Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Minni skammtar, meira prótein!
Á faglegum nótum 12. febrúar 2026

Minni skammtar, meira prótein!

Höfundur: Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði.

Geysimiklar vinsældir þyngdarstjórnunarlyfja undanfarin misseri hafa haft eftirtektarverð áhrif á matvælamarkaðinn. Við notkun slíkra lyfja minnkar matarlyst og því þurfa notendur að huga sérstaklega að næringargildi fæðunnar til þess að koma í veg fyrir rýrnun vöðvamassa, með tilheyrandi heilbrigðisáhættu. Þetta hefur áhrif á hvaða matvæli neytendur velja og hvað þeir eru tilbúnir að greiða fyrir þau. Eftir því sem notendum þyngdarstjórnunarlyfja fjölgar eykst eftirspurnin eftir minni matarskömmtum með háu prótein- og næringargildi.

Framleiðendur og smásöluaðilar hafa ekki farið varhluta af þessari þróun. Erlendis hafa stórmarkaðir brugðist við með því að setja á markað máltíðir sem eru sérstaklega hannaðar fyrir þennan neytendahóp og veitingastaðir hafa aðlagað matseðla sína til að mæta aukinni eftirspurn eftir prótein- og trefjaríkum valkostum.

Þessi breyting í neysluhegðun hefur einnig áhrif á markaðsverðmæti matvæla, sérstaklega próteinvöru. Í nýlegri umfjöllun The Independent var bent á að auk þess sem öll aðföng til matvælaframleiðslu hafi verið að hækka í verði sökum m.a. óstöðugleika á alþjóðavettvangi, þá eigi aukin eftirspurn eftir próteini til að mæta næringarþörfum notenda þyngdarstjórnunarlyfja sinn þátt í hækkandi matvælaverði.

Aukinni eftirspurn fylgja aukin tækifæri

Íslendingar eru duglegir að fylgja hvers konar straumum og því kemur ekki á óvart að notkun þyngdarstjórnunarlyfja hérlendis er nokkuð algengari en í nágrannalöndum okkar. Síðastliðið haust notuðu 20 þúsund Íslendingar þyngdarstjórnunarlyf. Íslenskir matvælaframleiðendur hafa fundið fyrir aukinni eftirspurn eftir próteinríkum vörum og má þar nefna Ísey, en skyr er gott dæmi um vöru sem uppfyllir kröfu um hátt prótein- og næringargildi, þar sem það inniheldur þrisvar sinnum meira prótein en hefðbundið jógúrt.

Hér eru augljós tækifæri fyrir íslenska matvælaframleiðslu, sérstaklega þar sem þegar er lögð áhersla á gæði og hollustu. Rík hefð er fyrir framleiðslu á próteinríkum afurðum á borð við kjöt og mjólkurvörur, svo ekki sé minnst á allan fiskinn. Íslenskir bændur hafa sýnt að þeir geta brugðist liðlega við aukinni eftirspurn eftir mjólk og hefur framleiðslan aukist jafnt og þétt samhliða eftirspurn. Þótt framleiðsluferill kjöts sé lengri, mismunandi eftir tegundum, sýna bæði sölu- og innflutningstölur að svigrúm er til aukinnar framleiðslu.

Mikilvægi stöðugs og samkeppnishæfs rekstrarumhverfis

Svo að þessi tækifæri geti orðið að veruleika þarf þó að tryggja stöðugt og samkeppnishæft rekstrarumhverfi fyrir matvælaframleiðendur. Fyrirsjáanleiki í regluverki og hóflegar álögur skipta sköpum þegar ráðist er í fjárfestingar í búnaði, húsnæði og öðru til framleiðsluaukningar. Matvælaframleiðsla krefst alla jafna þolinmóðs fjármagns og á mikið undir því að skilyrði breytist ekki skyndilega. Samkeppnishæfni innlendrar framleiðslu ræður einnig úrslitum um hvort aukinni eftirspurn verði mætt með íslenskum vörum eða innflutningi. Með markvissum aðgerðum stjórnvalda sem styðja við innlenda framleiðslu má tryggja að virðisaukinn verði eftir innanlands, bændum, framleiðendum og neytendum til hagsbóta.

Ef eftirspurn eftir prótein- og næringarríkri fæðu heldur áfram að aukast, líkt og heilbrigðis- og lyfjafyrirtæki telja að verði, þarf samhliða að auka við framboðið. Þessar neyslubreytingar bjóða upp á tækifæri fyrir innlenda framleiðendur til þróa fleiri og fjölbreyttari próteinríkar vörur, hvort sem er að ræða kjöt, egg, mjólkurafurðir eða tilbúna rétti úr íslenskum hráefnum. Slíkt framboð mætir ekki aðeins neysluþörfum þeirra sem nota þyngdarstjórnunarlyf, heldur einnig sívaxandi hóps sem vilja viðhalda háu próteini í fæðu.

Með minnkandi matarskömmtum geta nefnilega falist tækifæri til vaxtar og virðisauka. Oft er minna meira.

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...

Málþing í tilefni af degi landbúnaðarins
Fréttir 8. október 2026

Málþing í tilefni af degi landbúnaðarins

Dagur landbúnaðarins verður haldinn í dag, 8. október, í Sjálfstæðissalnum á Par...

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna
Fréttir 1. október 2026

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna

Magnús Kristjánsson hefur verið skipaður í embætti forstjóra Stofnunar atvinnuve...

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum
Fréttir 30. september 2026

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum

First Water og Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar byggingarframkvæmd...

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir
Fréttir 30. september 2026

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hrys...