Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Maríulyklar, litríkt síðvetrarskraut
Á faglegum nótum 19. mars 2019

Maríulyklar, litríkt síðvetrarskraut

Höfundur: Sigríður Embla Heiðmarsdóttir

Maríulyklar (Primula) eru stór ættkvísl blómfagurra plantna sem hafa verið vinsælar garðplöntur í aldanna rás. Eftirsóknarverð blómin eru gríðarlega fjölbreytt á litinn og margir safna ólíkum litbrigðum tegunda innan ættkvíslarinnar. 

Yfir 500 tegundir eru í ættkvíslinni og mikill áhugi víða á kynbótum til að búa til ný yrki. Nú þegar vorið er að nálgast færast þessi fallegu blóm úr uppeldi í íslenskum gróðrarstöðvum yfir í híbýli landsmanna. Einkum og sér í lagi er það tegundin laufeyjarlykill, Primula vulgaris, og yrki af honum sem koma á markað mjög snemma á vorin, sem vetrarblómstrandi maríulyklar eða prímúlur.

Uppruni laufeyjarlykils

Laufeyjarlykill er evrópsk tegund og sá maríulykill sem byrjar einna fyrst að blómstra á vorin, jafnvel í mars-apríl. Tegundin sjálf er gulblómstrandi.  Nokkrar undirtegundir laufeyjarlykils er að finna austur um og yfir í Asíu og koma þar inn fleiri blómlitir.  Laufeyjarlykillinn þrífst best í hæfilega rökum jarðvegi, hvorki of blautum né þurrum. Hann þarf ekki sól allan daginn og líður vel í hálfskugga. 

Heiti ættkvíslarinnar, Primula, er dregið af latneska orðinu primus sem þýðir að vera fyrstur, í tilfelli maríulykla að þeir eru fyrstir til að blómstra snemma vors. Ein smágerð tegund af maríulykilsætt, maríulykill (Primula stricta) lifir villt á Íslandi en er afar sjaldgæf og talin í hættu á að hverfa úr íslenskri náttúru. Önnur tegund, Davíðslykill (Primula egalikensis), hefur fundist á Íslandi en er nú talin útdauð hér.

Útlitseinkenni

Laufeyjarlykill er með heil, aflöng laufblöð sem sitja í jarðlægri hvirfingu og blómin koma upp á 10–15 cm háum stilkum, nokkur blóm í knippi á hverjum stöngli.  Blómin geta verið einlit eða í fleiri litum, blómlitir skærir og á hverju ári koma fram ný og skemmtileg yrki sem heilla garðeigendur. 

Góð bæði inni og úti

Yfirleitt tengir fólk að laufeyjarlykill sé útiblóm en hann má einnig nota sem inniplöntu. Hann er þá í sölu á útmánuðum og fram á sumar. Laufeyjarlykillinn verður yfirleitt aðeins einær sem inniplanta en gefur mikla gleði í lok vetrar með sínum marglitu blómum. Það getur verið erfitt að halda honum á lífi eftir að blómin hafa sölnað og því tilvalið að gróðursetja hann úti að því loknu, þá er hann líklegur til að tækla aðstæðurnar sjálfur sem útiplanta.

Inniprímúlur verða endingar­betri ef þær eru hafðar á svölum stað í vægum skugga, td. á borði í stofu eða eldhúsi fremur en í gluggakistu yfir ofni og ekki látnar þorna, þá verða þær litrík síðvetrarblóm í heimahúsum.

Laufeyjarlykill nær sjaldnast að lifa af veturinn nema í allra skjólbestu görðum og verður þá yfirleitt ekki langlífur. Hins vegar nýtist hann mjög vel eins og sumarblóm í ker og potta snemma vors, þegar fáar aðrar tegundir eru farnar að huga að blómgun og garðeigendur orðnir langeygir eftir blómum. Það er því tilvalið að gleðja augun og andann með laufeyjarlykli, þessum litríku síðvetrarblómum.
 
 

Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017
Fréttir 20. nóvember 2026

Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017

Sauðfjárslátrun er nú lokið í öllum stærri sláturhúsum landsins og er nú ljóst a...

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki
Fréttir 19. nóvember 2026

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki

Sjóklæðagerðin sem er framleiðandi og sölulaðili 66°Norður hefur stofnað til sam...

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir
Fréttir 19. nóvember 2026

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir

Unnið er að því að innleiða íslenska losunarstuðla fyrir framræst votlendi inn í...

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps
Fréttir 19. nóvember 2026

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps

Til stóð að skýrslu yrði skilað til umhverfis-, orku- og lofts- lagsráðherra 15....

Engin alvarleg frávik á svínabúinu
Fréttir 19. nóvember 2026

Engin alvarleg frávik á svínabúinu

Engin alvarleg frávik frá reglum um velferð svína komu fram í eftirlitsheimsókn ...

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna
Fréttir 18. nóvember 2026

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna

Svokölluð Yerevan áætlun var samþykkt á þingi aðildarríkja um samning Sameinuðu ...

Nýtt fræhús á Vöglum
Fréttir 18. nóvember 2026

Nýtt fræhús á Vöglum

Nýtt fræhús á Vöglum í Fnjóskadal var formlega afhent Land og skógi af Jóhanni P...

Þjónusta Microsoft liggur niðri
Fréttir 13. nóvember 2026

Þjónusta Microsoft liggur niðri

Vegna vandræða í kerfum Microsoft liggur tölvupóstur Bændablaðsins tímabundið ni...

Hrossin eiga hug þeirra allan
30. júní 2025

Hrossin eiga hug þeirra allan

Ævintýraland forms og áferðar
12. nóvember 2026

Ævintýraland forms og áferðar

Heiðbrá Erla
21. október 2026

Heiðbrá Erla

Gosi banar geimi
18. nóvember 2026

Gosi banar geimi

Tryggvi Björn
13. nóvember 2026

Tryggvi Björn