Vísnahornið
Líf og starf 24. ágúst 2026

Vísnahornið

Höfundur: Magnús Halldórsson

Stera-Pétur læknir fékk sitt auknefni vegna ummæla er féllu, varðandi notkun kraftamanna á sterum sem valdið gætu rýrnun ákveðins líffæris. Þá orti Hjálmar Freysteinsson læknir þessa niðurstöðu:

Alveg þykir augljóst vera

enginn þarf að rengja það

að þeir sem nota þessa stera

þurfa minna fíkjublað.

Hjálmar Freysteinsson orti þessa vísu, sem hann kallar Eftirsjá:

Á feril minn ég mat hef lagt,

mistakanna iðrast hlýt.

Ég hef alltof sjaldan sagt

sjúklingum að éta skít.

Davíð Hjálmar Haraldsson er vel kunnur fyrir sinn kveðskap, oft er þar kímnin í fyrirrúmi. Hér má sjá nokkrar hrútavísur:

Vákur minn er vaskur enn

og völlur oft á kalli.

Geta fáir gangnamenn

gómað hann á fjalli.

Svo er það afrekskappinn Bjartur:

Bjartur þykir kempa kná,

kvikna um hann sögur

syndi hann í Seldalsá

og sumarlangt við Gjögur.

Og svarti (sauðurinn) Blakkur:

Augu hefur Blakkur blá.

Ber ei svip af dóna

þótt við garðann strá og strá

stundum fari í króna.

Um blíðuna nyrðra segir Davíð Hjálmar:

Skemmtun er mörgum að skvetta úr klauf

og skopppa um ilmandi balann o

g búsmali unir við blómknúpp og lauf.

Ég baula og sperri upp halann.

Við sem búum hér á suðurhlutanum þurfum að fá nokkra þurra daga á næstunni, sumir til að þurrka hey. Pétur Stefánsson orðar það svona:

Síður kætir suddinn lýð,

sumum vekur pínu.

Farðu burtu blauta tíð,

burt úr lífi mínu.

Friðrik Steingrímsson leggur til þessa veðurlýsingu úr Mývatnssveit: 

Væn er tíð í vikulok

vaxa grös í hlíðum

sextán metra sunnan rok,

sól með heita blíðum.

Og Friðrik yrkir þessa um Trump, sem alltaf er í fréttum vegna einhvers, orti þessa vegna læknisskoðunar á Dónaldi:

Trump er hraustur yst sem innst

er því sæll að vonum

ekki var þó orði minnst

á andlegt stand á honum.

Meint og meinað segir Þórarinn Eldjárn um alvöru lífs og loka:

Ég vil meina það sem ég meina

eiga meiningu hreina og beina.

Það vegur þyngst

þar til mér syngst.

Allt eins og blómstrið eina.

Eyjólfur Ó. Eyjólfsson orti þessa í tilefni gjafa Erdogan, til leiðtoga landa í Atlantshafsbandalaginu:

Heim kom hún Kristrún með krafti

og klóin á byssunnar skafti

glögglega sást,

en sumum finnst skást

að Sigmundur heldur nú kjafti.

Umsjón: Magnús Halldórsson

mhalldorsson0610[hjá]gmail.com

Skylt efni: vísnahornið

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...