Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017
Fréttir 20. nóvember 2026

Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Sauðfjárslátrun er nú lokið í öllum stærri sláturhúsum landsins og er nú ljóst að í fyrsta skipti frá 2017 fjölgar sláturdilkum á milli ára.

Enn hafa ekki allar tölur skilað sér frá minni sláturhúsunum en bráðabirgðatölur frá þeim gefa ekki tilefni til að ætla að endanlegar tölur breyti heildarmyndinni.

Minni fallþungi en í fyrra Þegar tölur frá fimm stærstu sláturhúsunum eru skoðaðar sést að alls var 5.377 fleiri dilkum slátrað nú en á síðasta ári. Það skilar þó ekki nema rúmlega 21 tonni meira af dilkakjöti þar sem fallþungi er nokkuð minni en í fyrra. Nú mælist hann 17,08 kíló að meðaltali hjá fimm stærstu sláturhúsunum en var 17,26 kíló á síðasta ári.

Vegin meðaleinkunn fyrir gerð lækkaði einnig milli ára hjá fimm stærstu sláturhúsunum, úr 9,59 í 9,41. Gerðareinkunnin í fyrra mældist reyndar sú hæsta frá því að núverandi kjötmat var tekið í notkun. Meðaleinkunn fyrir fitu lækkaði sömuleiðis í ár, úr 6,64 í 6,51. Endanlegar meðaleinkunnir á landsvísu liggja þó ekki fyrir, fyrr en tölur minni sláturhúsanna hafa allar skilað sér.

Meira slátrað af fullorðnu

Slátrun fullorðins fjár jókst einnig milli ára, þegar tölur fimm stærstu sláturhúsanna eru skoðaðar. Alls var 41.953 fullorðnum gripum slátrað þar í ár, samanborið við 40.695 á síðasta ári. Það er um 3,1% fjölgun. Fjölgunin skýrist alfarið af aukinni slátrun áa, en þeim fjölgaði um 1.444 milli ára, úr 34.382 í 35.826. Slátrun hrúta og veturgamals fjár dróst hins vegar lítillega saman.

Fækkun sláturdilka hefur verið stöðug og umtalsverð á undanförnum árum. Árið 2017 var rúmlega 560 þúsund dilkum slátrað á landinu öllu, en á síðasta ári var heildarfjöldinn kominn niður í rúmlega 391 þúsund. Það jafngildir um 30% fækkun á átta árum.  

Fjöldi sláturdilka hjá fimm stærstu sláturhúsum landsins.

Skylt efni: Sláturfé

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...