Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri stendur við ríflega aldargamla blæösp í Grundarreit í Eyjafirði og fræðir starfsfólkið um þennan sögulega reit.
Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri stendur við ríflega aldargamla blæösp í Grundarreit í Eyjafirði og fræðir starfsfólkið um þennan sögulega reit.
Á faglegum nótum 19. maí 2017

Fjöldi verkefna er í burðarliðnum

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Nær allir starfsmenn Skógræktar­innar komu í síðustu viku saman á Hótel Kjarnalundi í Kjarnaskógi. Farið var yfir hvernig til hefði tekist með hina nýju stofnun og ýmis mál reifuð. 
 
Þetta er fyrsti starfsmannafundur Skógræktarinnar eftir að stofnunin tók formlega til starfa 1. júlí 2016.  Í leiðinni litu starfsmenn á nokkra eyfirska skóga. 
 
Flutt voru erindi um það sem efst er á baugi hjá Skógræktinni og fjallað um verkefni fram undan. Björn B. Jónsson greindi frá starfi sínu að markaðs- og afurðamálum og þriggja ára áætlun sem hann hefur lagt fram í þeim efnum. Verkefnið kallast Skógarfang. Ólafur Oddsson fræðslufulltrúi sagði m.a. frá undirbúningi diplómanáms í skógarleiðsögn sem hann vinnur nú að og Gunnlaugur Guðjónsson fjármálastjóri fór yfir fjárhaginn og ýmsar hagræðingarleiðir sem færar eru til að lækka kostnað í hinni sameinuðu stofnun, ekki síst í fjarskipta- og tölvumálum. Greint er frá þessum fyrsta starfsmannafundi Skógræktarinnar á vef stofununarinnar.
 
Búskaparskógrækt í Húnaþingi vestra lofar góðu
 
Sæmundur Þorvaldsson sagði frá framvindu búskapar­skógræktarverkefna í Húnaþingi vestra sem lofa góðu. Fjögur verk­efni eru í burðarliðnum og til viðbótar hyggjast nokkrir bændur gera hefðbunda skógræktarsamninga. 
 
Arnór Snorrason talaði um árangursmat í skógrækt, aðferðirnar sem þróaðar hafa verið til að mæla vöxt og ástand skóganna og mikilvægi slíkra mælinga. Sigríður Júlía Brynleifsdóttir ræddi stuttlega um samræmt verklag á þjónustu við skógarbændur og tilraunaútgáfu handbókar sem skógræktarráðgjafar vinna nú eftir. 
 
Í Kristnesskógi var skoðaður nýr malbikuðar stígur sem Skógræktin hefur lagt þar í samstarfi við Sjálfsbjörg á Akureyri og svo var gengið um skóginn undir leiðsögn Rúnars Ísleifssonar skógarvarðar.
 
Aðalsteinn Sigurgeirsson fagmálastjóri fjallaði um frumvarp að nýjum skógræktarlögum sem nú bíður umfjöllunar Alþingis, einnig um Parísarsamkomulagið og hvort það myndi leiða til skógræktar og sömuleiðis benti hann á hversu vel skógrækt fellur að sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Þröstur Eysteinsson skógræktar­stjóri fór  yfir stefnumálin sem Skógræktinni voru sett í aðdraganda þess að stofnanir voru sameinaðar og Skógræktin varð til. Mótun hinnar nýju stofnunar er enn í fullum gangi og með starfsmannafundinum gafst bæði tækifæri til að upplýsa starfsfólkið, heyra álit þess og ræða málin, hvað áunnist hefði og hvað mætti bæta.
 
Eyfirskir skógar skoðaðir
 
Hallgrímur Indriðason fór fyrir göngu hópsins um elsta hluta Kjarnaskógar þar sem meðal annars var komið við í rauðgrenilundi frá 1947, elstu gróðursetningunni í skóginum. Einnig voru skoðaðar stríðsminjar, skotgrafir og loftvarnarbyssustæði sem er að finna í skóginum steinsnar frá Hótel Kjarnalundi. Um kvöldið var svo árshátíð starfsmanna með heimatilbúnum skemmtiatriðum og gamanmálum.
 
Síðari dag starfsmannafundarins var haldið í skoðunarferð um Eyjafjörð fram, gengið um Kristnesskóg þar sem nýlega var malbikaður 300 metra langur skógarstígur fyrir hreyfihamlaða og einnig um Grundarreit, einn elsta skógræktarreit landsins, þar sem sjá má ríflega aldargamlar lindifurur, blæaspir og fleiri trjátegundir. Síðan var ekið inn fyrir Melgerðismela og til baka austan fjarðar. 
 

Skylt efni: Skógræktin

Mótið 2026 fer vel af stað!
Fréttir 9. júlí 2026

Mótið 2026 fer vel af stað!

Margt var í brekkunni á fyrsta degi Landsmóts hestamanna og sólin skein á Hólum ...

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST
Fréttir 3. júlí 2026

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST

Matvælastofnun vekur athygli á að aðili villti á sér heimildir sem eftirlitsmaðu...

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum
Fréttir 2. júlí 2026

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í lan...

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar
Fréttir 1. júlí 2026

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar

Orkusalar leggja sífellt meiri metnað við að gera „hleðslustopp“ rafbílaeigenda ...

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn
Fréttir 30. júní 2026

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn

Fleiri bakarar landsins velja lífræna heilhveitið frá Vallanesi í bakaríin sín. ...

67,5 milljónum úthlutað
Fréttir 29. júní 2026

67,5 milljónum úthlutað

Alls hlutu 25 verkefni styrki úr Þróunarfé búgreina upp á 67,5 milljónir króna. ...

Fuglum og fiðrildum fækkar
Fréttir 29. júní 2026

Fuglum og fiðrildum fækkar

Stofnar fugla og fiðrilda hafa farið hnignandi frá árinu 2000. Þetta kemur fram ...

Efla samstarf um fæðuöryggi
Fréttir 29. júní 2026

Efla samstarf um fæðuöryggi

Norðurlöndin hafa ákveðið að styrkja sameiginlegt fæðuöryggi á tímum aukinnar óv...