Gundulu Sharman, forseti FEIF, og Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands, við undir- ritun hins nýja samnings.
Gundulu Sharman, forseti FEIF, og Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands, við undir- ritun hins nýja samnings.
Mynd / Valur Þorsteinsson
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka um íslenska hestinn, og Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands (BÍ), undir nýjan samning um WorldFeng.

WorldFengur er alþjóðlegur gagnagrunnur um íslenska hestinn sem FEIF og BÍ hafa haft samstarf um frá árinu 2000. „Hér er um að ræða einstakt verkefni á heimsvísu en eitt af markmiðum þess er að skrá öll íslensk hross, hvar sem þau eru í heiminum, í einn miðlægan gagnagrunn. Þetta hefur náðst og nú eru skráð í WorldFeng tæplega 600 þúsund hross í 30 löndum,“ segir Þorvaldur Kristjánsson, ráðunautur í hrossarækt hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.

Annað markmið verkefnisins var að koma á fót alþjóðlegu kynbótamati og hefur það verið keyrt árlega síðan 2004. „Samstarfið um WorldFeng hefur verið afar farsælt í gegnum tíðina og er svo náið samstarf um eitt hestakyn á heimsvísu einstakt í heimi hrossaræktarinnar. Ákveðið var í fyrra að taka samninginn um WorldFeng til endurskoðunar til að styrkja samstarfið enn frekar á milli FEIF og BÍ og til þess að vera betur í stakk búin til að mæta áskorunum og verkefnum framtíðarinnar,“ segir Þorvaldur enn fremur.

„Afar ánægjulegt og verðmætt er að nýr samningur sé nú kominn fram. Það er svo Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins sem sér um þróun og viðhald WorldFengs-forritsins og ber ábyrgð á daglegum rekstri sem og að framfylgja skyldum og verkefnum Bændasamtakanna í þessu samstarfi við FEIF.“

Skylt efni: WorldFengur

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...