Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Hér má sjá mynd í vinnslu af svæðinu, hvar núverandi skógræktarsvæði er og hvar stendur til að planta meira ef allt gengur upp.
Hér má sjá mynd í vinnslu af svæðinu, hvar núverandi skógræktarsvæði er og hvar stendur til að planta meira ef allt gengur upp.
Mynd / Aðsend
Fréttir 17. febrúar 2026

Sækja um leyfi til skógræktar á 415,4 ha svæði

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Ragnheiður Aradóttir og Kári Steinar Karlsson á jörðinni Galtalæk í Rangárþingi ytra hafa sótt um framkvæmdaleyfi hjá sveitarfélaginu til skógræktar á um 415,4 hektara svæði úr landi sínu.

Áður hefur verið veitt leyfi fyrir alls 345,4 hektara skógrækt. Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra gerir ekki athugasemdir við veitingu framkvæmdaleyfis vegna nýja svæðisins þegar tilskilin gögn hafa borist, en áður en það gerist verði umsækjendur að leggja fram matsfyrirspurn til Skipulagsstofnunar, sem metur hvort umrædd framkvæmd skuli háð mati á umhverfisáhrifum, þar sem stærð svæðisins er yfir 200 ha.

Nefndin leggur einnig til að gerð verði breyting á landnotkun svæðisins í aðalskipulagi sveitarfélagsins þar sem núverandi óbyggt svæði verði gert að skógræktar- og landgræðslusvæði og skuli sú breyting kostuð af umsækjendum.

Skylt efni: Skógrækt

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.