Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Enn um skil á skýrslum
Mynd / smh
Á faglegum nótum 31. maí 2017

Enn um skil á skýrslum

Höfundur: Guðmundur Jóhannesson ábyrgðarmaður í nautgriparækt hjá RML
Eins og flestum er kunnugt um þá tók gildi reglugerð um stuðning í nautgriparækt um síðustu áramót þar sem skýrsluhald er skilyrði fyrir greiðslum samkvæmt samningi um starfsskilyrði í nautgriparækt. Þetta þýðir að til þess að fá beingreiðslur, gripagreiðslur og aðrar greiðslur sem tilgreindar eru í samningnum verður viðkomandi að skila skýrslum og kýrsýnum (mjólkurframleiðendur) innan tilskilins tímafrests.
 
Fyrir þá mjólkurframleiðendur sem voru í skýrsluhaldi er breytingin í raun og veru engin. Áfram skrá menn burði, afdrif, nyt kúnna og taka kýrsýni. Kjötframleiðendur þurfa á sama hátt að skrá burði og afdrif fyrir tilskilinn frest sem er 10. næsta mánaðar fyrir þann mánuð sem skýrslu er skilað fyrir.
 
Fyrir þá gripi sem fara í sláturhús er gerð krafa um sláturgögn sem lesin eru sjálfkrafa inn í kerfið frá sláturhúsunum. Þarna verður þó að vanda til verka og tryggja af fremsta megni að rétt einstaklingsnúmer skili sér inn í kerfið. 
 
Rétt er að hafa í huga að komi upp villur varðandi sláturgögn er betra að hafa tímann fyrir sér, þ.e. ekki miða við að skila skýrslum á allra síðasta degi eða klukkutímum.
 
Mjólkurframleiðendur ættu sérstaklega að hafa í huga kröfur varðandi kýrsýni. Gerð er krafa um að skilað sé inn sýnum úr öllum mjólkandi kúm tvisvar sinnum í ársfjórðungi eða 8 sinnum á ári. Taka má sýni oftar en sjaldnar þýðir brottfall greiðslna. Þessu er ákaflega mikilvægt að framfylgja með reglubundnum hætti því sýni verða ekki tekin aftur í tímann og verði misbrestur á getur það þýtt brotfall bein- og gripagreiðslna út allt árið. 
 
Það er háalvarlegt mál sem getur leitt til mjög slakrar fjárhagslegrar afkomu viðkomandi bús.
 
Skýrsluskil fara fram eins og áður, þ.e. fyrst eru skráðir burðir, afdrif og flutningar. Því næst er mjólkurskýrsla fyllt út og skilað. Lokastigið er keyrsla og skil svokallaðrar lögbundinnar skýrslu sem er í raun yfirferð á gögnum til þess að sjá hvort þau uppfylla ákveðnar lágmarkskröfur. Þeir bændur sem eingöngu stunda framleiðslu nautakjöts þurfa að sjálfsögðu ekki að skila mjólkurskýrslu heldur fara beint í lögbundnu skýrsluna að loknum skráningum á burðum, afdrifum og flutningum.
 
Leiðrétting
 
Í grein eftir mig sem birtist í Bændablaðinu 9. mars sl. sagði ég að í dag skiluðu um og yfir 90% búanna skýrslum mánaðarlega en fyrir aðeins 10 árum síðan hefði þetta hlutfall verið milli 60 og 70%. Í þessari fullyrðingu gætti ákveðinnar ónákvæmni sem rétt er að leiðrétta.  Hið rétta í þessu er að á fyrstu mánuðum skýrsluhaldskerfisins Huppu voru skil með áðurnefndum hætti, þ.e. hlutfallið var frá rúmlega 50% upp í nálægt 75%. Þetta á við um mánuðina frá maí 2008 til og með nóvember 2008. Frá þeim tíma hafa skil verið um og yfir 90% í hverjum mánuði.
Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017
Fréttir 20. nóvember 2026

Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017

Sauðfjárslátrun er nú lokið í öllum stærri sláturhúsum landsins og er nú ljóst a...

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki
Fréttir 19. nóvember 2026

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki

Sjóklæðagerðin sem er framleiðandi og sölulaðili 66°Norður hefur stofnað til sam...

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir
Fréttir 19. nóvember 2026

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir

Unnið er að því að innleiða íslenska losunarstuðla fyrir framræst votlendi inn í...

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps
Fréttir 19. nóvember 2026

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps

Til stóð að skýrslu yrði skilað til umhverfis-, orku- og lofts- lagsráðherra 15....

Engin alvarleg frávik á svínabúinu
Fréttir 19. nóvember 2026

Engin alvarleg frávik á svínabúinu

Engin alvarleg frávik frá reglum um velferð svína komu fram í eftirlitsheimsókn ...

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna
Fréttir 18. nóvember 2026

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna

Svokölluð Yerevan áætlun var samþykkt á þingi aðildarríkja um samning Sameinuðu ...

Nýtt fræhús á Vöglum
Fréttir 18. nóvember 2026

Nýtt fræhús á Vöglum

Nýtt fræhús á Vöglum í Fnjóskadal var formlega afhent Land og skógi af Jóhanni P...

Þjónusta Microsoft liggur niðri
Fréttir 13. nóvember 2026

Þjónusta Microsoft liggur niðri

Vegna vandræða í kerfum Microsoft liggur tölvupóstur Bændablaðsins tímabundið ni...

Hrossin eiga hug þeirra allan
30. júní 2025

Hrossin eiga hug þeirra allan

Ævintýraland forms og áferðar
12. nóvember 2026

Ævintýraland forms og áferðar

Heiðbrá Erla
21. október 2026

Heiðbrá Erla

Gosi banar geimi
18. nóvember 2026

Gosi banar geimi

Tryggvi Björn
13. nóvember 2026

Tryggvi Björn