Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Herdís Magna Gunnarsdóttir á Búnaðarþingi 2026.
Herdís Magna Gunnarsdóttir á Búnaðarþingi 2026.
Mynd / Ástvaldur Lárusson
Skoðun 7. apríl 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Þær hafa sömuleiðis minni aðgang að fjármagni, tækni og menntun til slíkra starfa og þær taka enn fremur minni þátt í ákvörðunum um það hvernig starfsumhverfi þeirra og annarra sem starfa í landbúnaði er háttað. Markmiðið með því að beina athyglinni að konum í landbúnaði er að breyta þessu og auka bæði stuðning við konur í þessari atvinnugrein vítt og breytt um heiminn og fjölga tækifærum þeirra.

Herdís Magna Gunnarsdóttir, kúabóndi á Egilsstöðum og varaformaður Bændasamtaka Íslands, fjallaði um stöðu kvenna í landbúnaði við setningu Búnaðarþings á mánudag. Í hennar máli kom fram að staðan á Íslandi er að mörgu leyti betri en víðast hvar annarsstaðar. Hvað varðar þátttöku kvenna í landbúnaði er hún raunar til fyrirmyndar. Hér er 27% bænda konur en í Danmörku, Noregi og Svíþjóð eru þær einungis 8-16% bænda, lægst er hlutfallið í Danmörku. Hindranir sem taldar eru standa í vegi fyrir því að konur verði bændur í Skandinavíu eru menning í greininni, landbúnaður hefur lengi verið talinn hefðbundið karlastarf og þannig birtist það almenningi í fjölmiðlum og í daglegu tali. Fleiri drengir erfa bú og konur fá minni þjálfun í tæknilegum hluta bústarfanna. Herdís Magna nefndi sérstaklega að rannsóknir hefðu sýnt að þó að aukin tæknivæðing hefði ekki endilega fjölgað konum í landbúnaði, eins og gera hefði mátt ráð fyrir, heldur hafi fleiri tól og tæki frekar vakið enn frekari áhuga karla á því að starfa í greininni. Eitt af því sem þyrfti að gera væri því að efla tækniþekkingu kvenna sem sækja landbúnaðarnám. Að endingu gæti vinnumenning í sveitum verið krefjandi fyrir konur.

En þó að konur séu hlutfallslega fleiri í bændastétt hér á landi en í Skandinavíu sagði Herdís Magna að hér mætti gera enn betur og raunar gætu opinber gögn verið að vanmeta framlag kvenna. Konur væru í raun um 40 prósent þeirra sem starfa í landbúnaði en þær væru sjaldnar en ekki taldar til bænda. Þær séu einnig í meirihluta nemenda í landbúnaðarnámi á landinu. Og meðlimir Bændasamtakanna eru 40 prósent konur. Þar eru þær þó oftar í minnihluta stjórna. Konur eru síður formenn búgreina og aldrei hefur kona verið formaður Bændasamtakanna. Á Búnaðarþingi vikunnar voru karlar svo sjötíu prósent þingmanna. Konur koma með öðrum orðum ekki að ákvörðunum í jafn miklum mæli og karlar.

Það má því sannarlega gera betur í þessum efnum þó að staðan sé að mörgu leyti betri hér en víðast annarsstaðar. Þess má geta að lokum að í Bændablaðinu á þessu ári verður sjónum beint sérstaklega að konum í landbúnaði.

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna
Fréttir 1. október 2026

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna

Magnús Kristjánsson hefur verið skipaður í embætti forstjóra Stofnunar atvinnuve...

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum
Fréttir 30. september 2026

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum

First Water og Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar byggingarframkvæmd...

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir
Fréttir 30. september 2026

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hrys...

Reglugerð gefin út
Fréttir 30. september 2026

Reglugerð gefin út

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur gefið út reglugerð um kortlagningu ...

Játar innbrot í eldisbú
Fréttir 30. september 2026

Játar innbrot í eldisbú

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og hefur hann játað á sig innbrot og eig...

Minni kornstuðningur  en áætlað var
Fréttir 30. september 2026

Minni kornstuðningur en áætlað var

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár verður framlag stjórnvalda til stuðnin...

Vilja stytta bilið frá býli að borði
Fréttir 29. september 2026

Vilja stytta bilið frá býli að borði

Nýundirritaður þriggja ára samstarfssamningur á milli Landbúnaðarháskóla Íslands...

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun
Fréttir 29. september 2026

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun

Uppskera er verkefni á vegum GETA-samtakanna þar sem fjölskyldur fá ræktunarreit...