Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Tollur fylgir ekki verðlagi
Mynd / Úr safni
Fréttir 9. apríl 2026

Tollur fylgir ekki verðlagi

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Á deildarfundi eggjabænda hjá Bændasamtökum Íslands lögðu fulltrúar áherslu á að tryggja þurfi starfskilyrði greinarinnar. Þar sem krónutölur í magntollum fylgdu ekki verðlagi væri tollurinn hættur að veita vörn gegn innflutningi.

Eggjabændur veltu jafnframt upp þeim möguleika að allar búgreinadeildir í hvíta geiranum sameinist, það er svínabændur, kjúklingabændur og eggjabændur, enda hagsmunamálin oft þau sömu. Fáir félagsmenn eru í hverri deild, en veltan og framleiðslan mikil á hverju búi. Fundarmenn lögðu áherslu á ef að sameiningu yrði þyrftu að tryggja að eggjabændur ættu alltaf fulltrúa í stjórn.

Á deildarfundinum var samþykkt að stofna vinnuhóp í samvinnu við hinar tvær deildirnar til þess að skoða kosti og galla sameiningar. Skoða þurfi sérstaklega fjölda Búnaðarþingsfulltrúa verði af sameiningu þeirra. Þrír sitja í aðalstjórn deildar eggjabænda. Halldóra Hauksdóttir hjá Græneggjum í Sveinbjarnagerði á Svalbarðsströnd var endurkjörinn sem formaður til tveggja ára. Þá voru Andri Freyr Þórisson hjá Nesbúi á Vatnsleysuströnd og Arnar Árnason hjá Gæðaeggjum á Hranastöðum kosnir til áframhaldandi setu í að  Stefán Már Símonarson hjá Stjörnueggjum á Vallá á Kjalarnesi var valinn sem varamaður.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Horfinn er séra Oddur
6. október 2026

Horfinn er séra Oddur

Margrét Þóra
7. október 2026

Margrét Þóra

Hugrekki persónulegrar tjáningar
6. október 2026

Hugrekki persónulegrar tjáningar

Vönduð óþekkt
6. október 2026

Vönduð óþekkt

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.
6. október 2026

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.