Hörgárdalur.
Hörgárdalur.
Líf og starf 26. maí 2026

Vísnahornið

Höfundur: Magnús Halldórsson

Jósep Húnfjörð var vel þekktur á sinni tíð, hér lýsir hann vori:

Anga viðir, brosa blóm,

blær í laufi þýtur.

Ljúft er að hlusta á lóuhljóm,

lífið söngsins nýtur.

Ívar Björnsson frá Steðja í Flókadal orti þessar næstu tvær sem lausar eru við alla kerskni og hégóma:

Svefns og drauma sæluhlýja

seiðimögnuð hrífur þá,

sem í vöku verða að flýja

veruleika sínum frá.

Angurværi óðurinn,

er mér kær og góður.

Hljómgrunn fær þar muni minn

með og bærist hljóður.

Heldur kveður við annan tón í næstu vísu, sem sagt er að Þorsteinn frá Gilhaga hafi ort í stríðni til konu sinnar:

Anna mín er leiðinleg,

lumpin mjög og gæðatreg.

Gjálífis hún gekk á veg,

og glæptist enginn nema ég.

Fyrir hönd stúlku orti Þorsteinn þessa vísu, á ástandsárunum:

Áður var ég engum háð,

æskurjóð og fögur.

Nú er ég orðin Bretabráð

barnshafandi og mögur.

Sagt er þessa vísu hafi ort Gísli Konráðsson, um Skagfirðing sem var á leið í ver og gisti eina nótt á Óspakseyri við Hrútafjörð, en barnaði í ógáti vinnukonu þar á bæ:

Á Óspaksstöðum át hann ket,

óspakur að neðan.

Óspakur í óspaks- lét-

akurinn - sinn á meðan.

Þessa vísu orti Ingibjörg Sigfúsdóttir sem fædd var 1909 að Forsæludal í Vatnsdal. Eitthvað hefur hún talið að skorti upp á kveðskapinn á sinni tíð:

Nú má kaupa þessi þjóð,

þrykkt og gyllt í sniðum,

í gerviskinni gerviljóð

af gerviljóðasmiðum.

Skáld-Rósa hlýtur að hafa ort þessa vísu að vorlagi, kannski á fardögum, þegar hún hefur kvatt sína æskuslóð. En hún mun hafa fæðst í Hörgárdal:

Bestan veit ég blóma þinn

blíðu innst í reitum;

far vel Eyjafjörður minn

fegri öllum sveitum.

Vel má vera að einhverjir sjái í þessum vísum Rósu tvíræðni, en aðrir fegurð:

Birtstu fljótt við bæinn minn,

bjarta nótt með vorilminn,

andans þrótt og unaðinn

oft ég sótti á fundinn þinn.

Vektu líf í vonasal

vektu líf um hæð og dal

vektu líf hjá vífi og hal

vektu líf,

er blessast skal.

Umsjón: Magnús Halldórsson

mhalldorsson0610[hjá]gmail.com

Skylt efni: vísnahornið

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.