Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Blátunga er skordýraborinn veiru- sjúkdómur sem leggst m.a. á sauðfé og nautgripi.
Blátunga er skordýraborinn veiru- sjúkdómur sem leggst m.a. á sauðfé og nautgripi.
Utan úr heimi 18. ágúst 2026

Blátunga greinst í tugum tilfella

Höfundur: Þröstur Helgason

Ellefu tilfelli af blátunguveiru (Bluetongue virus, BTV) hafa verið staðfest í suðvesturhluta Englands samhliða tugum nýrra tilfella annars staðar í Bretlandi.

Veiran er skordýraborinn veirusjúkdómur sem leggst meðal annars á sauðfé og nautgripi og hefur vakið áhyggjur meðal bænda á Exmoorsvæðinu, þar sem þeir glíma jafnframt við erfið veðurskilyrði og aukinn efnahagslegan þrýsting.

Oliver Edwards, bóndi nálægt Minehead, segir að þetta sé „erfiðasti tími“ sem hann hafi upplifað á 45 ára búskaparferli. Breska dýra- og plöntuheilbrigðisstofnunin (Animal and Plant Health Agency, APHA) hefur hvatt bændur til að vera á varðbergi og tilkynna tafarlaust grun um smit.

Smitar ekki fólk

Þótt blátunga geti reynst búfé banvæn hefur veiran engin áhrif á menn. Hún hefur heldur ekki áhrif á matvælaöryggi. Kjöt og mjólk úr sýktum dýrum er öruggt til neyslu.

Einkenni sýktra dýra geta meðal annars verið hiti, helti, bólgur í andliti, nefrennsli og sár í munni. Þrjú dýr hafa drepist af völdum sjúkdómsins á svæðinu það sem af er júlí.

Hiti stuðlar að útbreiðslu

Þessi stofn blátunguveirunnar greindist fyrst í Englandi í nóvember 2023. Hlýtt veður hefur skapað hagstæð skilyrði fyrir útbreiðslu veirunnar, þar sem hár hiti gerir henni kleift að þróast hraðar í smámýi sem ber smitið.

Blátunga getur lagst á nautgripi, geitur, sauðfé, hjartardýr og kameldýr. Sjúkdómurinn getur valdið sárum eða blöðrum um munn og andlit, kyngingar- og öndunarerfiðleikum, hita og helti. Einnig geta komið fram vansköpuð fóstur og andvana fæðingar.

„Við tókum eftir því að sumir nautgripanna virtust vera eitthvað haltir og við töldum að það stafaði af veðrinu,“ segir Edwards. „En þegar við ræddum við dýralækna fórum við að telja að um blátungu væri að ræða.“

Skylt efni: England

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna
Fréttir 18. nóvember 2026

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna

Svokölluð Yerevan áætlun var samþykkt á þingi aðildarríkja um samning Sameinuðu ...

Nýtt fræhús á Vöglum
Fréttir 18. nóvember 2026

Nýtt fræhús á Vöglum

Nýtt fræhús á Vöglum í Fnjóskadal var formlega afhent Land og skógi af Jóhanni P...

Þjónusta Microsoft liggur niðri
Fréttir 13. nóvember 2026

Þjónusta Microsoft liggur niðri

Vegna vandræða í kerfum Microsoft liggur tölvupóstur Bændablaðsins tímabundið ni...

Matarmót Austurlands á laugardaginn
Fréttir 12. nóvember 2026

Matarmót Austurlands á laugardaginn

Matarmót Austurlands verður haldið í sjötta sinn í Sláturhúsinu á Egilsstöðum la...

Miðdalur fyrirmyndarbú
Fréttir 11. nóvember 2026

Miðdalur fyrirmyndarbú

Ábúendur í Miðdal í Kjósarhreppi fengu viðurkenningu sem fyrirmyndarbú deildar n...

Grænbók um landgræðslu og skógrækt í Samráðsgátt
Fréttir 11. nóvember 2026

Grænbók um landgræðslu og skógrækt í Samráðsgátt

Grænbók um landsáætlun í landgræðslu og skógrækt var nýlega sett í Samráðsgátt s...

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði
Fréttir 10. nóvember 2026

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði

Fagráð í lífrænum landbúnaði stendur fyrir málþinginu „Tíföldum lífræna framleið...

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands
Fréttir 10. nóvember 2026

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands

Búferlaflutningar hafa verið hagfelldir á Vesturlandi undan-arin fimm ár. Fleiri...