Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur fram á vef Matvælastofnunar. Aukningin skýrist meðal annars af sýklalyfjanotkun í landeldi á bleikju en sala sýklalyfja annarra dýrategunda jókst einnig.

Sýklalyfjanotkun vegna kýlaveikibróður í bleikjueldi hefur verið stöðug um nokkurra ára skeið. Kýlaveikibróðir er einn helsti sjúkdómurinn í fiskeldi. Þessi sýklalyfjanotkun hefur átt og á áfram stóran þátt í heildarsölu sýklalyfja dýra á Íslandi.

Í ársskýrslu MAST og Embættis landlæknis kemur fram að staðan á Íslandi hvað varðar sýklalyfjaónæmi er að öðru leyti góð í samanburði við mörg Evrópulönd. Þó er ónæmi fyrir cíprófloxacíni áfram algengt í bakteríunni Campylobacter coli í svínum á Íslandi en 71,8% þeirra stofna sem voru ónæmisprófaðir árið 2025 voru ónæmir fyrir lyfinu. Þá segir í frétt MAST að önnur mikilvæg niðurstaða var að búfjártengdur meticillínónæmur Staphylococcus aureus (MÓSA), fjölónæm baktería, greindist í fyrsta sinn í íslenskum svínum. Þetta kom í ljós við skipulega skimun á svínabúum og voru öll svínabú á landinu skimuð sérstaklega eftir það. Bakterían fannst í fjórum svínabúum sem eru nátengd. Búfjártengdur MÓSA þekkist vel í svínarækt í Evrópu en er þetta í fyrsta sinn sem hann greinist í íslenskum svínum.

Á meðan að heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% dróst heildarsala sýklalyfja hjá mönnum saman um 4,6% á milli ára 2024 og 2025. Sýklalyfjaónæmi er almennt lítið á Íslandi í evrópskum samanburði þó fylgjast verði vel með ákveðnum gerðum ónæmis sem veldur áhyggjum. Þar má nefna að árið 2025 greindust 22 einstaklingar með karbapenemasamyndandi Enterobacterales (CPE) og eru það fleiri en hafa nokkru sinni greinst á einu ári.

Þessar niðurstöður sýna að heildstæð vöktun og regluleg skimun er mikilvæg, eins og kemur fram í tilkynningu MAST, þá tengir sýklalyfjaónæmi saman heilbrigði manna, dýra og umhverfisins.

Skylt efni: Sýklalyfjanotkun

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...