Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Bændurnir á Efstalandi í Öxnadal hafa náð miklum árangri í nautgriparækt. Hér sjást Rúnar Þór Ragnarsson og Júlía Sgorsaly ásamt Ísaki Mána Rúnarssyni í húsi sem áður var hlaða en þau innréttuðu sem uppeldisaðstöðu fyrir naut.
Bændurnir á Efstalandi í Öxnadal hafa náð miklum árangri í nautgriparækt. Hér sjást Rúnar Þór Ragnarsson og Júlía Sgorsaly ásamt Ísaki Mána Rúnarssyni í húsi sem áður var hlaða en þau innréttuðu sem uppeldisaðstöðu fyrir naut.
Mynd / Aðsend
Fréttir 23. febrúar 2026

Nautin uxu hraðast á Efstalandi

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Daglegur vöxtur ungneytanna á Efstalandi í Öxnadal var að meðaltali 714,5 grömm á dag. Bændurnir þar eru með 120 kýr sem munu bera í vor.

Eins var það einstaka naut sem náði hraðasta vexti á síðasta ári frá Efstalandi. Á listanum yfir tíu bestu nautin þegar kemur að vaxtarhraða voru sjö frá þeim bæ. Rúnar Þór Ragnarsson, bóndi á Efstalandi, segir í samtali að kynbætur og rétt fóðrun hafi skipt miklu til að ná þessum árangri. „Ég hef nýtt mér nýja anguskynið í botn. Bæði sæði ég stóran hluta af kúnum hjá mér og hef keypt mér kynbótanaut árlega,“ segir hann. Rúnar segir að með réttu vinnulagi og góðri aðstöðu sé hægt að sæða kýrnar, en á landsvísu er talsverður minnihluti kúa á holdanautabúum sæddur.

Vigtar alla gripi reglulega

„Við erum með kýrnar úti í hólfi rétt við bæinn og rekum þær inn í gerði á hverjum einasta morgni þegar við sæðum í ágúst og byrjun september. Við erum með SenseHub beiðslisgreini á kúnum og ég tíni þær úr sem eru yxna og set í tökubásinn og sæðir frjótæknirinn þær þar. Þetta snýst aðallega um að kýrnar séu yfirvegaðar. Af rúmum 80 kúm sem voru sæddar náðu 78 prósent fanghlutfalli núna í ár, sem er mjög gott,“ segir hann. Hreinræktað angus-naut sér um að koma kálfi í rest.

Allar kýr sem hafa fæðst á bænum eru með yfir 50 prósent angus-erfðaefni og var erfðaefni stórs hluta gripanna sem fæddust í fyrra með yfir 75 prósent angus. Rúnar gerir sér vonir um að ná hreinræktuðum angus-stofni innan örfárra ára, en hann segir nautgripi af því kyni vera með mun betra geðslag og vaxtarhraða samanborið við önnur holdanaut. Spakir gripir skipti miklu máli upp á öryggi við alla umhirðu.

„Við vigtum öll nautin og kvígurnar reglulega og stillum fóðrun eftir því, en ég held að það sé það sem ég geri öðruvísi en margir aðrir. Gripirnir sem eru inni eru teknir upp í fóðurgang og reknir í gegnum vigt. Hún sýnir mér bæði daglegan vöxt frá fæðingu og frá síðustu vigtun, sem er yfirleitt með 45 til 60 daga millibili. Þannig get ég fylgst með hvernig gripirnir bregðast við fóðruninni.“ Hann leggur mikið upp úr að ná góðum heyjum og segist Rúnar hafa endurræktað mörg af sínum túnum. Þeir gripir sem þurfa aukna orku fá bygg og þeir gripir sem þurfa meira prótein fá kjarnfóðurblöndu.

Mikil tækifæri í holdanautarækt

Rúnar segir miklu skipta að ná réttum takti til að nýta aðstöðuna sem best. Kýrnar bera í maí og eru kálfarnir teknir undan kúnum í nóvember. Þeir vaxa inni í húsi fram í október á næsta ári þegar þeir eru sendir í sláturhús. Með því skapast rými fyrir næsta hóp kálfa og þannig gengur þetta ár fram af ári. „Við sendum nautin frá okkur í tveimur hollum í fyrra. Ég byrjaði á því að senda þyngstu nautin í sláturhús í september til þess að fá aðeins meira vaxtarrými fyrir hin nautin sem voru send í október.“

Rúnar, sem á rætur að rekja til Kvernár í Grundarfirði, hóf búskap að Efstalandi árið 2021. Hann nær að hafa fulla atvinnu af búrekstrinum, á meðan eiginkona hans, Júlía Sgorsaly, starfar utan bús sem bókari. Hann segir mikil tækifæri vera í holdanautarækt. „Með alls konar brögðum er þetta hægt og tækifærin eru þarna,“ segir hann.

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna
Fréttir 1. október 2026

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna

Magnús Kristjánsson hefur verið skipaður í embætti forstjóra Stofnunar atvinnuve...

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum
Fréttir 30. september 2026

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum

First Water og Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar byggingarframkvæmd...

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir
Fréttir 30. september 2026

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hrys...

Reglugerð gefin út
Fréttir 30. september 2026

Reglugerð gefin út

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur gefið út reglugerð um kortlagningu ...

Játar innbrot í eldisbú
Fréttir 30. september 2026

Játar innbrot í eldisbú

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og hefur hann játað á sig innbrot og eig...

Minni kornstuðningur  en áætlað var
Fréttir 30. september 2026

Minni kornstuðningur en áætlað var

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár verður framlag stjórnvalda til stuðnin...

Vilja stytta bilið frá býli að borði
Fréttir 29. september 2026

Vilja stytta bilið frá býli að borði

Nýundirritaður þriggja ára samstarfssamningur á milli Landbúnaðarháskóla Íslands...

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun
Fréttir 29. september 2026

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun

Uppskera er verkefni á vegum GETA-samtakanna þar sem fjölskyldur fá ræktunarreit...

Horfinn er séra Oddur
6. október 2026

Horfinn er séra Oddur

Hugrekki persónulegrar tjáningar
6. október 2026

Hugrekki persónulegrar tjáningar

Vönduð óþekkt
6. október 2026

Vönduð óþekkt

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.
6. október 2026

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.

Margrét Þóra
7. október 2026

Margrét Þóra