Karlmenn með klúta hafa þótt kitlandi, a.m.k. síðan um miðja síðustu öld. Til að mynda þykja hálsklútar frá merki Carolina Herrera skemmtilegir, en auðvitað má finna hina ýmsu klúta í krókum og kimum.
Karlmenn með klúta hafa þótt kitlandi, a.m.k. síðan um miðja síðustu öld. Til að mynda þykja hálsklútar frá merki Carolina Herrera skemmtilegir, en auðvitað má finna hina ýmsu klúta í krókum og kimum.
Líf og starf 6. október 2026

Vönduð óþekkt

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Haustið er mætt og það þýðir að nú er kominn tími til að stokka aðeins upp í fataskápnum eða fyrir þá hagsýnni, grafa upp löngu gleymda fjársjóði. Það er nefnilega þannig að ef fjárfest er að upplagi í vönduðum fötum, þá koma þau skemmtilega á óvart ef ákveðið er að standa í gullgrefti.

Nú, hausttískan á þessu ári snýst að miklu leyti um að finna jafnvægi á milli þess að vera í þægilegum, klassískum fötum en ganga aðeins á lagið með það sem fellur undir óþekkt. Það eru nefnilega smáatriðin sem gera gæfumuninn að þessu sinni. Þegar kemur að litum þá ber ekki á öðru en að kirsuberjarauður, „terrakotta“ (djúpur, jarðbrúnn litur með hlýjum blæ af appelsínugulum og rauðum undirtónum) kolgrár, eða espressóbrúnn í djúpum tónum séu allt litir haustsins.

Mattir Chanel varalitir úr Rougelínunni eru móðins nú í haust.

Sá síðastnefndi kemur sterkur inn í stað svarts litar enda gefur hann mýkra og hlýlegra yfirbragð, sérstaklega ef valdar eru flíkur úr rúskinni eða flaueli. Reyndar fær svartur að eiga leik, en einungis þegar kemur að allra smæstu smáatriðunum.

Svo verður einnig litið til endurkomu silkiklúta og höfuðklúta. Meðal annars er ekki úr vegi að binda fallegan silkiklút yfir hárið, svolítið í anda sjöunda og áttunda áratugarins, en slíkir klútar eiga einstaklega vel við stór sólgleraugu og síða rykfrakka. Einnig má hnýta minni og þynnri silkiklúta þétt upp við hálsinn eða kasta stórum og grófum ullarklút yfir axlirnar þegar fer að kólna verulega í veðri.

Nú, rúskinn er enn hæstmóðins ... en gaman er að segja frá því að vart hefur verið við skemmtilega tilbreytingu nú í haust. Fyrir þá sem vilja vera með á nótunum, eru vel aðsniðin jakkaföt og pilsdragtir að komast á kortið. Vel ... þá út í það að vera ögrandi, sem gerir hefðbundið skrifstofulúkk mun djarfara en ella. Kannski kominn tími til reyndar að ýta aðeins við klassíkinni og langt síðan ýtt var undir stundaglaslúkkið, en sniðin eru til dæmis ýktari, með áberandi öxlum, örlítið flegnari en gott þykir eða tekin inn í mittinu. Mjó bindi, eða hálsslaufur geta gert gæfumuninn, helst dökk að lit – en þau kitla oft ímyndunarafl hjá fólki þó allar tölur séu hnepptar upp í háls. Sokkabuxur eða háir sokkar flokkast þarna einnig undir ögrandi aukahluti og svokölluð

Bridget Bardot var hrifin af skuplum.

„cateye“ augnmálning að sama skapi. Andlitsmálning skal að öðru leyti vera hlutlaus. Ef ekki er lögð áhersla á augnsvæðið má hins vegar setja á sig varalit. Kirsuberjarauða eða skærrauða helst, nú eða í espressó- og mokkalitum sem þykja víst það alheitasta nú með haustinu. Það skal þó hafa bak við eyrað að nauðsynlegt er að hafa einhvern hemil á sér. Stutt pils eiga við rúllukragapeysur, eða vel hnepptar skyrtur og flegnari eða aðþrengdari flíkur að ofanverðu verða að hafa jafnvægi að neðan. Jafnvel þó gaman megi hafa af örlítilli óþekkt.

Blúndur, háir hælar við gallabuxur, blússa þar sem hneppt er einni tölu neðar en sæmilegt þykir og hálsklútar jafnvel út í svört mjó silkibindi við hvíta skyrtu – hver og einn verður að finna villinginn í sér.

En nú hefur verið farið á handahlaupum yfir hitt og þetta sem gefur tískunni lit í haust. Með það í huga að þessi þáttur er ekki einungis ætlaður kvenfólki, verða hinir að grafa upp klútana og leyfa skyrtuhnöppunum að njóta vafans... 

Skylt efni: tíska

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Horfinn er séra Oddur
6. október 2026

Horfinn er séra Oddur

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.
6. október 2026

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.

Píla pína
6. október 2026

Píla pína

Vönduð óþekkt
6. október 2026

Vönduð óþekkt

Margrét Þóra
7. október 2026

Margrét Þóra