Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Fyrirsjáanleg kynslóðaskipti á landi, samhliða efnahagslegum þrengingum, hafa orðið til þess að fleiri félagasamtök vestan hafs styðja eldri bændur við að undirbúa það að koma býlum í áframhaldandi búrekstur og vinna að því að ræktarland haldist í eigu bænda fremur en að það færist í hendur fasteignafélaga.
Fyrirsjáanleg kynslóðaskipti á landi, samhliða efnahagslegum þrengingum, hafa orðið til þess að fleiri félagasamtök vestan hafs styðja eldri bændur við að undirbúa það að koma býlum í áframhaldandi búrekstur og vinna að því að ræktarland haldist í eigu bænda fremur en að það færist í hendur fasteignafélaga.
Mynd / Jacinto Diego
Utan úr heimi 8. apríl 2026

Æ fleiri jarðir í hendur fjárfesta og stórfyrirtækja

Höfundur: Þröstur Helgason

-Meginástæða nýliðunarvanda í bandarískum landbúnaði

Í grein í New York Times segir að ungt fólk hafi ekki efni á að kaupa sér jörð til að hefja búskap. Jarðaverð sé í sögulegum hæðum og býli séu í síauknum mæli keypt upp af fjárfestum og stórfyrirtækjum á sviði landbúnaðar. Nýliðunarvandinn eigi sér þó einnig aðrar skýringar.

Á næstu tveimur áratugum munu eigendur um það bil 300 milljónir ekra eða um 121 milljón hektara landbúnaðarlands hætta búskap eða deyja. Framtíð bandarískra sveita og matvælakerfisins þar vestra mun ráðast af því hverjir kaupa þessar jarðir og hvernig. Þetta kemur fram í grein eftir Brooks Lamb sem er höfundur bókarinnar Love for the Land: Lessons From Farmers Who Persist in Place og vinnur fyrir American Farmland Trust sem er sjálfseignarstofnun sem hefur það hlutverk að vernda ræktarland, stuðla að vistvænum landbúnaðarháttum og halda jörðum í ábúð.

Brooks heldur því fram að stór hluti þessa lands verði keyptur af stórfyrirtækjum í bandarískum landbúnaði sem nú þegar hafa mikil völd. Einkafjárfestar muni líklega kaupa það sem eftir er en þeir líta margir hverjir á land sem áhættulitla fjárfestingu sem þeir geta seinna selt undir verslunarmiðstöðvar eða gagnaver. Stórfyrirtæki og fjárfestar hafa keypt þúsundir lítilla og meðalstórra jarða á liðnum áratugum og vilja kaupa enn fleiri.

Ýmsar ástæður nýliðunarvanda

Brooks segir að þessi samþjöppun eignarhalds á landbúnaðarlandi sé skaðleg fyrir umhverfið, almannaheilsu, efnahag dreifbýlla landssvæða og fæðuöryggi. Betra væri að ungt fólk tæki við litlum og meðalstórum landbúnaðarjörðum og héldu þeim í ábúð.

Það gerist hins vegar ekki nægjanlega oft, segir Brooks.

Margir haldi því fram að ástæðan sé áhugaleysi aldamóta- og z-kynslóðarinnar á landbúnaðar- störfum, vinnan sé of erfið og lífstíllinn ekki aðlaðandi. Og þetta kunni að vera rétt, en ástæðurnar fyrir því að unga fólkið hefji síður búskap séu mun flóknari.

Brooks segir að ungu fólki sé oft sagt að búskapur skapi því ekki trygga og eftirsóknarverða framtíð. Börn sem alast upp í landbúnaði séu gjarnan hvött, bæði af kennurum og foreldrum, til að leita tækifæra annars staðar, fjarri smærri byggðarlögum þar sem möguleikar þyki takmarkaðir. Sveigjanleiki og hreyfanleiki sé kostur en með því að festa rætur í dreifbýli sé fólk að sætta sig við lakari kost.

„Margir hverfa frá landbúnaði vegna þeirrar reynslu sem þeir urðu fyrir í uppvextinum,“ segir Brooks. „Þeir sáu foreldra sína eða afa og ömmur leggja á sig langan vinnudag, oft samhliða öðrum störfum, til að halda búrekstrinum gangandi. Þeir urðu vitni að hækkandi kostnaði við tæki, fóður og aðföng, á sama tíma og afkoma búsins breyttist lítið.

Nýverið varaði þverpólitískur hópur leiðtoga í landbúnaði landbúnaðarnefndir Bandaríkja- þings við því að hátt verð á aðföngum, niðurskurður í rannsóknum og mannafla og óstöðugleiki á mörkuðum gætu leitt til „víðtæks hruns“ í landbúnaði og dreifbýlissamfélögum.“

Fyrirsjáanleg kynslóðaskipti á landi, samhliða efnahagslegum þrengingum, hafa orðið til þess að fleiri félagasamtök vestan hafs styðja eldri bændur við að undirbúa það að koma býlum í áframhaldandi búrekstur og vinna að því að ræktarland haldist í eigu bænda fremur en að það færist í hendur fasteignafélaga. Brooks segir það starf mikilvægt. En hann telur eigi að síður að dreifbýl landbúnaðarsamfélög muni áfram veikjast nema til komi víðtækari kerfisbreytingar. „Nauðsynlegt er að gera búskap að raunhæfum og aðlaðandi valkosti fyrir næstu kynslóð,“ segir hann. Og þrátt fyrir ríkjandi viðhorf sé til ungt fólk sem vill hasla sér völl í landbúnaði.

Jarðaverð meginástæðan

Meginástæðan fyrir því að ungt fólk hefji ekki búskap sé þó umfram allt sú að jarðaverð sé í sögulegum hæðum. Ungt fólk hafi ekki efni á því að kaupa sér jarðir til ábúðar. Til þess að það breytist þurfi að vera til staðar lífvænlegur og stöðugur markaður fyrir staðbundnar gæðaafurðir. Og jarðakaup þurfa að verða viðráðanleg.

Brooks segir Bandaríkjaþing geta gert ýmislegt til þess að gera ungum bændum kleift að hefja búskap. Auka mætti fjármagn til landverndarsamninga sem verja ræktarland gegn uppbyggingu, rýmka aðgengi að lánum á hagstæðum kjörum á vegum hins opinbera og koma á nýjum stuðningi við útborgun, allt með það að markmiði að auðvelda nýjum bændum kaup á landi. Jafnframt ætti alríkisstjórnin að koma á fót sérstakri skrifstofu fyrir smábúskap innan landbúnaðarráðuneytisins, enda er ljóst að margir ungir bændur vilja, og geta aðeins, stundað búskap á þeim skala.

Ríkisstjórnir einstakra ríkja gætu einnig mótað eigin úrræði, svo sem skattaafslætti fyrir nýliða í landbúnaði og styrki til að mæta kostnaði við uppbyggingu innviða og kaup á búnaði, aðgerðir sem njóta þverpólitísks stuðnings. Félagasamtök geta jafnframt lagt sitt af mörkum með því að veita tæknilega aðstoð, tengja saman landeigendur og unga bændur sem vilja leigja eða kaupa land og byggja upp staðbundin samvinnuverkefni í búskap, sem geta styrkt bæði markaðssetningu og vinnslu afurða.

Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017
Fréttir 20. nóvember 2026

Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017

Sauðfjárslátrun er nú lokið í öllum stærri sláturhúsum landsins og er nú ljóst a...

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki
Fréttir 19. nóvember 2026

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki

Sjóklæðagerðin sem er framleiðandi og sölulaðili 66°Norður hefur stofnað til sam...

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir
Fréttir 19. nóvember 2026

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir

Unnið er að því að innleiða íslenska losunarstuðla fyrir framræst votlendi inn í...

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps
Fréttir 19. nóvember 2026

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps

Til stóð að skýrslu yrði skilað til umhverfis-, orku- og lofts- lagsráðherra 15....

Engin alvarleg frávik á svínabúinu
Fréttir 19. nóvember 2026

Engin alvarleg frávik á svínabúinu

Engin alvarleg frávik frá reglum um velferð svína komu fram í eftirlitsheimsókn ...

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna
Fréttir 18. nóvember 2026

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna

Svokölluð Yerevan áætlun var samþykkt á þingi aðildarríkja um samning Sameinuðu ...

Nýtt fræhús á Vöglum
Fréttir 18. nóvember 2026

Nýtt fræhús á Vöglum

Nýtt fræhús á Vöglum í Fnjóskadal var formlega afhent Land og skógi af Jóhanni P...

Þjónusta Microsoft liggur niðri
Fréttir 13. nóvember 2026

Þjónusta Microsoft liggur niðri

Vegna vandræða í kerfum Microsoft liggur tölvupóstur Bændablaðsins tímabundið ni...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f