. Landeldi á ekki að fá afslátt af eðlilegum kröfum um umhverfisvernd, dýravelferð og ábyrga auðlindanýtingu. En reglurnar þurfa að vera skýrar, málefnalegar og fyrirsjáanlegar.

Íslendingar hafa áður byggt velmegun á því að nýta náttúruleg skilyrði landsins með þekkingu, tækni og útsjónarsemi. Allt bendir til þess að landeldi verði meðal mikilvægustu útflutningsgreina landsins á næstu árum ef rétt er staðið að málum.

Það er full ástæða til bjartsýni. Kerin eru risin, fiskurinn er kominn í þau og íslenskur lax er þegar farinn á erlenda markaði. Nú þarf lagaumhverfið einfaldlega að ná í skottið á atvinnugreininni. Þröstur Helgason

Skylt efni: Leiðari | landeldi

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki
Fréttir 19. nóvember 2026

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki

Sjóklæðagerðin sem er framleiðandi og sölulaðili 66°Norður hefur stofnað til sam...

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir
Fréttir 19. nóvember 2026

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir

Unnið er að því að innleiða íslenska losunarstuðla fyrir framræst votlendi inn í...

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps
Fréttir 19. nóvember 2026

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps

Til stóð að skýrslu yrði skilað til umhverfis-, orku- og lofts- lagsráðherra 15....

Engin alvarleg frávik á svínabúinu
Fréttir 19. nóvember 2026

Engin alvarleg frávik á svínabúinu

Engin alvarleg frávik frá reglum um velferð svína komu fram í eftirlitsheimsókn ...

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna
Fréttir 18. nóvember 2026

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna

Svokölluð Yerevan áætlun var samþykkt á þingi aðildarríkja um samning Sameinuðu ...

Nýtt fræhús á Vöglum
Fréttir 18. nóvember 2026

Nýtt fræhús á Vöglum

Nýtt fræhús á Vöglum í Fnjóskadal var formlega afhent Land og skógi af Jóhanni P...

Þjónusta Microsoft liggur niðri
Fréttir 13. nóvember 2026

Þjónusta Microsoft liggur niðri

Vegna vandræða í kerfum Microsoft liggur tölvupóstur Bændablaðsins tímabundið ni...

Matarmót Austurlands á laugardaginn
Fréttir 12. nóvember 2026

Matarmót Austurlands á laugardaginn

Matarmót Austurlands verður haldið í sjötta sinn í Sláturhúsinu á Egilsstöðum la...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f