Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Hyundai Kona Premium 2wd er búinn öflugri vél sem skilar 204 hestöflum.
Hyundai Kona Premium 2wd er búinn öflugri vél sem skilar 204 hestöflum.
Mynd / HLJ
Á faglegum nótum 14. ágúst 2019

Hyundai Kona er rafmagnsbíll sem stendur undir væntingum

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson
Einar frændi minn og Guðríður eiginkona hans eiga Konu og nokkrum sinnum síðustu mánuðina hafa komið athyglis­verðar færslur á Facebook-síðu frænda um „ágæti konunnar“.
 
Við lestur á þeim fróðleik fannst mér tími til kominn að prófa þennan bíl, Hyundai Kona.
 
Rafmagnsvélin næstum of kraftmikil miðað við stærð bílsins
 
Hyundai Kona rafmagnsbíllinn er framhjóladrifinn og ekki nema 1.760 kg að þyngd. Bíllinn er með rafmagnsvél sem á að skila 204 hestöflum. Fyrir vikið er krafturinn það mikill að ef bílnum er botngefið á þurru malbiki þá spólar hann en í framhaldinu fer spólvörnin strax á og dregur úr aflinu (ef spólvörnin er tekin af spólar bíllinn í tugi metra á þurru malbiki og hætta er á að missa bílinn út úr aksturslínu, svo mikill er krafturinn). Til samanburðar þá prófaði ég Hyundai Konu bensínbílinn í september á síðasta ári sem var fjórhjóladrifinn. Sá bíll var mjög skemmtilegur á malbiki en síðri á malarvegi og skemmtilega kraftmikill. Nýi rafmagnsbíllinn er mun betri á malarvegi þrátt fyrir að vera bara framhjóladrifinn (sennilegasta skýringin að bíllinn var á 17 tommu felgum en sá fyrri á 18 tommu).
 
Í hraðhleðslustöð tekur ekki nema 55 mín. að fá 80% hleðslu en stöðin sem er á myndinni hleður á lengri tíma.
 
Uppgefin drægni á rafhlöðunni mikil
 
Samkvæmt sölubæklingi er uppgefin drægni við bestu aðstæðu 449 km. Bestu aðstæður er nánast aldrei hægt að komast í hér á Íslandi og nánast með alla rafmagnsbíla er hægt að byrja strax að taka 10% af uppgefinni drægni. Samkvæmt umræddri Facebook-síðu Einars frænda, sem er með trúverðugustu mönnum ættarinnar, þá var ein færslan eftirfarandi: „Vetrardrægnin er ca 320 km á einni hleðslu, sumardrægnin 370 km. Keyrðir rúmlega 14 þúsund kílómetrar og með því höfum við dregið úr olíunotkuninni um 1.000 l (m.v. Volvóinn sem við áttum). Og þetta er bara einn rafmagnsbíll! Ímyndið ykkur hversu miklum útblæstri er hægt að hlífa jörðinni við ef þeir væru svolítið fleiri.“ Persónulega finnst mér þetta góður árangur miðað við íslenskar aðstæður hjá frænda og frú á Konunni þeirra, vitandi hvernig vegirnir eru í þeirra næsta nágrenni (hlykkjóttir og upp og niður).
 
Að mínu mati eigulegasti rafmagnsbíll sem ég hef prófað til þessa
 
Ég var hvergi ósáttur við bílinn í akstri, en þegar ég hávaðamældi bílinn vissi ég af því að hann væri á grófum naglalausum vetrardekkjum sem skekktu mælinguna örlítið. Mæling mín var að innihljóð bílsins væri 70,8 db. Í bílnum er allur minn uppáhalds aukabúnaður, s.s. hiti í stýri, blindhornsvari, stöðuleikakerfi og brekkubremsa. Akreinalesari les það vel í línur á vegi að hægt er að sleppa stýrinu í töluverðan tíma (að vísu verður þá aksturslag bílsins frekar svigkennt og virkar svolítið eins og sá sem væri grunaður um að vera vel í glasi). Hiti er í sætum, fjarlægðarskynjarar bæði framan og aftan, bakkmyndavél (skjárinn á henni er risa stór), stillanlegur mjóbaksstuðningur fyrir bílstjóra og margt fleira. Aðeins eitt atriði er óásættanlegt, en bíllinn er varadekkslaus, eins og nánast allir aðrir rafmagnsbílar. Ég hefði viljað sjá varadekksaumingja í bílnum.
 
Lítið viðhald og 5 ára ábyrgð
 
Innanrými í bílnum er gott og þægilegt er að keyra bílinn. Vélina er hægt að stilla á þrjá mismunandi vegu sem er eco, comfort og sport, en töluverður munur er á krafti á milli stillinganna. Alls keyrði ég bílinn um 100 km og hafði gaman af. Á malbiki er hann þýður og nánast alveg hljóðlaus í akstri, en á malarvegi heyrist aðeins steinahljóð upp undir bílinn, sérstaklega frá framdekkjunum (var að vísu á heilsársdekkjum). Fjöðrunin er mjög góð á holóttum malarvegi miðað við stærð og þyngd bílsins. 
 
Hyundai Kona er með 5 ára ábyrgð og uppgefinn líftími rafhlöðu 8 ár eða 200.000 km. Viðhald rafmagnsbíla er töluvert minna en bíla með hefðbundna mótora og sé aftur vitnað í Facebook-síðu Einars frænda þá kostaði ábyrgðarskoðun á bílnum ekki mikið eftir 15.000 km. (rúmar 20.000 kr.). Eitt er víst að Einar frændi hefur þarna gert skynsamleg kaup (eða var það konan sem réði þessu öllu?) Verðið á Hyundai Kona EV Premium 2wd er frá 5.490.000.
 
Helstu mál og upplýsingar:
 
Þyngd 1.760 kg
Hæð 1.570 mm
Breidd 1.800 mm
Lengd 4.180 mm
 
 
Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu
Fréttir 26. maí 2026

Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu

Matvælastofnun hefur sent kæru til lögreglu vegna hótana um ofbeldi í garð starf...

Heimildabrunnur um lífið  í Þingeyjarsýslum
Fréttir 21. maí 2026

Heimildabrunnur um lífið í Þingeyjarsýslum

Árbók Þingeyinga hefur verið gefin út samfellt í nær sjötíu ár og er eitt elsta ...

Frjálsi lífeyrissjóðurinn og Lífeyrissjóður bænda sameinast
Fréttir 21. maí 2026

Frjálsi lífeyrissjóðurinn og Lífeyrissjóður bænda sameinast

Stjórnir Frjálsa lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs bænda hafa undirritað samning...

Sjóklæðagerðin 66°N fagnar aldarafmæli
Fréttir 20. maí 2026

Sjóklæðagerðin 66°N fagnar aldarafmæli

Ein helsta borgarhátíð Reykjavíkur, HönnunarMars, fór fram dagana 6.–10. maí sl....

Landnámssetrið 20 ára
Fréttir 20. maí 2026

Landnámssetrið 20 ára

Miðvikudaginn 13. maí eru 20 ár liðin frá opnun Landnámssetursins í Borgarnesi o...

Afréttamálafélags Flóa og Skeiða – fyrstu heiðursfélagarnir heiðraðir
Fréttir 20. maí 2026

Afréttamálafélags Flóa og Skeiða – fyrstu heiðursfélagarnir heiðraðir

Afréttamálafélag Flóa og Skeiða, sem er 73 ára gamalt félag, gerði á aðalfundi s...

Norðurslóðir hitna hraðast
Fréttir 19. maí 2026

Norðurslóðir hitna hraðast

Evrópa er sú heimsálfa sem hitnar hraðast og hitabylgjur teygja sig úr Miðjarðar...

Norðmenn geti ekki reitt  sig eingöngu á fisk
Fréttir 19. maí 2026

Norðmenn geti ekki reitt sig eingöngu á fisk

Þrátt fyrir að Noregur sé ein stærsta fiskveiðiþjóð heims er þjóðin ekki í þeirr...