Steikt grálúða, villigrjón, grænmetis- og pintóbaunaragú
Mynd / Aðsend
Matarkrókurinn 26. maí 2026

Steikt grálúða, villigrjón, grænmetis- og pintóbaunaragú

Höfundur: Hafliði Halldórsson

Grálúða er verðmætasti flatfiskurinn við Íslandsstrendur, hún líkist lúðu sem við flest þekkjum. Hún er ýmist dökkbrún, dökkgrá eða rauðgrá á hægri hlið sem snýr upp en grá eða ljósrauðgrá á vinstri hlið sem snýr niður. Þær finnast einnig hvítar og rauðgular. Grálúða er sjaldséður fiskur á borðum Íslendinga og í raun höfum við bara stundað grálúðuveiðar í tæp 60 ár og eftir minni bestu vitund er allur aflinn fluttur úr landi þar sem t.d. Japansmarkaður er afar mikilvægur. Grálúða finnst nánast um allt Norður-Atlantshaf frá Svalbarða niður megnið af Noregsströndum, við Færeyjar, Hjaltland, Ísland og yfir til NorðurAmeríku að ógleymdu Grænlandi. En hún er á ensku kennd við Grænland (e. Greenland Halibut). Í Norður-Kyrrahafi finnst hún líka, á svæðinu á milli Alaska, Rússlands og niður til Japans. Sennilegt er talið að hún skiptist i nokkra undirstofna eftir svæðum.

Grálúða er botnfiskur sem er oftast að finna á leirbotni á djúpsævi og hefur fundist allt í kringum landið en er algengust við landið vestanvert þar sem hún hrygnir á um og yfir 1.000 metra dýpi, en er einnig algeng norðan- og austanlands. Hún flækist einnig mikið upp í sjó og virðist vera sú tegund flatfiska sem er minnst háð því að dvelja á botninum.

Grálúða sem matfiskur er lítið kynnt hér heima enda ófáanleg á almennum markaði fyrir neytendur og veitingahús en hún er sannarlega sælkerahráefni sem fleiri mættu gefa gaum og væri viðeigandi að sjá á íslenskum veitingahúsum. Grálúðan er afar fiturík og inniheldur tæplega 13% fitu sem gerir hana mjög holla og áhugaverða, til samanburður er lúða um 6% feit.

Villihrísgrjón

2 bollar villihrísgrjón

vatn

2 msk smjör

salt

Byrjið á að sjóða villigrjónin, sem tekur lengstan tíma. Skolið grjónin vel í köldu vatni og setjið svo í pott með nægu vatni, smjöri og salti. Sjóðið þar til eru orðin mjúk og passið að hafa nóg af vatni á suðutímanum sem getur verið allt frá 20 til 50 mínútur.

Villihrísgrjón eru sko alls ekki hrísgrjón en eru notuð á svipaðan hátt, plantan er skyldari höfrum en hrísgrjónum og á uppruna sinn að rekja á svæðið við vötnin miklu í Norður-Ameríku. Vex í grunnu vatni rétt eins og hrísgrjón og frumbyggjar hafa nýtt plöntuna í árþúsundir en hún er í dag ræktuð í bæði Kanada og Bandaríkjunum auk þess að vaxa villt.

Steikt grálúða

4 bitar af grálúðu, um 200 g stk.

2 msk. matarolía

50 g brúnað smjör, til steikingar

Hitið pönnu og saltið fiskinn á báðum hliðum, steikið í í olíu og smjöri á stórri pönnu á meðalhita þar til fiskurinn er nánast eldaður í gegn. Snúið þá og eldið áfram í örstuttan tíma og takið af pönnunni.

Grænmetisragú með pintóbaunum

1 laukur

2 hvítlauksrif

1 eldpipar

3 msk. matarolía

½ sæt kartafla

1 dós tómatar

½ brokkólí

1 dós pintóbaunir

1 sítróna

salt

pipar

chili-duft

Flysjið og skerið lauk, hvítlauk og eldpipar, svitið í potti á meðalhita og hrærið reglulega. Skerið sætar kartöflur í teninga og bætið saman við ásamt tómötum. Skrælið börkinn af sítrónunni og setjið í pottinn ásamt ögn af vatni. Sjóðið þar til sætu kartöflurnar eru soðnar í gegn og bætið skornu brokkólíi og baunum við og sjóðið í 2-3 mínútur. Smakkið til með kryddinu og sítrónusafa og berið fram.

Skylt efni: matarkrókur | fiskur

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.