Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Athugasemdum beint til utanríkisráðherra
Skoðun 8. júlí 2026

Athugasemdum beint til utanríkisráðherra

Höfundur: Ingi Björn Árnason
Ingi Björn Árnason.

Í síðasta tölublaði Bændablaðsins fjallar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi landbúnaðarráðherra og núverandi utanríkisráðherra, um fjármagnskostnað kúabænda og ber saman vexti á Íslandi og í ríkjum Evrópusambandsins. Athygli vekur þó að ráðherra velur að fjalla eingöngu um nafnvexti en sleppir umræðu um raunvexti, enda þjónar slík framsetning málflutningi hennar betur.

Það sem vekur þó enn meiri athygli er það sem ráðherrann kýs að nefna ekki. Í fyrsta lagi skýrir ráðherra ekki hvernig aðild að Evrópusambandinu á, ein og sér, að leiða til lægri vaxta á Íslandi. Þar vantar meginforsenduna í röksemdafærsluna. Ef ráðherrann telur að aðild að sambandinu lækki vexti sjálfkrafa væri fróðlegt að fá skýra útskýringu á því í næstu grein hennar.

Í öðru lagi kýs ráðherra að sleppa að nefna þá staðreynd að með aðild að Evrópusambandinu myndu tollar á landbúnaðarvörur milli Íslands og sambandsins falla niður. Markaðsverndin er ein grunnforsenda í starfsskilyrðum landbúnaðarins hér á landi. Afnám slíkrar verndar myndi opna íslenskan markað að fullu fyrir innfluttum landbúnaðarvörum þar sem afurðaverð innlendrar framleiðslu yrði lagt að veði.

Í þriðja lagi minnist ráðherrann ekki á reynslu Finna eftir inngöngu í Evrópusambandið, þar sem verulegur samdráttur varð í hinum ýmsu greinum landbúnaðar. Það er að minnsta kosti áleitin spurning hvort íslenskur landbúnaður myndi ekki að verulegu leyti standa frammi fyrir sambærilegri þróun.

Ef afurðaverð lækkar verulega vegna aukinnar samkeppni frá innflutningi, þá skiptir litlu hvort vaxtakostnaður lækkar um nokkur prósentustig eða ekki. Enginn rekstur stendur undir því að missa stóran hluta tekjugrundvallar síns í skiptum fyrir lægri fjármagnskostnað. Búum myndi fækka, framleiðslan myndi færast á færri og stærri bú, samkeppnisþrýstingur myndi aukast, innflutningur myndi aukast, tekjusveiflur gætu orðið meiri og þrýstingur á mjólkurframleiðslu og aðrar búgreinar myndi aukast. Fyrir kúabændur skiptir þetta sérstaklega miklu máli. Ef íslensk mjólkurframleiðsla dregst saman um 40–60%, eins og raunin hefur verið við inngöngu ríkja í sambandið, myndu áhrifin ekki aðeins ná til einstakra kúabúa heldur á alla virðiskeðju greinarinnar. Fjöldi kúabúa myndi hverfa, störfum í dreifbýli fækka og rekstrargrundvöllur mjólkurvinnslu, fóðurframleiðslu, þjónustufyrirtækja og annarra tengdra greina veikjast verulega. Í slíkri stöðu skipta lægri vextir litlu máli ef afurðaverð og tekjugrunnur bænda hefur hrunið.

Raunveruleg hætta er að þeir sem fyrst yrðu fyrir barðinu á slíkri þróun væru yngri og skuldsettari bændur sem hafa nýlega fjárfest í búrekstri og standa frammi fyrir miklum lánaskuldbindingum. Þeir hafa síst svigrúm til að mæta skyndilegu verðfalli á afurðum sínum.

Þegar heildarmyndin er skoðuð, en ekki aðeins einn þáttur hennar sem er síðan tekinn úr samhengi, blasir við að lægri vextir vega lítið upp á móti kerfisbreytingu sem getur grafið undan tekjugrunni íslensks landbúnaðar. Kjarni málsins er ekki hvað lánin kosta ef forsendurnar til að greiða þau hverfa. Þá verða vextirnir algjört aukaatriði.

Höfundur er kúabóndi á Marbæli í Skagafirði.

Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017
Fréttir 20. nóvember 2026

Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017

Sauðfjárslátrun er nú lokið í öllum stærri sláturhúsum landsins og er nú ljóst a...

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki
Fréttir 19. nóvember 2026

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki

Sjóklæðagerðin sem er framleiðandi og sölulaðili 66°Norður hefur stofnað til sam...

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir
Fréttir 19. nóvember 2026

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir

Unnið er að því að innleiða íslenska losunarstuðla fyrir framræst votlendi inn í...

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps
Fréttir 19. nóvember 2026

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps

Til stóð að skýrslu yrði skilað til umhverfis-, orku- og lofts- lagsráðherra 15....

Engin alvarleg frávik á svínabúinu
Fréttir 19. nóvember 2026

Engin alvarleg frávik á svínabúinu

Engin alvarleg frávik frá reglum um velferð svína komu fram í eftirlitsheimsókn ...

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna
Fréttir 18. nóvember 2026

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna

Svokölluð Yerevan áætlun var samþykkt á þingi aðildarríkja um samning Sameinuðu ...

Nýtt fræhús á Vöglum
Fréttir 18. nóvember 2026

Nýtt fræhús á Vöglum

Nýtt fræhús á Vöglum í Fnjóskadal var formlega afhent Land og skógi af Jóhanni P...

Þjónusta Microsoft liggur niðri
Fréttir 13. nóvember 2026

Þjónusta Microsoft liggur niðri

Vegna vandræða í kerfum Microsoft liggur tölvupóstur Bændablaðsins tímabundið ni...