Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Nú er unnið að því öllum árum að ný heimavist verði byggð á Selfossi.
Nú er unnið að því öllum árum að ný heimavist verði byggð á Selfossi.
Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson
Fréttir 9. apríl 2026

Vantar heimavist fyrir Fjölbrautaskóla Suðurlands

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Mjög brýnt er fyrir Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi að fá varanlegt húsnæði undir heimavist en nú eru bara nokkur herbergi í leiguhúsnæði í húsnæði þar sem Ljósheimar, dvalarheimili aldraðra var í á Selfossi.

Húsaleigusamningurinn rennur út við lok þessarar annar. „Það þarf að finna úrræði til frambúðar og besti kosturinn væri að byggt væri almennilegt húsnæði fyrir heimavist í eigu ríkisins, og væri þá hannað með tilliti til þess. En það er ekki í mínum höndum að ákveða hvort og hvenær er byggt, það er pólitísk ákvörðun og fer eftir forgangsröðun ríkisstjórnar.

Við þetta má bæta að einnig er þörf á að stækka verknámshúsið og byggja upp á Reykjum þar, sem Garðyrkjuskólinn er. Því er erfitt að svara hvað gerist þegar tímabundinn leigusamningur rennur út, það fer eftir stöðunni þá, hvort komið sé vilyrði fyrir byggingu heimavistar eða ekki,“ segir Soffía Sveinsdóttir, skólameistari.

Framkvæmdasýsla ríkisins mun auglýsa útboð vegna nýrrar heimavistar en Soffía vann útboðslýsingu í góðu samstarfi við Barna- og menntamálaráðuneytið. „Heimavistamálin hafa verið mikið rædd í skólanefnd skólans og í stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Sveitarfélögin, einkum þau sem eru staðsett langt frá skólanum eru uggandi um stöðuna og ég tek undir það“, segir Soffía.

Skylt efni: Selfoss | FSu

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...