Stjórnvöld í lið með Riddurum rauða drekans!
Mynd / ál
Skoðun 20. nóvember 2026

Stjórnvöld í lið með Riddurum rauða drekans!

Höfundur: Margrét Ágústa Sigurðardóttir

Ein spurning fylgdi okkur á alla fundi í hringferð Bændasamtakanna nú í nóvember og hún laut að því hver tæki við. Bóndinn sem hyggst bregða búi veltir fyrir sér hvort einhver komi í hans stað og unga fólkið sem vill hefja búskap spyr hvort dæmið geti yfirhöfuð gengið upp. Báðir hópar rekast á sömu hindranir og þær er að finna í leikreglunum sjálfum, ekki síst í skattkerfinu.

Ég hefði ekki getað verið meira sammála Maríu Rut, þingmanni Viðreisnar, þegar hún benti á það í ræðustól Alþingis í vikunni að við greiðum öll sama skatthlutfall en njótum ekki sömu grunnþjónustu. Hún rakti skilmerkilega hvernig búseta ræður aðgengi að grunnþjónustu, og slíkt ætti að vekja alla til umhugsunar. Þjónusta sem ég, búsett á höfuðborgarsvæðinu, tek sem sjálfsögðum hlut kostar fólk á landsbyggðinni oft heilu og hálfu dagana, langan akstur og jafnvel gistingu með tilheyrandi útgjöldum – ef það kemst þá yfirhöfuð, því ekki er alltaf flug í boði. Þetta fólk greiðir sömu skatta og ég en ber sjálft kostnaðinn af því að sækja þjónustuna sem skattarnir eiga að standa undir. Við eigum að heita jöfn fyrir lögum en erum það augljóslega ekki þegar kemur að póstnúmerum.

Úr þessu má bæta með frekari uppbyggingu og breytingum á regluverkinu, því í kjölfarið fylgja störf, þjónusta og fólk. Auknar álögur, hvað þá nýjar, eru hins vegar skref í þveröfuga átt. Skattkerfið þarf ekki að vinna gegn landsbyggðinni – það getur unnið með henni. Við eigum að nýta kerfið til að laða fólk í störf úti á landi, bæði sérmenntað og fólk með reynslu og verkkunnáttu, innlent jafnt sem erlent. Þannig færum við þjónustuna nær fólkinu í stað þess að láta fólkið sækja hana langar leiðir. Aðrar þjóðir hafa þegar farið þessa leið. Á ákveðnum svæðum í Norður-Noregi greiðir fólk til að mynda lægri tekjuskatt og fær sérstakan skattafrádrátt, auk þess sem hluti námslána er felldur niður fyrir hvert ár sem það býr þar. Finnar eru að prófa sömu leið með námslán í Norður-Lapplandi og í Kanada fá íbúar norðlægra svæða sérstakan frádrátt vegna búsetu og ferðakostnaðar. Í Ástralíu fá íbúar afskekktra svæða afslátt af tekjuskatti og í Svíþjóð greiða fyrirtæki í dreifðum byggðum lægri launatengd gjöld. Rökin eru alls staðar þau sömu – byggðin lifir á fólkinu og þekkingunni sem þar býr.

Þar sem fólk sest að verður til atvinna, þjónusta og samfélag og innviðirnir styrkjast um leið. Þá verður búskapur raunhæfari kostur fyrir ungt fólk, nýliðar koma frekar inn í greinina og kynslóðaskiptin ganga eðlilega fyrir sig – svo fremi sem skattkerfið fylgir með! Einn stígur út, annar kemur inn, samfellan helst og allir geta gengið sáttir frá borði. Þar sem landbúnaður eflist, blómstrar byggðin og þjónustan með. Hvort svo verður ræðst ekki síst af skattkerfinu, sem getur ýmist verið hindrun eða hvati.

Það er engin nýlunda að skattkerfið sé ekki alltaf sanngjarnt og stundum beinlínis ranglátt. Sama skatthlutfall fyrir ójafna þjónustu er ranglæti. Að póstnúmerið ráði aðgengi að grunnþjónustu er ranglæti. Skattaívilnanir og hvatar vegna búsetu eru hins vegar réttlæti – ekki forréttindi heldur leiðrétting á skekktri stöðu. Umræðan hefur allt of oft strandað á „hvað ef“ hugsunarhættinum – hvað ef einhver misnotar kerfið, hvað ef þetta og hvað ef hitt.

En hvar er réttlætið í því að láta kerfið misnota landsbyggðina af ótta við að fáeinir misnoti það? Þessu þarf að breyta. Það gefur góð fyrirheit að í stjórnarsáttmálanum sé kveðið á um að auka nýliðun og auðvelda kynslóðaskipti í landbúnaði, enda á byggðin allt sitt undir greininni. Þetta rímar líka vel við tillögu innviðaráðherra til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun, sem nú liggur fyrir Alþingi. Ég leyfi mér að vera bjartsýn.

Ég þakka bændum fyrir samtalið og ekki síður kvenfélögunum um allt land fyrir rausnarlegar veitingar. Um leið skora ég á stjórnvöld að ganga til liðs við Riddara rauða drekans og berjast gegn ranglæti með réttlæti – líkt og Benjamín dúfa og félagar hans.

Höfundur er framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands

Skylt efni: Vinkill

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...