Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Fannar 23-925 frá Svínafelli 2, sonur Hornsteins 22-901 frá Þernunesi, hefur skilað nokkrum athyglisverðum lambafeðrum. Fannar reyndist erfa frá sér ofurfrjósemi (Þokugen) og því rétt að athuga með arfgerðargerðargreiningu hverjir sona hans eru að fá þann föðurarf.
Fannar 23-925 frá Svínafelli 2, sonur Hornsteins 22-901 frá Þernunesi, hefur skilað nokkrum athyglisverðum lambafeðrum. Fannar reyndist erfa frá sér ofurfrjósemi (Þokugen) og því rétt að athuga með arfgerðargerðargreiningu hverjir sona hans eru að fá þann föðurarf.
Mynd / Aðsend
Á faglegum nótum 10. apríl 2026

Afkvæmarannsóknir á hrútum á vegum bænda árið 2025

Höfundur: Árni Brynjar Bragason
Árni Brynjar Bragason.

Haustið 2025 voru gerðar upp 78 afkvæmarannsóknir á hrútum hjá bændum sem töldust styrkhæfar. Í heild voru afkvæmahóparnir 673 og þar af eiga veturgamlir hrútar 396 afkvæmahópa. Afkvæmarannsóknirnar eru aðeins fleiri en haustið 2024 en þá voru búin 65. Afkvæmahóparnir eru þó aðeins færri í heild en þeir voru 720 haustið 2024. Þannig að þó gerðar séu upp afkvæma rannsóknir á fleiri búum þetta árið er umfang þeirra í heild minna. Það var minna gert upp af stórum rannsóknum en oft áður. Hafa ber í huga að erfitt er að bera hrútana saman á milli afkvæmarannsókna. Hinsvegar er ekki ólíklegt að hrútur sem sker sig mikið úr í samanburði innan bús muni einnig sýna yfirburði í öðrum hjörðum. Samantekt yfir niðurstöður styrkhæfra afkvæmarannsókna sem framkvæmdar voru af bændum veturinn 2024 til 2025 er að finna á heimasíðu RML undir liðnum Forrit og skýrsluhald – Niðurstöður 2025.

Hrútar sem sýna mesta yfirburði í heildareinkunn

Kútur 22-752 frá Kerlingardal í Mýrdal skorar hæst heildareinkunn. Hann er sonur Gimla 20-876 frá Hesti. Að baki móður hans í fjórða lið standa stöðvahrútarnir Bekri 12-911, Borði 08-838 og Raftur 05-966 allir frá Hesti og síðan er Ljómi 98-865 frá Brautartungu MMMF. Flekkur 24-013 á Kópsvatni 2, sonur Fannars 23-925 frá Svínafelli 2, sýnir mjög afgerandi yfirburði bæði í mati á lifandi lömbum og í kjötmatshlutanum. Flekkur er arfhreinn fyrir mögulega verndandi breytileikanum H154. Móðir hans er sonardóttir Óðins 15-992 frá Skörðum. Myrkvi 23-065 frá Hriflu skilar afgerandi best gerða sláturlambahópnum í Hriflu og mat á lifandi lömbum styður vel við það. Myrkvi er dóttursonur Gláms 16-825 frá Svartárkoti en faðir Myrkva er sonarsonur Hroka 15-969 frá Hesti og dóttursonur Dranga 15-989 frá Hriflu. Jafar 24-119 á Kálfafelli 2 í Suðursveit er einn af athygliverðum sonum Jaðurs 20-891 frá Múlakoti sem fram komu í afkvæmarannsóknum þetta árið. Jafar sýnir mikla yfirburði bæði í mati á lifandi lömbum og í kjötmatshlutanum. Móðir Jafars er sonardóttir Garra 11-908 frá StóraVatnshorni. (Tafla 1 – Hrútar með 122 eða meira í heildareinkunn)

Tafla 1 -  Hrútar með 122 eða meira í heildareinkunn. 

Hrútar sem sýna mesta yfirburði í kjötmatseinkunn

Þegar raðað er eftir kjötmatseinkunn skipa toppinn þeir Stallur 22-522 frá Rauðholti í Hjaltastaðaþinghá og Prúður 24-109 frá Skarðaborg í Reykjahverfi. Styrkleiki afkvæma Stalls 22-522 er góð gerð en fremur litil fita og kemur það vel fram bæði í mati á lifandi lömbum og í sláturhúsi. Stallur stóð einnig efstur í afkvæmarannsókn í Rauðholti haustið 2024 og var í öðru sæti árið þar á undan. Stallur rekur ættir í þriðja lið til þekktar kynbótahrúta, þeirra Grábotna 06-833 frá Vogum, Hvata 13-926 frá Hesti og Kletts 13962 frá Borgarfelli. Prúður 24-109 á Skarðaborg er sonur Frosta 22-913 frá Ásgarði og móðir hans dótturdóttir Rafals 09-881 frá Úthlíð. Prúður sækir yfirburði sína að langmestu leyti í kjötmatshlutann þar sem hann ber talsvert af félögum sínum í gerð sláturlamba. Prúður er eins og vænta mátti arfblendinn fyrir H154. Næstir í röðinni koma svo þeir Kútur 22-752 frá Kerlingardal og Myrkvi 23-065 frá Hriflu sem áður hefur verið getið. (Tafla 2 – Hrútar með 135 eða meira í kjötmatseinkunn)

Tafla 2 - Hrútar með 135 eða meira í kjötmatseinkunn.  

Hrútar sem sýna mesta yfirburði í fallþungaeinkunn

Hrútar sem skila miklum yfirburðum í fallþunga eru allrar athygli verðir á hverju búi því viðbótar kíló skilar fleiri krónum í budduna en svolítið hærri gerð. Verðmætastir eru að sjálfsögðu gripir sem ná frábærum árangri í öllum þremur þáttunum sem heildareinkunn er reiknuð út frá. Neisti 22-061 á Ketilseyri við Dýrafjörð skorar hæst í fallþungaeinkunn þetta árið. Afkvæmi hans eru nokkuð afgerandi best gerð í samanburði hrútanna á Ketilseyri og fallþungi sláturlamba undan Neista er 1,9 kg yfir meðaltali rannsóknarinnar. Neisti er sonarsonur Fálka 17-821 frá Bassastöðum. (Tafla 3 – Hrútar með 115 eða meira í fallþungaeinkunn)

Tafla 3 - Hrútar með 115 eða meira í fallþungaeinkunn. 

Stöðvahrútar sem áttu flesta syni í afkvæmarannsóknum 2025

Í töflu fjögur má sjá þá stöðvahrúta sem áttu flesta syni sem koma til uppgjörs í afkvæmarannsóknum á síðasta ári. Þarna er ánægjulegt að sjá marga þeirra stöðvahrúta sem bera riðuþolna breytileikann R171 í fjárstofn landsmanna, þrátt fyrir að hér koma aðeins til greina þeir hrútar sem stóðu á stöðvunum veturinn 2023 til 2024 eða fyrr. Nokkur munur er þó á kollóttum og hyrndum hrútum hvað það varðar. Allir kollarnir í töflunni bera R171 og sá þeirra sem á flesta syni, Hreinn 23-920 frá Þernunesi, arfhreinn gagnvart þeim eiginleika. Í þremur rannsóknum stendur sonur Hreins efstur í heildareinkunn. Gullmoli 22-902 frá Þernunesi sýnir hér enn og aftur hve sterkur lambafaðir hann var. Í sex rannsóknum stendur Gullmolasonur efstur í heildareinkunn. Synir Gullmola þeir Steinn 23-926 frá Kaldbak og Moli 23-919 frá Miðdalsgröf standa einnig sterkir. Fjórir synir Steins standa efstir í afkvæmarannsókn og tveir synir Mola. Hjá hyrndu stöðvahrútunum á Laxi 19-903 frá Svarfhóli flesta syni en enginn þeirra nær þó að standa efstur í afkvæmarannsókn. Laxi var arfhreinn fyrir fyrir mögulega verndandi breytileikanum H154 og sömu sögu er að segja af Frosta 22-913 frá Ásgarði sem á þarna þrettán syni. Þeir Birkiland 23-927 frá Austurhlíð og Fannar 23-925 frá Svínafelli 2 eru þeir einu sem bera R171 af hyrndu hrútum á þessum lista. Birkiland á fleiri synir en Fannar virðist heldur drýgri í að skila sterkum lambafeðrum. Innleiðing á R171 er komin heldur lengra á veg í kollótta fénu í landinu en því hyrnda og er það skiljanlegt miða við að fyrstu stöðvahrútanna sem báru R171 voru kollóttir. Þetta mun þó væntanlega jafnast á allra næstu árum þar sem hyrndum hrútum sem bera R171 fjölgar ár frá ári á stöðvunum og R171 er fundið í hyrndu fé bæði í Dalasýslu og í Mýrdal. (Tafla 4 - Þeir hrútar sem eiga flesta syni í afkvæmarannsóknum 2025)

Afkvæmarannsóknir hjá bændum hafa gengt mikilvægu hlutverki í ræktunarstarfinu í sauðfjárrækt um árabil. Margoft hafa niðurstöður úr einstökum rannsóknum beint kastljósinu að efnilegum hrútum sem síðar hafa endað sem stöðvahrútar. Riðuarfgerð lamba mun væntanlega ráða mestu við ásetningsval á mörgum búum á allra næstu árum. Þá hafa bændur verið hvattir til að skipta hrútum ört út, sérstaklega þar sem keyra á hratt á innleiðingu verndandi riðuarfgerðar, til þess að forðast of mikla aukningu á skyldleikarækt. Því er enn mikilvægara en áður að vanda valið á þeim hrútum sem fá áframhaldandi notkun og eru vel skipulagðar afkvæmarannsóknir ein besta leiðin til að velja af kostgæfni hvaða hrútar ættu að fá áframhaldandi notkun.

Höfundur er ráðunautur á búfjárræktar- og þjónustusviði RML.

Skylt efni: sauðfjárrækt | RML

Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017
Fréttir 20. nóvember 2026

Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017

Sauðfjárslátrun er nú lokið í öllum stærri sláturhúsum landsins og er nú ljóst a...

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki
Fréttir 19. nóvember 2026

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki

Sjóklæðagerðin sem er framleiðandi og sölulaðili 66°Norður hefur stofnað til sam...

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir
Fréttir 19. nóvember 2026

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir

Unnið er að því að innleiða íslenska losunarstuðla fyrir framræst votlendi inn í...

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps
Fréttir 19. nóvember 2026

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps

Til stóð að skýrslu yrði skilað til umhverfis-, orku- og lofts- lagsráðherra 15....

Engin alvarleg frávik á svínabúinu
Fréttir 19. nóvember 2026

Engin alvarleg frávik á svínabúinu

Engin alvarleg frávik frá reglum um velferð svína komu fram í eftirlitsheimsókn ...

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna
Fréttir 18. nóvember 2026

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna

Svokölluð Yerevan áætlun var samþykkt á þingi aðildarríkja um samning Sameinuðu ...

Nýtt fræhús á Vöglum
Fréttir 18. nóvember 2026

Nýtt fræhús á Vöglum

Nýtt fræhús á Vöglum í Fnjóskadal var formlega afhent Land og skógi af Jóhanni P...

Þjónusta Microsoft liggur niðri
Fréttir 13. nóvember 2026

Þjónusta Microsoft liggur niðri

Vegna vandræða í kerfum Microsoft liggur tölvupóstur Bændablaðsins tímabundið ni...

Hrossin eiga hug þeirra allan
30. júní 2025

Hrossin eiga hug þeirra allan

Ævintýraland forms og áferðar
12. nóvember 2026

Ævintýraland forms og áferðar

Heiðbrá Erla
21. október 2026

Heiðbrá Erla

Gosi banar geimi
18. nóvember 2026

Gosi banar geimi

Tryggvi Björn
13. nóvember 2026

Tryggvi Björn